Friday, August 8, 2008

Aleinar heima og engir gestir.

Föstudagsmorgunn, og rólegheitin óvenjuleg. Klaus farinn í vinnuna. Svo ég vakna klukkan 7 alla mogna. En kúri nú áfram. Í morgun þvílík leti. Ekkert farið út í bakarí að ná í rúndstykki handa gestum, eða verið að þrífa eftir ferðlag eða áður en gestir koma. Maður bara veit ekki hvað á að gera við tímann :) Nei, ekki skortir nú verkefnin þar sem garðurinn er fullur af illgresi, og greinum, sem þarf að klippa. Það er búið að vera yndislegt að hitta alla þessa ættingja bæði í Köben og hér undanfarið. Það var svo gaman að hafa Möllu og Össa hérna, og fá að kynnast Skaðræðisgripnum--ég heiti ekki skaðræðisgripur !. Og ekki bætti nú úr skák þegar Ádda frænka kallaði hann orkubolta. Ég heiti ekki orkubolti! En hann Kirstján er með ótakmarkaða orku. Það er sko staðreynd. Og sætur er hann og mikil rúsina. Einar er voða blíður og fékkst alveg til að vera í fanginu á Margréti frænku. Hún var líka dugleg að vera í boltaleik við þá, og sinna þeim. Það er ómetanlegt að fá að vera þessum krökkum, og kannski þeir muni eftir okkur úr þessu.
Ég gat bara allt of lítið dekrað við Möllu. Þau voru svo sjálfstæð að þau fóru bara ein í tvö skifti. Fyrst í Zoo í Hannover, og svo í Erse park, en þá fór Margrét reyndar með. Þau voru heppin með veður. Núna er hér úrhellisdemba. En einn af dögunum notuðum við í BS. Þá gat ég passað innkaupapokana fyrir Möllu, (það kom samt enginn til mín og klappaði á bakið á mér og sagði "stakkels" eins og við Affí í Fields!) og boðið henni upp á kók og köku í Möwenpick. :)
Þórdís--það var sko risa berjaterta--Hvenær kemur þú næst!? :) :)
Össi var nú ekki í vandræðum með að hugsa um strákana og þeir fóru einir í ferð að skoða í mótorhjólabúð, og borðuðu á Burger King. Svo hittum við þá í Schlossarkaden í BS. Össi var svo fenginn til að krydda kjúklinga og sjá um stikingu.( Nammi, æðislegir. ) Einar var nú hissa á því. Malla sagði að nú þyrftu þau heim til að elda."ætlar Ádda ekki að elda handa okkur?"
Við Malla fórum í eina góða hjólferð eitt kvöldið. Reyndar var orðið dimmt þegar við vorum komnar af stað, og ég fór með hana á dimman stíg, en enginn réðst á okkur :)
Þetta var bara allt of stutt, en verður bara lengra næst.
Og svo bíð ég eftir hinum "skvísunum" í heimsókn. Sendi þeirra börnum ekki neitt því þau verða að koma hingað svo ég geti gefið þeim pínu gjöf, og keypt ís og slíkt. ( stubbarnir fengu nærbuxur frá gömlu frænku)
Og svo eru þau að fljúga heim í dag. Vona að allt gangi vel.
Stuttu eftir að þau fóru var svo hringt. Sigga hans Stefáns Arnar á leiðinni frá Ítalíu, hún, Stefán Örn og þær tvær yngstu. Þau komu svo við í kaffi í gær, og stönsuðu í hálfan annan tíma á leiðinni til Flensburg. Dæturnar vildu gjarnan komast í innkaupamiðstöð. Kannast maður nokkuð við slíkt :)Stefán Örn vildi ekki fara að stansa í Hannover eða fara til BS. Í Flensburg væri rosa innkaupamiðstöð, og nú vill Margrét komast þangað líka :) :) :)
Það var SVO gaman að hitta þau. Sigga alltaf svo indæl og jákvæð. Stelpurnar svo greinilega vel upp aldar og kurteisar, og mestu myndarstelpur. Það er ekki lítils virði fyrir Margréti að fá að kynnast þessum frænkum og frændum. Finna að hún er ein af stórum og glæsilegum hópi, sem er hennar fjölskylda. Við erum svo heppin með fjölskyldu. Allir hafa galla, en kostirnir vega meira. Allavega er ég alsæl !!!!
Stefán Örn lítur svo vel út, og hann er svo kátur og hress. Hann er greinilega búinn að finna sinn stað í tilverunni. Og Sigga er mamma og amma fram í fingurgómana, með börnin og barnbörnin alveg í næsta nágrenni. Fimmta barnabarnið á leiðinni í nóvember, og amma Bibba væntanleg, líklega með Sirrý.
Nú. Að öðru leiti er það bilaður bíll, sem er aðalmálið í bili. Gírkassinn er ónýtur i 6 ára bláa bílnum! Ekki var það mikil ending. Hann er líklega um það bil 10 þúsund evra virði í dag. En viðgerðin kostar um 4500 evrur. Klaus er að pæla í því að selja hann og kaupa nýjan. Ef till vill þá ekki VW, en það er enn á henni huldu. Svo hann ekur á mínum í vinnuna, og við Margrét erum bíllausar. Morguninn, sem við fórum með Möllu til BS, ók ég honum í vinnuna, og sótti svo eftir bæjarferðina. Það er kostur að vera bílaus hvað það snertir að við fórum þá á hjóli :) Gott fyrir líkamann. Enda er ég komin niður í næstum 75.5 eftir allt labbið í Köben og hjóltúra og vinnu í húsinu undanfarið. Frábært.
Margrét fór til læknis út af vörtum á fingrum. Það var sett á þetta sýra, sem hana sveið illlilega í. En verkar þá vonandi vel. Fer aftur næstu 4-5 vikur í framhaldsmeðferð. Ég lét líta á fótinn á mér, en eins og vanalega segir Weiland að þetta sé bara út af því að ég hafi verið í lélegum skóm, og myndaði ekkert eða skoðaði vandlega. Fékk verkjatöflur til að taka ef ég losna ekki við verki.
Við Margrét liggjum svo inn á milli í sápunni okkar, sem er voða spennandi. Bölvum þessum ólympíu leikjum, sem gera það er verkum að sápan er bara annan hvern dag :)
Tókum okkur mynd á leygu í gær. Sweet home Alabahma. Voða sæt og alveg í okkar anda.:)
Svo er hann að stytta upp, og meiningin að fara í góðan hjótúr ef veður er í lagi.
Á morgun heldur Daniela upp á afmælið sitt. Boðin í kaffi til hennar til BS.
Vona að pabbi og mamma fari nú ekki að veikjast að ráði og verði bara hress með sín hjarta og lungna vandamál. Þess óskum við svo sannarlega.
Góða helgi og hafið það gott. Affí -ekki ganga fram af þér við íbúðarstússið á Snorrabrautinni.. Guðbjörgu langar til að sjá ykkur. Líttu nú inn til hennar eða hringdu allavega. Og Þórdís--ertu svo komin á kaf í náminu?
Er loks að fara að líta á síður með myndum, sem ég hef ekki gefið mér tíma til að skoða.
Takk fyrir allt. Takk fyrir heimsóknir og kveðjur. Ykkar Áslaug ánægða :)

