Þá er nú skólinn byrjaður, og allt komið í fastar skorður. Við vorum rosa dugleg að fara á fætur í morgun. Allir spenntir að frétta hvaða bekkjarkennara Margrét fengi, og hvað bekkjarfélaga. Hún kom skælbrosandi heim. Fékk loks eftir 5 ár aftur konu sem bekkjarkennara. Voða indæla, sem heitir því frábæra nafni Frau Portale. (portal merkir skrauthlið eða aðalingangur :))
Og svo fékk hún uppáhalds íþróttakennarann sinn. Herra Eckhoff, sem var bekkjarkennarinn hennar í 3 ár. Hann kann á hana, og er jákvæður gagnvart henni. Svo eru 7 stelpur úr gamla bekknum. Allar fínar stelpur. Enginn ömurlegur. ( að hennar mati :)) Nokkrir nýjir kennarar, sem hún þekkir ekki, og allt bara spennandi. Hún getur sofið lengur 3 morgna, jibbí segir gamla mamma. Fer í annan tíma mið., fim. og fö. Kemur heim klukkan eitt 3 daga í viku, og m.a. á föstudögum. Og er svo til 16.15 tvo daga í viku. ( þr. og fim.) Þessa tvo daga, sem hún er lengi, getur hún farið í nýju teríuna í skóla Doreenar. Svo geta þau líka verið í bókasafninu og lært í sérstökum kennslustofum. Okkur líst vel á og vonandi verður þetta allt bara frábært.
Ég fæ slatta af nýjum krökkum í vistun. Verð líklega að býtta á nokkrum úr gamla hópnum, sem verður sjálfsagt ekki vinsælt. Þau vilja öll vera áfram hjá mér. En það eru miklu fleiri úr 2.bekk hjá mér en hjá hinni. Og ég verð í stofu, þar sem einn fyrsti bekkurinn er, og liggur beint við að taka þann hóp til mín, en það er þá 12 krakkar úr þessum eina bekk. Alveg ótrúlegt. Svo við verðum eitthvað að púsla þessu. Skólahátíðin fyrir 1.bekk er svo á laugardaginn, og ég fæ liðið á mánudaginn.
Sú, sem ég vann með, Diana, fer í þorpsskólann. Er þar með 3 börn. Skólastjórinn var búinn að segja mér að hann léti mig ekki fara aftur. Og það er víst hrós :) Ines heitir sú, sem ég vinn á móti í vetur.
Hér er sól, og blíða. Var að taka til í geymslunni í morgun. Þvoði þvott, og fór svo í sturtu í rólegheitum. Fékk símhringingu rétt áður en ég fór í vinnuna. Hvort ég væri ekki frænka Bryndísar Ivarsdóttur,- ég helt nú það. Þá er þetta stelpa, sem vann hjá Bryndísi í sumar. Er stödd í BS í viku út af brúðkaupi. Og haldiði ekki að Bryndís hafi sent mér pakka með henni. Hverabrauð og silung!!!!!!!!! Mikið æðislega var þetta nú sætt af henni. Held að ég verði nú að hringja í hana þegar ég er búin að ná í pakkann. Fer vonandi þegar Klaus er kominn með bílinn á morgun. Hann kemur svo seint í kvöld.
Já, svo það er okkar ættar galli með tennurnar:) Ekki átti ég nú von á þessu, svona eins vel af Guði gerð og við erum nú. Allavega upp til hópa:) :) :)
Og Kristín telur ekki upp hvað hún hafi verslað hjá Arnhildi! Æ.æ.æ.--Líklega ekki nefnandi:) :) :)
Já. Diddi minn. Þetta er nú meira hvað íslenska sumarfríið hjá kennurum er stutt!
(Ekki það að mér finnst að krakkarnir mættu vel vera í fríi til sept.)
Við Affí höfum alltaf verið taldar sérlega líkar. (eða þannig) En það finnst víst eitthvað, ef grannt er skoðað, sem er líkt með okkur. Börnin okkar eru t.d. númer eitt, kallinn númer tvö, og við einhvers staðar þar langt á eftir :) Varla geta pabbi og mamma svarið okkur af sér:) Við erum náttúrlega mest líkar í vextinum!
Og svo á " Ég er með strákatennur" gaurinn litli afmæli á morgun. Til hamingju með drenginn Malla mín. Segðu honum að Ádda frænka biðji að heilsa orkuboltanum!!! Þá verður hann nú glaður :) Koss og knús frá okkur Mangeti.
Liggur liðið bara í ólympiu leikum heima? Hvurs konar er þetta. Þó að ég sé nú dóttir séra Arnar, íþróttaunnandans mesta, hef ég sama og ekkert séð af þessu. Heyri bara af og til--við fengum gull!
Efa ekki að Bjössi sé frábær í þessu. Góða skemmtun.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Gott að heyra að Margrét sé sæl með nýja kennarann og nýja nemendahópinn :o)
Yndislegt hjá Bryndísi Ívars að senda þér silung og rúgbrauð... það er gott að eiga góða að, ekki spurning :D
Farin að elda... þarf svo að koma mér í að blogga fljótlega en setti inn rúmlega 300 myndir á heimasíðu barnanna í gær...
Rosa gaman að heyra að Margrét er ánægð! Ég er líka ánægð,prentarinn hér er bilaður-engin porn framleiðsla í dag, og skjárinn á afgreiðslukassanum dó-ætli ég neyðist ekki til að fara með kassann í flug suður í viðgerð! Skólasetning í dag hjá börnunum-Alex er hjá okkur núna. Tengdó(Bjarki sko) gaf börnunum 5000kr hvorum til að kaupa skóladót...!!!Og hananú! Og dóttir mín fann sér geðveikt flott pennaveski á 200 kr. Týmdi ekki að eyða miklum pening í þetta..Áddugenin að brjótast fram!
Ætla að hætta þessu röfli-Ykkar Arrnhildur pornopornoullabjakk
P.S.Kristín! Þú gleymdir Baby Jesus butt plögginu hérna sem þú keyptir...!!:)
Æ gott að Margrét er ánægð í skólanum, börn eyða þar miklum tíma og auðvitað þurfa þau að vera ánægð þar ;) Takk fyrir afmæliskveðjuna, hér fór ánægður lítill 3ja ára gaur í leikskólann eftir langt frí, með ís handa vinum sínum.
hehehehe Arnhildur mín.... það var Siggi sem var að ræða þetta butt plugg ekki ég :S og svo var bara ekkert svona til hjá þér hehhehe
Þú kíkir í heimsókn þegar þú kemur með búðarkassann í viðgerð :þ
Post a Comment