Sunday, August 17, 2008

Sól á sunnudagsmorgni.

Tíminn flýgur áfram. Á föstudaginn var 21. giftingardagurinn okkar Klaus. Margrét bakaði ostaköku, eða skyrköku. Við lögðum fínt á kaffiborðið, og ég klippti blóm og setti í skál. Þegar Klaus kom heim varð hann heldur betur hissa. Hvað væru um að vera. Já, hann gleymdi þessum degi eins og í flest öll skiftin. Það er stundum sorglegt að eiga eiginmann, sem aldrei gerir nokkuð huggulegt fyrir mann, en maður verður víst að hugsa um góðu eiginleikana, og vera hress fyrir því. Við Margrét fórum bara í staðinn í bæinn í gær, til BS, og nutum þess að vera í bíói og lifa okkur inn í hina yndislegu veröld, sem Mamma Mia birtir okkur. Myndin er yndisleg. Landslagið er bara draumur. Ætli þessar eyjar séu til í alvöru, eða búnar til á tölvu.? Allavega er þetta næstum of fallegt til að vera satt. Það er æðislegt að fá texta svíanna í tengingu við atburði á tjaldinu. Maður skilur núna miklu betur texta, sem maður hefur sungið og hlustað á í gegnum öll þessi ár. Þetta var sem sagt yndisleg stund og við mæðgur komum fullar af lífsgleði út úr salnum. Við vorum búnar að mæla okkur mót við Danielu, Susanne og Gregor á eftir. Hittum þau klukkan 8 framan við höllina, og sátum þar á kaffihúsi fram til hálf tíú. Allir óvenju hressir, og þetta var bara mjög gaman. Heima beið svo Klaus framan við sjónvarpið að vanda.
Ég missti af símtali frá Þórdísi og Didda, en þau gera vonandi aðra tilraun bráðum.
Við komum fyrir kaffi í bæinn, og kíktum í búðir. Flottur kjóll í Vero Moda og fleira slíkt. Alltaf hægt að láta sig dreyma.
Fengum okkur pizzu " í hendina" hjá Pizza Hut, og nörtuðum í á leiðinni. Og svo féllum við fyrir spennandi bókum, og hlökkum til að lesa þær.
Er að passa köttinn þessa helgi. Fór í morgun á hjólinu, og vona að ég haldi svo áfram að vera dugleg að hreyfa mig þó að hann fari að kólna.
Margrét fór með Doreen til Wolfsburg í bíó á fim. Þær sáu Superhero Movie. Með honum Drake Bell, Pamela Anderson og fleiri góðum. Á meðan fór ég í sólbað. Í annað skifti á þessu sumri! Hef ekki haft tíma fyrir garðvinnu, gestum og tiltekt. Fékk m.a.s. lit á mig.
Í dag er besta veður. Við Margrét ætlum að taka bílinn í gegn á eftir. Svo bíður grillkjöt í ísskápnum. Þáttur um garða í sjónvarpinu, og dagurinn verður örugglega ekki lengi að líða.
Erum að spá í að taka lestina til Hamborgar á morgun. Þvælast þar í bænum. Svo þarf ég að fara með Klaus til BS á þriðjudagsmorguninn. Hann fer á þeim bláa og setur hann á verkstæði. Ég ek honum svo í vinnuna, og heim. Upp í skóla til að hjálpa kennurum Margrétar að sortera nýju námsbækurnar. Og svo þarf ég að sækja Klaus um kvöldið. Síðan er tannlæknatími á miðvikudaginn, og skóli og vinna á fimmtudaginn. Sniff, sniff.
Vona svo að hún Arnhildur mín fari að ná sér í dag eftir hálsbólgu og slappleika. Við söknum þess að finna engin góð komment frá henni. Saknaðarkveðjur frá okkur ástin mín.
Njótið sunnudagsins, og hafið það öll sem best.

10 comments:

Thordisa said...

Mikið væri ég til í að vera að skeppa til ykkar í smá heimsókn þvælast um bæinn með ykkur og labba út í skóg með þér systir kær. Bjó til rifsberjahlaup í gær og er að reikna í dag. Ingó var á Grenivík að spila í gær kemur heim á eftir. Veður er frekar milt en líklega gæti rignt í dag. Sakna ykkar

Anonymous said...

