Sunday, August 3, 2008

Gott að vera komin heim.

Ætla að gefa mér smá stund til að blogga. En það er ansi margt, sem gera þarf þegar maður hefur verið i burtu í tvær vikur. Er búin að þvo þvott í tvo daga, og í dag er verið að strauja skyrturnar af Klaus, og öll nýju fötin og fleira. Svo er allt í kássu í garðinum, og þarf að gera smá skurk. En þar sem Malla er komin með sína 3 kalla, er maður ekkert að hugsa um garðinn, heldur að vera bara með þeim. Reyndar fóru þau ein til Hannover í dýragarðinn. Við Margrét erum rétt búnar að vera þar, og slepptum því þess vegna. Fínasta veður þó að skýjað sé af og til.
Malla færði okkur nammi, og kom með glas eins og það sem litli Lukas braut. Það var nú fallega gert. Á eftir að ath. hvort mamman ætli í alvöru að borga það, en fer nú ekki í nein illindi út af því. Svo kom hún með þetta líka fína vesti á mig, sem Maddý prjónaði úr ull. Algjörlega æðislegt, og verður nú undirrituð fín þegar kólna fer í veðri! Lilla tók líka þátt í þessu með því að þvo upp og laga til á meðan Maddý sat sveitt yfir prjónunum :). Takk kærlega þið yndislegu móðursystur!
Ferðin heim gekk vel, og Klaus sótti okkur á lestarstöðina eftir töf í Hannover vegna seinkunar. Við röltum bara um stöðina á meðan og ég fékk mér kaffi.:)
Randver þufti út á völl, á leið til Íslands í brúðkaup dóttur sinnar, fyrir klukkan 11 sama daginn og við fórum. Svo við settumst út í garð með töskurnar í skugganum, og saumuðum út í meira en klukkustund. Röltum svo á stöðina. Ég vildi ekki fyrir nokkurn mun þurfa að ganga frá viðvörunakerfinu ein. Ef eitthvað skyldi nú koma fyrir. Randver faðmaði okkur og kallaði okkur elskuna sína, og þakkaði fyrir samveruna. Ég er svo sannarlega velkomin aftur, og hann vill allt fyrir okkur gera. Ég held að Eiríkur ætti að fá Fúsa til að redda rafmagninu fyrir sig, og við kæmum í "Áslaugar dejlige Danmark ferð" aftur,-- ég, dætur og co. :) :) :)
Ekki væri nú verra að hafa Maddý með í þeirri ferð!
Húsið er skemmtilegt. Eina er að baðið er hálfgerð bora, en alveg frambærilegt. Garðurinn stór og fínn, og eldhúsið flennistórt. Það er greinlegt að margir koma þar við sögu, og ég reyndi að þakka smá fyrir okkur með því að taka örlítið til í skúffunum svo að ég létti smá undir hjá Eiríki. Randver átti bara ekki til orð yfir dugnaðinum. Svo settum við nýju rúmfötin á rúmin, sem við gistum í, og vona að Eiríki falli þau í geð. Reyndum að nota sem minnst af hans dóti, en stálumst smá í te og slíkt þangað til ég var búin að kaupa mér instantkaffi. Randver sagði okkur að nota pressukönnuna, en ég fór nú ekki að nota kaffið , sem til var í það. Maður vill nú ekki vera að fara fram á of mikið.
Við erum óendanlega þakklátar fyrir afnotin, og ég vona að þið, Diddi og Sigyn , skilið þakklæti til Eiríks frá mér.
Það var margt, sem við sáum og gerðum.
Strikið gengið upp og niður. Og svo hliðargötur eftir að við uppgötvuðum hvað þær væru skemmtilegar. Fórum í Jóns hús, sáum Sívalaturninn, vorum í St.Pauls kirke, skoðuðum höllina og gengum að hafmeyjunni. Sáum Gefjunargosbrunninn, gengum eftir Nyhavn, fórum í Christianíu, og í gegn um Rosenborgarhallargarðinn. Ókum í gegn um Svanemöllen í rútu þar sem S-toget gengur ekki til Farum út af viðgerð. Og sáum þar af leiðandi margt fallegt út um gluggana. Stórskemmtilegt svæði þar, sem minnir á enskar byggingar. Löbbuðum um Bagsværd, og sáum hús Estrid og Mik. Ókum með strætó til Ninu og Svend, og það var líka frábært. Fórum í þessa frægu siglingu í höfninni, og komum blautar en hamingjusamar úr því :) Farið í Fields, og verslað i Magasin. Labbað oft í búðir í hverfinu við hús Eiríks, og dáðst að húsum í leiðinni.
Áttum æðislegan dag í Malmö, sem er svo falleg og vinaleg borg. þar settumst við í rútu, sem ók okkur um alla helstu staði. Sáum dýrasta húsið í bænum, gamla kalknámu, fallegasta leikvöll í heimi--ekki lýgi, og skakka byggingu, sem er með einhverja dýrustu leygu í bænum.
Á eftir röltum við um bæinn, og komumst á útsölu í Noa Noa, þar sem ég fékk æðislegan hvítan sumarkjól, og topp, og Margrét fékk peysu. Fann líka á mig stuttbuxur, svo ekki var nú þessi ferð slæm :)
Sátum úti og borðuðum snúða og drukkum Rammlösa vatnið með góðri lyst.
Það er ekki nema 20 mín. ferð á milli Kastrup vallarins og miðbæjar Malmö. Vel þess virði að fara.
Og ekki var það síst í ferðinni að hitta ættingjana. Við hittum sem sé Björgu, og svo hana og kærastann seinna í kaffihúsi í bænum. Hittum Ninu og Svend. Fórum til þeirra í mat. Til Birthe í mat og þangað komu Guðbjörg, Sverrir og krakkarnir! Birthe ók okkur til Bagsværd svo við gætum heilsað upp á Ullu og hitt manninn hennar. Komum við í húsi Anders, sem er í USA og Guðbjörh gistir þar. Fengum að skoða það, og Margrét var ekki lítið hrifin af herbergi elstu dótturinnar. Stórt, og með svölum! Verulega skemmtilegt hús. Og svo er Anders að gera upp kjallarann, og útbúa bað þar niðri. Allt á hvolfi, og dót um allt í garðinum og svefnherbergi þeirra, sem von er. En þetta getur hann og gerir.
Margrét var ofsalega hrifin af Birthe. Hvað hún væri falleg og góð og hress. Sem er svo sannarlega satt. Íbúin hennar er líka mjög skemmtileg. Notaleg og hlýlega innréttuð. Sem passar við hana. Já, Diddi. Takk fyrir að þú pressaðir á mig að hafa samband við hana. Ég er svo léleg að bjóða mér í heimsóknir.
Jæja. Malla var að hringja. Þau eru að fara að leggja af stað heim úr Zoo. Best að koma sér í sturtu eftir allt strau-standið. Er rennandi sveitt í hitanum. Svo eru kjúklingabitar frá Tulip í matinn. Einari þótti nú gott að fá grjónagrautinn í gær, og Kristján stundi af vellíðan yfir grautnum. Þeir eru voða sætir og fjörugir. Ósköp normal og heyrist alveg í þeim, en engin frekjuköst eða neitt þannig. Hún Malla mín getur nú alið upp börn, ekki satt!!!
Vona að vitlausramannahelgin hafi verið góð hjá ykkur öllum. Bestu kveðjur frá okkur í hitanum.

