Ekki var blái bílinn tilbúinn í fyrradag. Hann var svo prufukeyrður í gær, og bilaði þá aftur. Er víst út af því að varahlutur var ekki í lagi. Allavega fær Klaus ókeypis bíl frá verkstæðinu í viku, eða þar til okkar er kominn í lag. Svo Klaus kemur á honum heim seinni partinn, og við þurfum síðan til BS að ná í minn rauða. Hef sloppið vel á hjólinu milli skúra. Alltaf einhver rigning, en spáin fyrir helgina frábær.
Fór til læknis í gær út af eilífu ropi og veseni í maga. Er alltaf sár í hálsinum á morgnana og held að það sé út af þessu bakflæði. Spurði Weiland hvað væri hægt að gera. Hann kom alveg af fjöllum. Hvort ég tæki ekki alltaf dropa gegn þessum óþægindum! Ég fór fyrir einum 5 árum til magasérsfræðings, og þá lét Weiland mig fá dropa, sem ég átti að taka "eftir þörfum". Síðan hefur hann aldrei nefnt þessa dropa á nafn, hvað þá gefið mér lyfseðil út á þá. Það er sem sagt sjúklingurinn, sem á að sjá um að fá sín meðöl, ekki læknirinn Ég vildi vita hvort ekki þyrfti að fylgjast með maganum. Hvort það væri ekki rétt að ég væri með snert af magasári. En hann fann nú ekki skýrsluna frá sérfræðingnum. Hún væri víst frammi í gömlu skjölunum.Svo sagði ég honum að læknirinn minn í Gifhorn hefði fullyrt að ég væri með óþol gegn öllum tegundum af korni. Hann tók þessu líka létt, eins og öllu öðru. Ég ætti þá bara að sleppa að borða þetta allt i viku, og sjá til hvort ég yrði hressari. Það væri engin ástæða til að fara í dýra blóðprufu, sem kosti mig 500 evrur, og sé lítið marktæk. En allavega fékk ég út úr þessari heimsókn dropa og pillur, sem eiga að gera það að verkum að ég verði ekki ropandi langt frá á nótt. Og fer svo í okt. í tékkun, og við sjáum svo hvað kemur úr úr því.
Væri gaman að heyra hvað Diddi og Sigyn segja um sína sjúkrasögu. Eru þau ekki með bakflæði, og hvað er gert í því heima?
Margrét fékk að hlaupa í stað þess að fara í sund :) Hún og Katie mættu báðar nmeð afsökun frá elsku mömmu :) Og fengu þær fréttir að eftir þennan bekk væri ekki meiri sundkennsla :):):)
Margrét var vel búin á því þegar hún kom heim klukkan næstum hálf fimm í gær. Ég keypti vítamín handa henni í gær, og steingleymdi að hún er af ættinni! Hún getur ekki með nokkru ráði gleypt pillur. En í dag ætlum við að reyna aðferð ömmu gömlu og mylja þetta niður í jógurtina :)
Klaus vann með vinnuhópi frá VW verksmiðjunum í gær. Einhverjar mælingar, sem hann og kollegar hans vinna fyrir VW. Hann fór svo út að borða með þeim, og kom seint heim. Ég horfði ein á Mrs. Doubtfire. Alltaf góð.
Úti er dimmt og ég ekki komin í stuð að gera nokkuð. Fer kannski snemma í vinnuna og undirbý eitthvað föndur.
Flott hjá Svanhildi að drífa í ritgerðinni, og fara í frönsku. Já, kannski Arnaldur læri bara af þessu og útskrifist líka, híhí. Það er svo sannarlega satt að skandínavísku konurnar eru ekki hræddar við að takast á við ný verkefni, og allt reddast þetta hjá þeim. Vona nú að hún litla systir mín hafi ekki farið út í of mikil verkefni. En allavega er betra að reyna, og sjá svo hvað þetta gengur en að gera ekkert. Segir sú, sem gerir ekkert. Sniff, sniff. En það er allavega einhver hreyfing í þessu hjá mér. Kemst vonandi að því í dag eða eftir helgi hvaða möguleikar eru með vinnu í Studienkreis.
Hafið það gott, og góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Hæ. Bakflæðið er sigrað með nexium töflum. Ekkert mál og engar aukaverkanir. Hér er allt í sóma, við að fara í brúðkaup á morgun, (Ír dóttir Hlífar). Vonum að verði berjamósveður á sunnudag. Drengir sofa í stofunni núna vegna geitunga í þakinu á kvistinum sem virðast komast einhvers staðar inn. Gaman gaman. Verðum að reyna að finna eitthvað út úr því.
Kv. Diddi
Ekki gaman að fá geitunga inn til sín, ég er algerlega með geitungafóbíu, vonandi gegnur að hreinsa þetta út hjá Didda. Elli búinn að útbúa nýja tölvu fyrir mig svo nú kemst ég inn á netið eins og skot. Var í gær að hjálpa til í MyndAk.bera inn borðfætur sem búið var að háþrýstihreinsa og sprautulakka, og síðan var verið að skrúfa nýjar borðplötur á. Þetta mjakast allt, verður líklega nóg að gera í næstu viku en skólinn byrjar 8. Var hjá m og p í gær eftir kvöldmat, bara að rabba um allt og ekkert. Er byrjuð að halla fram fyrir mig eins og systur mínar og mamma þar sem ég er nú komin með gullkrossinn forláta um hálsinn, m og p gáfu mér keðju á hann svo nú glitra ég í stíl við restina af ættinni. Krossinn er jú algert æði og ég mjög ánægð. Kv affí
Ú bara einn vetur eftir í sundkennslu, ég hugsa að frænka mín sé yfir sig ánægð með það ;) Góða helgi, hér er ömurlegt veður, vægast sagt, en á að vera gott á sunnudag og eitthvað fram í næstu viku vonandi.
Ég er aðallega með brjóstsviða, veit ekki með bakflæði en leysi það með Almínox... fór með 700-800 stk þegar ég var ólétt hehehe
spennandi með studien... man ekki hvernig það er skrifað en allavegana spennó :þ
Afgreiði bakflæðið vegna þindarslits með nexium líkt og Diddi. Þarf að passa rosalega vel hvað ég borða og er verst ef mikið stress er í gangi.
Sé það að við þessi fullkomna Dallasfjölskylda er meingölluð - amk. maginn á okkur - haha...
Góða helgi öllsömul!
Ég vil bara þakka fyrir að hafa erft ónýtan maga! Það er svo gaman að vera ropandi og prumpandi allan daginn...og vera svo með harðlífi og niðurgang til skiptis! Og svo vaknar maður á morgnana og finnst eins og maður hafi étið heilt svínslæri með meðlæti og eftirrétt rétt fyrir háttinn!Þetta er svooo gaman!! Ég talaði við heimilislækninn minn því ég held að það sé ekki eðlilegt að fá niðurgang með magakvölum þrisvar í viku en hann sagði mér bara að hætta að éta hvítt hveiti og minnka mjólurafurðir...þannig að ég er bara enn prumpandi og ropandi..hehe
prummmmpp kveðjur Arnhildur geðveikt sexý uppblásinn pornodogg
hahahahaha... Arnhildur litla frænka snillingur!! Kommentin koma manni alltaf í gott skap...
Post a Comment