6 comments:

Anonymous said...

Jæja mamma, þá eru það bara 3 vespur á línuna!! Ódýrar og sparneytnar!! Við erum að fara til Dalvíkur í kvöld á fiskidaginn mikla og ætlum að tjalda þar í nótt! Svo á morgun verður lagt af stað í sumarbústað í Munaðarnesi..og ég þarf ekki að mæta í klámið fyrr en á fimmt.morgun! Yeesss! Ég fæ smá frí. Æðislegar myndir, ég hugsa bara til okkar Möllu í köngulóakjallara Estrid!! Við Fúsi erum svo með gsm ef þið saknið okkar geðveikt! Ástarkveðjur Arnhildur pornodog

Anonymous said...

Spes kveðjur til Margrétar sem er bara yndislegasta manneskja í heimi. Og ég sakna hennar mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mikið mest!!Lov jú þín söster

Anonymous said...

Hér erum við komin í Bleikargróf sæl og ánægð !!! Skiluðum bílaleigubílnum með ljónsbitinu og konan bara brosti, við búin að hafa áhyggjur af því að skila honum svona en allir bara glaðir, gott gott. Komst í Damen H&M í Trier og í C&A líka!!! Geggjað !! Kærar þakkir fyrir allt, mér fannst þú ná helling að dekra við mig, fórnaðir hjónaherberginu og ýmislegt fleira fyrir okkur. Kossar til Klaus og Mangetar eins og KÖ segir,hehe.

Kristín E. said...

Er loksins orðin nettengd hehehe komin í Steinahlíðina og auðvitað beint í tölvuna hehehe
Er að vinna upp lestur á bloggum síðustu vikna, ætla ekkert að blogga fyrr en ég kem heim sjálf.

Anonymous said...

Bara búið að vera mikið um að vera hjá stóru systur. Gott. Og ekki verra að sjá að það fer ekki allt til fjandans þó ekki sé þrifið og stússast í svolítinn tíma. Við Sigyn liggjum í bælinu kl. 11 á sunnudagsmorgni og reynum að losna við þreytu og strengi eftir þramm yfir Fimmvörðuháls í gær, 8,5 tímar og heljarmikið labb, frábært land og ótrúlegt útsýni en bara ansi krefjandi og maður finnur það alveg á skrokknum á sér að hann fékk að finna fyrir því í gær. Sendi ykkur myndir og frásög síðar. En það var ótrúlega gott að komast í heita pottinn í gærkvöldi. Láki Palli í bústað rétt hjá okkur og við ætlum að sjá hann í dag. Jói í Álftagerði nýbúinn að vera. Annars allt gott. Kv. Diddi

Anonymous said...

Já maður verður nú að fara að kíkja til ykkar, stefnum á að fara erlendis næsta sumar ef kreppan verður ekki búin að setja alla á hausinn...

Arnhildur - á einhvernveginn vel við að the pornodog fari í sumarbústað í MUNAÐAR-nesi, hehe...

Var að koma úr bústað með vinkonum mínum, frábær helgi sem endaði þó með því að Dagur Elís nældi sér í ca. 30 flísar neðan í fæturna af sólpallinum og móðirin situr nú sveitt í afslöppun eftir að hafa plokkað þær úr :(

Styttist í skólabyrjun, Hildur heldur áfram ökunáminu, Dagur kominn í skólahóp á leikskólanum og Helga komin heim í heiðardalinn eftir langa dvöl hjá ömmu Maddý.

Biðjum öll kærlega að heilsa!