Innilega til hamingju með árin 21 ;) Já Mamma mía er frábær mynd, við systur fórum allar á fimmtudaginn og grenjuðum úr hlátri fyrir hlé og lifðum okkur vel inn í dramað eftir hlé. Ég hálf vorkenndi öðrum bíógestum, Kristín hló extra hátt !!! Hér er sko rólegt í kotinu, enda strákarnir mínir 3 fyrir norðan, voru í útilegu með vinum á Möðrudal um helgina, og KÖ hættur með snuð!! Pabbinn fékk nóg af snuddunotkun úti og sagði að hún hefði gleymst fyrir sunnan og hana nú, tihi.

Kristín E. said...

Til lukku með brúðkaupsafmælið... ég og Siggi áttum 1 árs brúðkaupsafmæli um verslunarmannahelgina og ég bara passaði að minna hann á þetta fyrir daginn... reyndar skiptumst við ekkert á gjöfum, við áttum pappírsbrúðkaupsafmæli og ég gaf honum bara eitt stykki eldhúsbréf heheh og hann gaf mér það til baka :þ
Ætlaði að hitta Arnhildi og Affí og co á Akureyri síðustu dagana en þá var Affí fyrir sunnan og Arnhildur í Munaðarnesi... reyni bara næst.

Anonymous said...

Allt gott af grenimel, ekki síður en í þjóðverjalandi, sýnist mér. Gummi búinn með sýninguna sína, Eiríkur byrjaður í fermingarfræðslu, Sigyn gekk Leggjabrjót (Þingvellir-Hvalfjörður) með Vigdísi Evu og ég heimsótti Sigurð og Svanhildi og leit á þessa fallegu frændur mína. Var leystur út með mjög góðri sultu/hlaupi sem ég hlakka til að sinna með góðum ostum. Vinnan hefst svo á miðvikudag hjá mér og mér væri svo sem alveg sama þó það væri 26. maí í dag. En þetta verður örugglega stórskemmtilegt eins og alltaf þegar hlutirnir eru komnir í gang. Bestu kveðjur
Diddi

Anonymous said...

sól og 22 stiga hiti hér í dag, en lítill tími til að hanga úti, hér verið að undirbúa suðurferð og flutninga suður. Förum í fyrramálið á tveimur bílum, við aldís á einum og vö á sínum. elli og fúsi komu að sunnan í dag, fúsi að koma rafmagnsmálum í lag fyrir okkur, verðum svo sannarlega að hjálpa honum í vetur í staðinn. M og p komu að kveðja krakkana áðan, þjoðverjarnir fara á morgun og allt í góðu hjá þeim. Kv til allra, affí

Anonymous said...

sól og 22 stiga hiti hér í dag, en lítill tími til að hanga úti, hér verið að undirbúa suðurferð og flutninga suður. Förum í fyrramálið á tveimur bílum, við aldís á einum og vö á sínum. elli og fúsi komu að sunnan í dag, fúsi að koma rafmagnsmálum í lag fyrir okkur, verðum svo sannarlega að hjálpa honum í vetur í staðinn. M og p komu að kveðja krakkana áðan, þjoðverjarnir fara á morgun og allt í góðu hjá þeim. Kv til allra, affí

Anonymous said...

Ég er komin í klámið aftur og það saknaði mín sko..búðin í steik eftir afleysingafólk og geðveikt stór DVD pöntun, best að halda áfram að framleiða! En það var æðislegt að komast í smá frí. P.S. Margrét, looking hot með nýju klippinguna!! ykkar Arrrrrnhildur

Anonymous said...

Pabbi gamli setti nú sinn brúðkaupsdag inn á reminder á gsm símanum sínum og er mjög lukkulegur með þetta!! Getur bent Klaus á þetta...

Já, Mamma mia var skemmtileg og eyjarnar til í alvörunni, segir ein sem ég er að vinna með og er Grikklandssjúk!

Láki í heimsókn hjá okkur, er í golfvörubúðaleiðangri og kom með Dóra flug, þeir nýbúnir að skjóta hreindýr félagarnir.

Ég lá uppi í sófa og horfði á Ólympíuleikana með verkjalyfin mín eftir tannaðgerð á föstudaginn. Missti því af sýningu Gumma því miður. Pabbi og mamma hafa ekki vandað nóg til verksins því það vantar alls 5 fullorðinstennur í okkur Kristínu... hehe...

Arnhildur velkomin í klámið aftur, frétti af heimsókn systur minnar til þín - híhí...

Affí og co. - hvernig væri að láta heyra í sér í e-i suðurferðinni, maður myndi kannski bjóða ykkur í mat eða "drulla í form"...

Hafið það ljómandi gott öllsömul!!

Anonymous said...

Ég held ég geti alveg örugglega fundið DVD af því "að drulla í form"...hehe the pornochicken AHhhhh

Anonymous said...

ojojoj - hahaha...