Monday, August 11, 2008

Rólegheit.

Mánudagsmorgunn, og Margrét sefur. Sofnuðum seint í gær eftir gláp á sjónvarpið. Fór svo á fætur klukkan hálf níu og hjólaði til Frau Kühle til að gefa kettinum. Við Margrét hjóluðum saman til hans í gær. Það er sem sé hið besta mál að vera bíllaus, eða þannig :) Arnhildur vill að við fáum okkur vespur, en ég held að erfitt væri að koma afa gamla á einni slíkri til BS :) :) :) Stefnan í dag er viðgerð á bílnum. Bíðum eftir að kallinn komi úr fríinu, sem er sérfræðingur í gíraviðgerð. Við eigum ein 15 þúsund í verðbréfum, sem við fengum eftir tengdamömmu. En okkur vantar nú ekki bara bíl. Heldur líka nýja sófa, nýtt gólfteppi í stofuna, nýtt sófaborð, gott hjól, bráðum kannski bíl í staðinn fyrir minn litla, og svo þurfti að styrkja hjónarúmið, og hver veit hvað það dugar. Var gert áður en Malla og Össi gistu-en ekki neinar meiningar í því :) . (Grindin liggur á allt of mjórri spýtu, og átti það til að detta niður. Klaus tókst svo endanlega að brjóta spýtuna meðan ég var í burtu. Ætli hann hafi fengið heimsókn. Smile :) )
Við fórum í afmæli Danielu á laugardaginn eftir að Margrét var búin að slá garðinn. Klaus að setja upp tvær blómagrindur á vesturvegginn, og ég búin að verka illgresi í stóran dall. Finn líka enn fyrir því í mjóhryggnum, og eins gott að halda áfram að hreyfa sig og mýkja líkamann.
(Fyrir þá, sem til þekkja, er ég að láta klifurrósina vaxa fyrir hornið og út á veginn, sem býður upp á nóg pláss, og það sama með grænu plöntuna við eldhúsið)
Susanne og Gregor mættu líka. Daniela var eitthvað voða þreytt, og mikið að gera í vinnunni. En mér finnst nú að þetta þýska lið sé bara ekki vant verulegri vinnu, og gæti nú lært af okkur. Það voru ekki ófá gólfin og veggirnir, sem maður var búinn að þrífa á þessum aldri. Svo við myndum ekki kalla pappírsvinnu á skrifstofu mikið mál, eða?
Við Margrét fórum í okkar fínasta púss. Fór í nýja pilsið frá Didi í Fields. Margrét í nýju skóna við sumarpils og topp. Og ég m.a.s. málaði mig hellling. Svo er ég einatt með armbandið frá ömmu Möllu og hálsfestina frá Estrid. Maður reynir nú að vera fínn :)
Vá, Margrét mætt. Klukkan korter yfir tíu.
Úti er sól, en nokkur vindur. Skýin þó á næstu grösum. Ekki víst að hann hangi þurr.
Í gær var rigning mest allan daginn. Ég kláraði það, sem eftir var að strauja. Margrét las og saumaði út. Klaus vann eitthvað á tölvunni. Allt í rólegheitum. Svo sauð ég lax frá Ikea, og var með fínu Knorr-papriku sósuna frá Köben með. Fæst ekki hér. Á eftir bláber með sykri.
Takk fyrir kommentin. Mikið væri það nú gaman ef Þorgerður kæmi einhvern tíman til okkar. Það er svo sannarlega tími til kominn. Og ef Kristín verður ekki öll í húsabyggingu kemur hún kannski líka? Allir velkomnir, og alltaf má troða.
Vona svo að Arnhildur nái að hlaða vel batteríin í "Munaðar"nesi, sem hæfir vel eins og Þorgerður segir :) Margrét var búin að ætla að senda sms í gær fyrir mig, en ekkert varð úr því. Ég gamla konan er enn háð henni á tæknilegu sviðunum. Vonandi nennir hún líka að setja fleiri myndir inn á bloggið á eftir.
Gott að Malla og orkuboltarnir allir þrír eru komin heim heil á húfi. Malla--þú verður nú að telja upp hvað þú verslaðir í Trier! Fannstu nokkuð golluna, sem ekki var til í þinni stærð hér? Búin að panta síðu nærbuxurnar á kappana, og þetta fer svo í kassa norður þegar þetta kemur.
Jæja. Vona að Affí hafi ekki gengið fram af sér í borginni. Guðbjörg var víst fyrir norðan í lestri fyrir próf. En ég er nú alveg viss um að Affi reyndi mikið til að hafa samband við ættingjana, hí,hí.- Við erum stundum svo hlédrægar við gömlu systur. Diddi, gakktu heldur ekki fram af Sigyn með göngu-náttúruástina. Það má líka fara í tveggja tíma ferðir :)
Meira seinna. 75.7 kg og það án þess að taka pillur !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

2 comments:

Anonymous said...

Það er nú alltaf spurning um hvort dregur hvort í lengri og styttri göguferðir, ég eða Sigyn. Viðurkenni fúslega mikla strengi og stífleika eftir gönguna í gær, en mun betri í dag enda heiti potturinn þarfaþing. Sigyn farin í bæinn á fund, við drengir hér eftir. Eitthvað verður dundað hér inni og úti í dag, fallegt veður og rólegt. Láki Palli, Inga, Maggi og Hulda ásamt Öglu, Kalla og 2 börnum í mat í gærkvöldi. Þau í bústað skammt frá. Mjög gaman. En Áslaug, ekki endilega reikna með á Þorgerður komi svona langa leið í heimsókn. Mér tekst ekki að fá þau til að koma austur yfir heiði :) Nefni það nokkrum sinnum við hana. S.s. allt gott og vonandi hafa aðrir það svoleiðis líka.
Diddi

Anonymous said...

Ha ha ha, mér finnst loka punkturinn með töflurnar alveg hrikalega fyndinn !! Ég keypti hvítan brjóstahaldara í H&M (þurfti ekki að máta núna,enda búin að finna út risastærðina áður,tihi), kjól, tvenna eyrnalokka, 3 nærbrækur. Man ekki meira í bili, fann svo eina æðislega skyrtu/peysu í esprit, splæsti henni á mig þó hún hafi kostað 39,95 :S Keypti svo á strákana í C&A fyrir 145 Evrur ;) Þá fannst Össa nóg komið !!!!
p.s. KÖ sagði í gærkvöldi" ég er með strákatennur en ekki Manget"