Wednesday, August 13, 2008

Miðvikudagskvöld.

Til skiftis rigning og sól, og oftast hressilegur vindur. Við mæðgur njótum þess að eiga enn eftir eina viku, og tökum lífinu nokkuð rólega. En samt þarf nú að gera hitt og þetta. Í dag var herbergið hennar M. tekið í gegn. Garðurinn sleginn, og farið í gegn um bæklinga.
Í gær tók ég góða törn í illgresinu. Margrét var hins vegar eitthvað slöpp í gær. Hætti við að fara í afmæli Eriku, og við horfðum bara á sjónvarpið í staðinn. Í dag kíkti svo Hildegard til okkar á leið til vinkonu, sem býr ekki langt frá. Hún var með myndavélina sína með, og sýndi okkur myndir af Drífu og strákunum. Alltt gott að frétta af þeim. Á morgun ætlar Margrét með Doreen til Wolfsburg í bíó. Hún fór í annað sinn til læknis að láta setja á vörturnar. Svo keyptum við bækur fyrir skólann, og komum við í Netto. Klaus er búinn að fá gott tilboð í viðgerð á gírkassanum. Það er undir 4000 með vinnu og varahlutum. Það yrði þá gert við kassann í staðinn fyrir að skifta um hann. Eins árs ábyrgð á verkinu. Tekur allavega viku að gera við þetta svo það er bið á því að ég verði aftur á bíl.
Margrét ætlar að setja síðustu Köbenmyndirnar inn núna. Við erum svo góðar með bakpokann og Magasin plastpokann og magatöskurnar, ekki satt. :) Vorum nefnilega ekki með myndavélatösku, og ég nennti ekki að taka videóvélina upp úr bakpokanum í hvert skifti. Þarf að græja þetta betur næst. Svo er ég nú góð á hvíta bolnum, sem sýnir bumbuna vel, hm,hm. :) Mig vantaði líka belti þar sem allar buxur og græna pilsið eru orðnar svo rúmar á mig, og allt hékk utan á mér. Ég vona allavega að þið getið skemmt ykkur vel yfir þessum myndum.

No comments: