Monday, September 1, 2008

Nóg af vespum hér líka.

Mánudagur, og alein í kotinu. Margrét fór með pabba sínum til BS klukkan 8 í morgun. Verður að vinna hjá Möwenpick næstu tvær vikur. Hún kemur heim á eftir með Katie. Við ætlum að skiftast á að ná í þær. Klaus þarf nefnilega að vinna lengur en þær eru í starfskynningunni. Margrét er m.a.s. búin klukkan 3, en Katie er til 5. Spennandi að heyra hvernig gekk og hvað hún á að gera.
Takk fyrir öll kommentin. Alltaf jafn ljúft að lesa þau. Meira að segja þó að Arnhildur sé að skammast út í genin sín. En ég er svo alsaklaus. Guð setti þetta í okkur, og eitthvað hlýtur hann að hafa hugsað sér með það. --En hvað :)
Arnhildur--þú átt ekki að gefast upp á þessum læknum. Þú ferð og segir að mamma þín sé með vatnströppumaga- (kaskaden-maga) -sem enginn á Íslandi virðist þekkja. (Þorgerður veistu nokkuð um þetta?), segir honum að ég sé með snert af magasári, og bakflæði til viðbótar. Og heimtar að fá magaspeglun. Það er ekkert vont. Þú lætur bara svæfa þig stuttri svæfingu. Og þú verður bara hörð--og hananú! :) Getur tekið afa þinn með. Hann lætur ekki henda sér út fyrr en hann fær tíma og aðstoð, hehehe.
Eruð þið Diddi og Affí nokkuð farin að reka mömmu í þessa augnlokaaðgerð? Hún er að fara suður um miðjan mánuð. Endilega að gera eitthvað í þessu !!!!!
Þau hringdu í morgun, og sögðu mér fra Maddý. Að hún hefði hrasað og rekið niður hendina, og farið úr olbogalið. ÆÆÆÆÆ, elsku Maddý mín. Ég sárvorkenni þér. En þakkaðu fyrir að þetta er ekki öxlin. Það væri enn verra. Vona að þú farir að fá gifs, sem heldur þessu í lagi, og lætur ekki allt fara í sundur eins og hefur verið. Hvaða vesen er þetta bara. Góðan bata elsku frænka mín.
Diddi og Þorgerður--ég tek pantoprazol-natrium, 40 mg. Er þetta eitthvað líkt og þið eruð með.? Kannski þið gætuð skrifað mér efnin í ykkar töflum. Því það er sko alltaf allt betra heima, og ég vil fá sömu töflur, ekki spurning :)
Hér eru vespurnar ansi kræfar. Er búin að drepa einar 8 í eldhúsinu undanfarið. Gaman að vinna í bakaríinu þar sem þær fljúga ofan við kökurnar, geðslegt, eða þannig :) :) :)
Við fengum æðislega helgi. Eftir hádegið á laugardaginn kom sólin. Fór allavega í 23 um helgina. Við vorum úti við að slá grasið, -Á og M, og saga stórar greinar, sem uxu yfir girðinguna, -Klaus.
Hreinsaði beð, klippti, plokkaði og gróf holur til að setja blóm í. Ætla að færa eitthvað til, sem vex illa á núverandi stöðum.
Á laugardaginn fór ég að gefa kisu. Var búin að fá leyfi til að setja allt frosna dótið úr frystiskápnum mínum í kistuna hjá Frau Kühle. Fór með 4 poka. Gat nú loksins þrifið skápinn í ró og næði. Án þess að vera á fullu með heitt vatn og hárblásarann. Ekki veitt nú af, og ég er svo fegin að vera búin að koma þessu frá.
Í dag er ég svo að fara í gegn um bæklinga, og henda þeim. Taka stofuna í gegn, og ekki sér fyrir endann á því :)
Allt gengur vel í vinnunni. 1. bekkur er svo "sætur". Það er hægt að fá þau til að vera hugfangin af litlu. Eins og er eru gamlar dúkkur frá McDon og dót úr Kindereier vinsælast :)
Er ekki enn farin að redda kassa til að koma dótinu heim. Fyrirgefðu Malla mín. Viltu kannski að ég sendi þér þetta í smáböggli og flugi. Það tekur annars vanalega um 3 vikur með sjópóstinum.
Vona að ég geti farið í þetta eftir morgundaginn. Er jú loks komin með bíl, og get flutt pappakassa milli húsa :)
Er ólag á tölvu Maddýar? Og pabba tölvu líka? Held að það ætti að kanna hvort einhver geti gert við þetta án þess að biðja Ella um aðstoð. Hann er örugglega þreyttur eftir vinnu og nám. Pabbi getur borgað fyrir viðgerðir. Hann á nóga seðla. Sleppir bara einum krossi.
Sé alveg Affí fyrir mér með bogið bakið undan gullinu!

