Monday, August 18, 2008

Bara rólegheit.

Takk fyrir allar kveðjurnar. Það er bara eins og að taka upp pakka að lesa kommentin :) Mikið er ég fegin að Malla mín er ein og getur stússað við undirbúning vetrarins í næði. Flott að Össi tók snudduna :) Já, það heyrist nú í okkar ætt þegar hlegið er :) Eigum við ekki að skella okkur til Grikklands og skoða þessar eyjar? Hvað hvað er þetta með fullorðins tennurnar í Steinahlíðar skvísunum? Eru einhverjir gallar í okkar ætt, eða hlýtur þetta ekki bara að vera frá Siglufirði. :) Skelfing gott að heyra í Arnhildi minni. Hún hlóg að mér í gærkvöldi þegar ég vildi vita hvað þau óskuðu sér í jólagjöf :) það væri nú enn ágúst :) :) :) Og að sjálfsögðu fer allt úr böndunum þegar hún er ekki á staðnum. Hvað var þetta með heimsókn einhvers til Porno-Arnhildar--var verið að versla! eða bara skoða? Var það Malla? Eða Kristín? Smile! ( ó, þetta er kannski of viðkvæmt fyrir bloggsíðuna!:))
Til lukku með Gumma elsku Sigyn og Diddi!!! Hann er æðislegur eins og hann er , utan við sig eins og afi Eiríkur, eða svo segir Randver :) Elsku Affí mín. Vona að þú verðir ekki alveg niðurbrotin að vera eftir ein með honum Ella þínum. Svona er lífið. Mín bíður þetta sama eftir 3 ár. Við verðum að líta á þetta sem tækifæri, og finna nýjar leiðir í tilverunni. En samt ertu örugglega smá sorrý, skil það vel. Vildi vera komin í sultuát til Sigurðar og í rifsberjahlaupið hennar Þórdísar. Bara komið haust og ber og hvað eina.
Já, það styttist í skólann. Við Margrét hættum við Hamborg í dag. Ekki of góð spáin, og svo getum við ekki tekið hraðlestir með ódýra miðanum, og værum því rúma 3 tíma hvora leið. Það borgar sig eiginlega bara ef maður getur gist líka. Kannski við förum bara í ferð að horfa á Hellisbúann, ef hann er enn sýndur. Schmidt Tivoli, leikhúsið, eða skemmtistaðurinn, sem sýndi þetta, átti afmæli nýlega. Svo er vel þess virði að gista í Hamborg.
Vörturnar báðar dottnar af Margréti eftir tvö skifti. Gott mál það. Við í algjöru letikasti í dag. Liggjum í bókum, og af og til í sjónvarpinu. Svo bjó ég til rækjurétt með hunangssinnepssósu, og það bíður okkar í kvöldmatinn.
Við vorum í einn og hálfan tíma í gær að taka bílinn í gegn! Enda hefur það ekki verið gert í næstum ár að mig minnir. Mætti bara halda að þetta væri bíll Didda :)
Svo gekk ekki neitt lítið bögsulega að grilla. Hann Klaus minn setti bara léleg kol á grillið--af því að ég tók þau óvart til, og hann gáði ekki hvort hin væru í skúrnum. Svo kartöflurnar urðu kartöflumús, og brauðið smá hart, hí,hí. En ágætt samt.
Jæja. Stress í fyrramálið. Verður erfitt að koma sér á fætur um klukkan 7 til að fara til Bs. með bílinn. En best að bíta á jaxlinn.
Þorgerður-- það verður að gera alvarlega tilraun til að fá Affí til að koma í heimsókn. Hún finnur sko ekki upp á því af fyrra bragði. Diddi--Guðbjörgu langar svo mikið að hitta hana og líka VÖ og Aldísi. Getur þú stóri sterki bróðir minn, sem ert svo góður í félagslegu málunum, gert eitthvað í samkomu þessarar fjölskyldumeðlima? Og ekki væri verra að halda sýningu á honum gullfallega Arnaldi, og koma honum inn í hóp þessarar yndislegu famelíu. Mig langar svo mkið til að knúsa hann og Ástþór. Kossar yfir hafið. With lots of love :) til ykkar allra.
P.S. Er kannski giftingardagur Affíar í dag???

4 comments:

Anonymous said...

Langar þig já bara að knúsa börnin hans Sigurðar Ág.?!Hvað með stóra barnið þitt sem vill ekki fullorðnast..Margrét sko!!Og fallegasta barnabarni í heimi! Yfirmaðurinn minn er held ég að reyna að drepa mig úr stressi og miklum verkefnum, en ég er svo leiðinleg að ég nenni ekki að stress rass...nei, stressast yfir þessu lengur! Ég er orðin aðal porno DVD framleiðandinn á landinu kalda! Hmmm veit ekki alveg hvort það er góður starfs tilli...titill sko!! :) kveðjur Arnhildur

Anonymous said...

Hahahahahahahahaha...

Anonymous said...

Hahahahaha, Arnhildur þú ert æði ;) Gott að geta hlegið áður en ég fer að sofa (ein með stóru sængina,rosa gott). Nei það var sko ekki ég sem verslaði í búðinni góðu, á það eftir. Mér skilst að það hafi samt verið fleiri en einn í familíunni sem kíkti inn í dónabúðina í sumar..... allir að gefa sig fram hér með ;)

Thordisa said...

Ég hef ekki haft tíma til að gera eitt né neitt né hitta neinn því ég er bara búin að vera í stærðfræði á haus og ef þetta heldur svona áfram þá hitti ég engan í vetur hummm... sólin skín og það er síðasti dagurinn á námskeiðinu í dag svo er frí á morgun og svo byrjar skólinn á föstudaginn og svo förum við norður um helgina. Nóg að gera og ég kemst ekki yfir neitt svo ef þig langar í heimsókn að hjálpa mér þá ertu velkomin híhí. Elli er að hjálpa mér í tölvumálum en ég verð að fá mér eina fyrir veturinn.