Langt liðið á fö. Búin að fara til tannlæknis bæði í gær og morgun. Hún segir að ígerðin sé í beininu og það muni taka viku eða meira þar til hún sé farin. Gaman. Er alltaf með verki á kvöldin og morgnana. En tvær verkjatöflur á dag eru ekki slæmt-segir hún. Vonandi er það rétt. Meiningin svo að geyma að gera brúna í 8 vikur. Til að beinið og tennurnar nái sér eftir sýkinguna. Er eitthvað að færa sig til eftir þetta allt. Kostnaðurinn er um 800 evrur. Til hvers borgar maður nokkur hundruð evrur á mánuði til sjúkrasamlagsins! En ef ég er til í að vera með gull í brúnni verður þetta eitthvað ódýrara. En nógur tími til að huga um það. Fer svo á mánudaginn til að láta setja nýjan saum og sótthreinsandi. Hún hefði þurft að segja mér frá munnskolinu straks eftir aðgerðina. Núna er þetta sótthreinsað í hvert sinn, sem ég fer til hennar. Og á að duga.
Hann var kaldur í nótt. Frosið á rúðunum þegar ég fór með Margréti í skjólann. Það var myndataka í dag, og hún vildi gjarnan losna við að láta hárið allt ólagast í vindi á hjólinu :) Sótti hana svo klukkan 1. Klaus setti miðstöðina á eftir margra mánaða hlé. Vorum bara með hita á vatninu. Það sparar peninga ef maður hugsar um að minnka hitann. Hér hækkar allt jafnt og þétt.
Sól i morgun, en ský eftir hádegið. Besta veður. Arnhildur sendi fínar myndir af þeim Vigfúsi. Margrét ætlar að setja þær fljótlega á bloggsíðuna. Líst vel á að Þorgerður sendi mér nokkrar myndir af hennar börnum. Þarf svo að fara inn á síðu Kristínar að skoða síðasta hlutann af sumarmyndunum. Eins er ég ekki búin að skoða myndir af Ástþóri og Arnaldi lengi. Maður er svo bissí :) Reyndar er ég eitthvað löt. Kom ekki í verk að baka í gær, en geri það um helgina.
Doreen kom í ensku kennslu gær. Það gekk vel. Hún er voða indæl, og vel upp alin. Ekki hægt að segja það um alla. Einn í gæslunni var látinn fara heim í dag þar sem hann réðst á einhvern á skólalóðinni. Mamman sótti hann. Til allrar hamingju var þetta áður en ég kom. Allt á fullu við að panta tíma hjá sérfræðingum til að láta rannsaka drenginn. Mikið á ég gott að eiga þessar yndislegu dætur!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Birna vinkona tók helling af myndum af Arnhildi í búningnum, fattaði ekki fyrst hver hún var, sá bara þessa brjálæðislega flottu gellu. Var alveg bit þegar hún sá að þetta var sama óframfærna stúlkukindin sem yfirleitt klæðist litlausum fötum og hefur sig lítið í frammi. Hún bað mig að segja Arnhildi að hún væri þvílíkt glæsileg og ætti bara að flagga því á hverjum einasta degi, svo falleg og frábær- og hananú! Þessu sem sé komið á framfæri og ég fæ svo myndir hjá henni til að sýna liðinu, þær eru frábærar. Hér rignir með roki og tilheyrandi, klippti rifsberjarunnann í dag og tíndi jafnóðum af greinunum berin svo nú get ég farið að ´sulta (hum, eins og ekki sé búið að sulta nóg í þessari fj.) Kv affí
Post a Comment