Þriðjudagur, og Margrét er til fjögur í dag. Svo er píanótími hjá Jöndru klukkan korter yfir fimm, og líklega verður mín þreytt á eftir. En í staðinn er mætt í annan tíma á morgun, og hún kemur heim upp úr eitt. Ég fékk nýju börnin í gær. Líst bara vel á hópinn. Er með akkurat 20 núna, og hinn hópurinn er álíka stór. Fylgdi þeim í strætó í gær. Ein stelpan ósköp kvíðin, og ég fór með henni inn í strætó þar til hún fann sæti. Eldri krakkarnir eru líka hjálpsöm. Í dag var þetta ekkert mál.
Var að hreinsa gangstéttina í gær, og aftur í morgun. Klippti svo helling af greinum, sem héngu yfir girðinguna. Hrúgan er enn á bílastæðinu, og verður þar um tíma :) Við fórum með þann bláa í viðgerð á þr. í síðustu viku. Sennilega verður hann tilbúinn á morgun. Ég ók á þeim rauða eftir Klaus á þeim bláa ef eitthvað skyldi koma fyrir á leiðinni. Svo sóttum við Margrét hann seinni partinn eftir að við vorum búnar að þvælast smá í bænum. Fórum m.a. á Starbucks og fengum okkur kaffi. Þar keypti ég mér mjög þarfan hlut :) Karamellusósu til að hella út á mjólkurfroðuna. Nammi :) Margrét reyndar skammaði mig og sagði að ég ætti að spara kaloríurnar :)
Í gær hringdu Gunther og Maria í mig og spjölluðu lengi. Maria er að hugsa um að heimsækja okkur fyrir jólin. Hún er með lestarkort. það væri gaman að hitta hana. Við getum talað endalaust um hlutina:) Gunther var mjög ánægður með ferðina. Og fína matinn hjá mömmu!
Skrifa bara stutt í dag. Ætla að baka amerískar pönnukökur í kaffinu handa Margréti. Og þarf svo að skreppa í bókabúð fyrir hana.
Mætti í pilsi og leggings í skólann, og vakti mikla athygli. Það er ekki algengur klæðnaður hér. Og í nýju Vagabond skónum og nýja svarta stutta jakkanum frá Fields, í Köben. Setti m.a.s. á mig varalit. Getur þetta nokkuð orðið betra?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Saknaðarkveðjur frá Arnhildi, sem líður ekkert öðruvísi þótt einhverjir Íslendingar hafi fengið silfurpjátur fyrir að leika sér mikið með bolta, sem skoppar ekki einu sinni! :)
Flott að vera fín í vinnunni :o) ekki spurning :þ
Gott mál að vera flottur í vinnunni, þá líður manni betur, mér finnst það ;) Var í "heimabuxum" í dag og fannst ég ekki fín.... verð í pilsi á morgun, ekki spurning :)
Já það er nú alveg bannað að fara í "heimabuxum" í vinnuna!!! Nei maður á nú bara að vera eins og manni líður best en voðalega gaman að eiga svona fína daga líka.
Njótið haustsins og ég dáist að ykkur að vera komin í haustgírinn. Ég er eitthvað ansi sein í gang núna en stefni á að gíra vel upp í ritgerðinni minni og taka smá frönsku með vonandi.
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
Er loks komin heim eftir suðurferð, og búið að koma ungunum fyrir á snorrabraut. Fór ekkert í heimsóknir enda í nógu að snúast í innkaupum og frágangi.Vonandi gengur þetta allt vel fyrir sig, alla vega ekki hægt að gera betur í bili. Frekar dapurlegt að koma heim í tóm herbergin,en líklega verður veturinn létt geggjaður í vinnu hjá okkur ella, hann í fullri vinnu og nærri fullu námi, og vinnan í MyndAk líklega talsverð meðan verið er að vinna sig út úr áhrifum brunans. Rigning og kalt úti núna, en annars allt í góðu gengi. Frábær mynd af ykkur Klaus á brúðkaupsdaginn, þú ættir að láta stækka hana og setja í ramma, þið bæði svo sæt og fín. kv affí litla sys.
Post a Comment