2 comments:

Anonymous said...

Gaman að sjá og heyra að allt gekk vel hjá ykkur. Já maður þarf stundum að ýta við þér vegna einhverrar feimni við að trana þér fram - eitthvað sem þú hefur eflaust fengið frá pabba. Malla verður vonandi þæg og ekki of kröfuhörð á þig - eða þannig. Erum við Álftavatn, ein, og allt í rólegheitum eftir skemmtilega viku með fólki og styttri og lengri skemmtiferðum.
Bið að heilsa. Diddi

Anonymous said...

Greinilega gaman hjá ykkur í köben. Hörður gifti sig í þessari kirkju sem er mjög falleg bæði innan sem utan. já húsið hans Eiríks er yndislegt, veit ekki hvað við eigum að gera fyrir hann í staðinn fyrir þessar tvær gistinætur, og ég tók ekki einu sinni til í húsinu!!enda lítill tími og við þar aðeins yfir blánóttina. Vorum að koma úr ferð með hafdísi og sibba, fórum um svæðið kringum gæsafjöll, kröflu, Eilíf, Hlíðarfjall. Gistum í bílnum og þvílíkur munur eða kúldrast í köldu tjaldi, enda er ég ekkert slæm í bakinu eftir ferðina. skrifa meir um þetta seinna. Annars allt í góðu hér fyrir utan blóðþrýstingsvandamál mömmu, en vonandi er það bara spurning um rétt meðul. Bestu kv til ykkar allra, er viss um að Malla og co eru jafn hrifin af húsinu ykkar eins og við Elli. Knús til Margrétar. kv affí