Okkur bregður við. Vindurinn er kaldur. Ég er hér skjálfandi á morgnana meðan ég er að komast í gang að byrja daginn. Skelfing er það gott að Margrét þarf bara tvisvar á fætur klukkan tæplega hálf sjö. Í gær var ég drulluslöpp af verkjum í munninum, og kalt. Skreið upp í bælið, og var þar til 11. Rétt náði að koma mér í sturtu, og fara í vinnuna. Þar var mikið að gera. Lét krakkana búa til lítinn flugdreka úr bylgjupappír, og binda slaufur í öll hornin. Voða fjör, og í dag klára þau, sem ekki voru eins fljót í gær. Var bara með fyrsta bekk, og fæ hin 10 í dag til viðbótar.
Hafði engan tíma til að fara inn á kennarastofuna, og á eftir í hvelli í Netto að ná í fiskbita. Eldaði svo og bjó til salat. Var enn að tyggja þegar Merle kom í enskutímann :) Svo var brunað til BS. Fórum með svuntuna og blússuna til Mövenpick. En þá var konan sem Margrét átti að hitta, upptekin, og við þurftum að bíða til rúmlega hálf fimm. Skruppum því í bæinn, og kíktum í uppáhalds búðirnar. Margrét fékk svo skjal og umsögn um frammistöðu. Bara góða umsögn. Hún var hálf vonsvikin út af fréttum frá einni, sem vann hjá Ritz í Wolfsburg. Hún fékk að vinna sem gengilbeina og hafa samband við kúnna. Fékk svo 55 evrur í viðurkenningarskini. En Margrét lærði að vinna hörðum höndum. Það er líka mikils virði.
Svo ókum við til Gifhorn. Rétt náðum tímanum, en eins og alltaf var bið. Ég fór á meðan í bæinn og gat látið laga gleraugun mín. Fékk útsaumsgarn fyrir mömmu. Það kom sól seinni partinn, og var reglulega fallegt veður.
Núna ætla ég til tannlæknisins til að athuga hvort það sé eðlilegt að ég sé enn með verki eftir aðgerðina. Er enn með bólgu og finn til. Eins og tannpínu. Get ekki lifað á verkjatöflum endalaust. Búin að gera það í 5 daga.
Margrét er að fullorðnast. Hún verður sífellt skynsamari. Í gær kom hún heim frekar fúl út af því að hún var að fá hólf undir dótið í skólanum. Og aftur fær hún hólf neðst í skápnum. En hún gerði sér lítð fyrir og hringdi í fyrirtækið. Þeiri eiga enn nokkur tóm hólf, og hún gat skilað lyklinum, og fær annað. Efst uppi. Þá þarf hún ekki að krjúpa á hnjánum við að ná í bækurnar.
Takk fyrir kveðjurnar. Ætla að fara inn á bloggið hennar Aldísar Dagmar. Mætti segja mér að hún gæti sagt sitt hvað!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
HæHæ.... skil vel að Margrét sé fúl að sumir fái borgað en aðrir ekki en þetta er samt ágætis kennsla í að sjá hvernig lífið gengur fyrir sig :S
Bestu verðlaunin er að hafa staðið sig vel.
Var að blogga aftur!!! Set bara met hehehe
Bið að heilsa öllum.
Hæ hef haft lítinn tíma til að tjá mig um þessi blogg! Bilað að gera í vinnunni..og þá meina ég að það er allt hérna að bila, afgreiðslukassinn,prentarinn,plöstunar
vélin,verðmerkibyssan og fleira. Bleh! Við Fúsi unnum bæði verðlaun fyrir flottu búningana okkar-vorum æði með afró hár! Og ég fékk spes verðlaun fyrir að vera síðasta manneskjan í ratleiknum (sko var síðust inní húsið)! Sendi Margréti minni fljótlega myndir!!
Ykkar pornodoggg Arnhildur
úff ég sendi kveðjur með hraði héðan úr rokinu, meira veðrið!!!
Post a Comment