6 comments:

Anonymous said...

Ætlarðu í alvöru að henda einhverjum bæklingum? Ertu til í að biðja Margréti mína að ná því á vídeó?!...
Saknaðarkveðjur frá Arnhildi,
sem er geðveikt stolt af Margréti sinni sem er að vinna hjá Mövenpick og gerir örugglega ekkert annað en að éta kökur í felum...(ég myndi allavega gera það)

Anonymous said...

Elli fer í að laga tölvu pabba í kvöld svo það fer að komast í lag. Mér skilst að Maddy sé brotin, fæ nánari uppl í kvöld um það.Var í kaffi í norró og þá var hún ekki enn komin úr aðgerð. Er steinhissa að það skuli vera komnar vespur í garðinn þinn aftur, mamma fullyrti að hún hefði drepið þær allar í sumar. Ássý frænka drepur þær víst með því að kremja þær milli puttanna á sér, og undarlegt nokk..þá var hún stungin um daginn. Hef alltaf vitað að Ássy er laumuhetja! Að sorglegri hlutum, Margrét dóttir Gullýar frænku dó í gær,var fædd 1961. Hafdís var besta vinkona hennar og ég kynntist henni vel í gegnum hana, fórum saman í leikhúsið,í mat til Hafdísar og á kaffihús. Hafdís var hjá henni til loka,og var að vonum búin á því. Ég fór til hennar í gærmorgun og svo kom hún í gærkvöldi í mat hingað, elduðum svín og ananasfrómas+jarðaber og hindber úr garði Hafdísar. Reyndum þannig að dreifa huganum. Já svo hvað með það þó við ropum og rekum við, verum bara þakklát fyrir að vera til staðar að framkvæma það. En annars allt í rólegheitum hér á bæ. kv affí

Kristín E. said...

HæHæ...
Smá fréttir af mömmu gömlu... hún fór úr lið og í lið og úr lið og... í 3 gifs í gær (held að talan sé rétt) og þá loks var hún í gifsi og ekki úr lið!! Svo kom í ljós að það var beinflís í liðnum og þess vegna fór hún alltaf úr lið... fór í aðgerð í dag til að ná þessari beinflís.
Átti að vera deyfð í aðgerðinni en svo var hún að vakna úr svæfingu áðan þegar Lilla heyrði af henni á vöknun... veit ekki meira í bili.

Það er rétt hjá Affí... betra að vera með alls konar galla og fá að lifa með þeim en að þurfa að yfirgefa þennan yndislega heim okkar :S
Sendi samúðarkveðjur til Affíar og Hafdísar.

Anonymous said...

Innihaldsefnið í okkar töflum er esomeprazol magnesium þríhýdrat eða esomeprazoli, hvort þið skiljið þetta þarna í Fiskalandi er svo annað mál...

Mamma hefur nú verið með meira en beinflís lausa í olnboganum því nú er hún tvínegld og ég veit ekki hvort hún fer heim í dag eða á morgun, hún var svo sloj eftir svæfinguna í gærkvöldi og fréttir hálfóljósar... En vonandi fer henni nú að líða betur, og erfitt að vera svona langt frá henni!!

Hugsa að Arnhildarvandamál sé frekar tengt ristlinum en maganum, þó svo þetta sé auðvitað nátengt - vildi bara koma þessu á framfæri því þessi meltingarprumpuumræða var orðin svo skemmtileg, og já Affí það er nú til margt svo mikið alvarlegra en þetta þó hvimleitt sé það.

Sendi Affí og Hafdísi samúðarkveðjur, þú passar vel upp á hana þegar þetta er allt yfirstaðið því þá líður fólki oft verst.

Anonymous said...

Prrruuuummmp! -Arnhildur

Anonymous said...

það liggur ekki svo mikið á þessum gammosíum elsku frænka, við bara bíðum þolinmóð eftir þeim hér. Enda er veðrið svo gott þessa dagana að það er ekki hægt að hugsa um sokkabuxur og gammosíur strax ;) Heyrði í mömmu í dag, hún náði ekkert að sofa síðustu nótt þrátt fyrir morfín og svefnlyf...... vona að næsta nótt verði betri hjá henni. Er sammála Þorg. væri til í að hoppa upp í næstu vél til Ak. og hjúkra mömmsu :S