Wednesday, August 27, 2008

Mætti barasta aftur í pilsinu!

Næstum komið að kvöldmatartíma. Indælis veður, þó að dálítil gola hafi verið. En alveg sólarlaust. Tók baðherbergið vel í gegn í morgun. Með smá tiltektaræði í skúffum og svoleiðis. Það var nú ekki "orden" í hlutunum þagar Malla var hérna. Hún gat ekki tekið mynd af tannkremstúbbunum í réttri röð, og raðað á vixl með efri og neðri endana :) Nei, þetta var engin frammistaða. En motturnar hanga núna úti, og allt glansar,- svona ef ekki er horft mikið út um gluggana :)
Fór í pílsinu góða, í leggings, og aftur var ég spurð að því hvort þetta væri skandinavísk tíska :) Já, við erum nú öðruvísi en þær þýsku.
Vona að hún Malla fari nú ekki í "heimabuxunum" aftur. Þetta er bara skandall (hahahahaha)
Allt gekk vel í gær og dag í vinnunni. Nema hvað ein kotroskin Sara kom með okkur út að strætó, en hún átti að fara á bílastæðið hjá leikskólanum. Akkurat í hina áttina. Og hún sagði ekki neitt fyrr en við vorum meira en hálfnaðar! Svo ég skildi við hópinn eftir að hafa fullvissað mig um að Louisa, sem grét daginn áður, væri brött, og gæti farið ein á leiðarenda. Og flýtti mér svo öll ósköpin með Söru. Pabbinn farinn að leita að henni:)
Fiskur og salat í dag. Bar út blaðið fyrir söfnuðinn. Og er svo að bíða eftir að Klaus komi heim. Vonandi á þeim bláa. Og ef svo er, þurfum við til BS á eftir til að ná í minn litla.
Í gær hringdi Frau Kühle í mig. Það vantar einhvern, sem getur tekið stelpu í 5. bekk í enskutíma. Mamman hringdi svo í mig, og stelpan ætlar að koma næsta þr., og ef okkur líst vel á hvor aðra, verður hún í tíma hjá mér einu sinni í viku. Svo er ég að spá í að athuga um vinnu í Studienkreis, sem er hópur, sem sér um að hjálpa krökkum með heimanámið. Þar vinna t.d. mamma hennar Kristinar Draheim, og Erika, sem er forfallakennari í skólanum okkar og ein, sem ég vann með í foreldrastarfi fyrir löngu. Veit ekki hvort þörf sé á fólki, en get að minnsta kosti athugað það. Væri ekki verra að fá smá vinnu!
Margrét fór í píanótímann í gær. Komst með kennaranum, sem var með tíma hérna rétt hjá. Frekar óþægilegt að hafa ekki bíl. Klaus kom snemma heim svo ég gæti sótt hana. Ekkert í sjónvarpinu í gær, og ég var komin upp í rúm fyrir klukkan 9! Ekki er nú segjandi frá því :)
Arnhildur mín. Mér líður heldur ekki betur þó að þessir "drengir" hafi unnið silfur fyrir að fá að dúlla sér með bolta :) En þetta er víst betra en þegar verið er að þvælast í bænum, eða ræna og rupla. Margrét fer í leikfimi á morgun. Það á að fara í sund. Henni til mikillar skemmtunar. Ætlar að segjast vera forfölluð áfram, híhí. Styð hana alveg í þessu.
Er ég að skilja það rétt að Svanhildur mágkona sé að vinna við masters ritgerðina? Hvenær ertu þá búin heillin mín, og ætlar þú að vera í frönsku að gamni í vetur??? Ertu eitthvað að kenna líka? Varla með Arnald heima.?
Skil vel að það hafi verið tómlegt heima hjá Affí eftir að ungarnir flugu úr hreiðrinu. Held að engin manneskja sé jafn heppin og Sigga hans Stefáns Arnar, sem er með ÖLL börnin og barnabörnin alveg í nágrenninu. Það kalla ég sanna lífshamingju. Enda hlakka ég til jólanna á Íslandi í vetur !!!! Það er orðið SVO langt síðan ég hef getað faðmað hana Arnhildi mína að mér, og knúsað Kristínu. Veit að Fúsi saknar þess líka að ég hafi ekki faðmað hann lengi!

3 comments:

Kristín E. said...

Flott hjá þér að vera í skandínavísku tískunni :o) um að gera að vera aðeins öðruvísi
Bið að heilsa Margréti sundfrænku :þ ég er fín í sundi þessa dagana en var sko ekki hrifin af sundtímum í grunnskóla hehehe

Anonymous said...

Úff það snertir mig svo sannarlega þetta silfurlið í handbolta... ég sat og grenjaði nánast allan tíman meðan Ólafur Ragnar forseti hengdi á þá fálkaorðurnar í kvöld. Ég veit, ég er alveg milljón :S
Gangi þér vel í sundinu, sundfrænka ;)

Anonymous said...

Já það er um að gera að halda skandinaviska þankagangnum við og tískustraumum líka.

Já ég ætla að fara að drífa mig áfram með þessa M.A. ritgerð, hef látið vinnu trufla hana um of síðustu misseri. Og með því ætla ég já að taka smá frönsku og verð svo að vinna eitthvað í skólanum - með Arnald Kára heim. Við skandinavisku konurnar getum gert svo margt í einu!!! Ha ha ha! Svo er bara að sjá hvort að þetta spilast ekki allt vel saman. Arnaldur Kári útskrifast þá kannski bara með mér næsta vor (vonandi, vonandi að það geri ég í það minnsta) eftir að hafa tekið þetta allt með mér :o)