Sunday, August 24, 2008

Var að baka bollur.

Farið að halla á sunnudaginn. Hann hefur reyndar hangið þurr í dag, en undanfarna daga hefur hann rignt hressilega. Var að baka kotasælubollur, og þær voru góðar, namm. Vantaði nesti handa Margréti. Og svo lauk ég við að strauja allt, sem lá á stólnum í stórri hrúgu. Klaus fór í göngutúr. Í fyrsta sinn síðan hann var í USA í maí. Veit ekki hvað kom yfir hann, en vonandi verður þetta loks aftur að venju. Ég fór nú ekki með því ég var enn að klára að borða. Og svo var það nú þvotturinn :)
Í gær klippti ég greinar af runnunum við skúrinn. Það er ekki mikið mál, en verra að klippa svo allt niður í poka. En hafðist. Og svo klippti ég sígræna hekkið framan við eldhúsið. Það fór illa í sumar, en er nú að ná sér. Gat ekki klárað allt þar sem hann fór að rigna. Hann Klaus minn negldi svo spýtuna á skúrinn, sem datt í vor! Hann hlýtur að hafa borðað eitthvað sérstakt. Kannski það hafi verið rúgbrauðið. :)
Ég fór sem sé til Bs á fö. eftir að hann kom heim á bílnum. Margrét var heima. Hún fór á hjóli um morguninn í skólann, en hringdi svo um tíu, -hvort nokkur gæti sótt hana. Henni væri svo illt. Og auðvitað sótti herra Vogel, vinur Frau Kühle hana um leið. Tók mig svo með í bakaleiðinni og ég hjólaði á hjólinu hennar heim. Gott að eiga góða að. Hún er alltaf svo slöpp fyrsta daginn. Ætli konurnar í fjölskyldunni kannist ekki flestar við þetta ástand.
Nú, nú. Ég fann ekki miðann, sem ég skrifaði heimilisfangið á. En var alveg með það á hreinu að þetta væri gatan, sem liggur bak við leikhúsið. Og mundi nokkurn veginn nafnið á rúgbrauðs-flutninga-konunni. Legg bínum í Welfenhof að venju. Kann nefnilega ekki á neitt annað parkhús:) Geng svo nokkuð langa leið, og finn straks númer 3. En hvergi sé ég nafnið. Enda með að hringja á allar bjöllurnar, en verð engu vísari. Hringi heim, og reyndar finnur Margrét miðann. Þá var þetta allt önnur gata. Margrét segir mér svo til um leiðina, og ég geng og geng. Geng og geng. Er að verða komin út á svokallaðan Ring þegar mér fer að hætta að lítast á þetta. Spyr skokkandi konu, sem segir að þessi gata sé samhliða götunni, sem ég var á! Ég er því búin að fara í austur allan tímann í stað þess að fara í suður! Hann rigndi eins og honum væri borgað fyrir það. Og holdvot og reið út í sjálfa mig að hafa ekki leitað betur að miðanum heima, kom ég loks að húsinu. Voða indæl kona, sem lét mig fá brauðið og silunginn. Bauð mér inn, sem ég vildi ekki þiggja, svona holdvot. Buxurnar voru blautar upp að hnjám þó að ég hafi verið með regnhlíf! Og labbaði svo í bílageymsluna, alls í meira en einn og hálfan annan tíma á labbi:) :)
(Það var samt hið besta mál því ég var farin að þyngjast aftur. Veitti ekki af labbinu.)
Það var indælt að smyrja sér rúgbrauðsneið með saltreyði, nammi namm. !
Af hverju eru sumir svona svona vitlausir eins og ég er oftast!
Á morgun komu svo fyrstu bekkingar í gæsluna. Er spennt að upplifa hvernig liðið er. Við skiftum þessu í tvo hópa á fö., og vonandi verður þetta góður hópur, sem ég fæ.
Best að fara nú inn á síðuna hjá Kristínu og skoða myndir.
Til hamingju með afmælið Láki frændi. Það hefur líklega verið kaffi í Norró í gær. Mig vantaði í það. Ekki spurning.Og örugglega var fjör hjá Möllu í afmæli Kristjáns.
Klaus lá yfir handboltanum Ísland -Frakkland í morgun. Ergilegt að þessir franskbrauðskallar hafi unnið. En silfur er nú líka flott. Til hamingju Ísland.

2 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir kveðjuna, já hér var glatt á hjalla. Fyrsta skipti sem við höldum afmæli og krakkarnir geta ekki verið úti að leika (það rigndi svo mikið). 40 manns í kaffi takk fyrir!! En samt voru a.m.k. 10 sem komust ekki. En allt gekk þetta vel og ég var með einvala lið sem aðstoðaði við frágang, uppvask og fleira. Allt orðið hreint og fínt aftur um kvöldmatarleitið.

Kristín E. said...

Gott að heyra að silungurinn og rúgbrauðið skilaði sér á endanum :þ og gott að þú sért svo jákvæð að þú sjáir að þú fékkst fínan göngutúr út úr þessum útúrsnúningum :o)
Takk fyrir bloggiðhx