Monday, September 8, 2008

Seinheppin.

Held áfram þar sem hætt var á laugardagskvöldið. Eldaður fiskur. Var að borða hann sæl og glöð þegar ég fann eitthvað hart í munninum á mér. Til allrar hamingju gleypti ég þetta ekki. Því þetta var nefnilega gulltönnin mín. Sú fyrsta, sem ég fékk. Tönninni var haldið fastri með teinum, sem brotnuðu í sundur, og allt fór af í einu lagi. En teinarnir standa smá upp úr, og eru ekki beint þægilegir. Gat reddað þessu um helgina með því að setja vax yfir brotið. Fékk það frá Margréti. Hún fékk það fyrir spangirnar. Var svo að koma frá tannlækninum mínum, en fæ ekki tíma fyrr en á morgun, þrátt fyrir neyðartilfelli. Get reyndar farið til Gifhorn, en hlýt að halda þetta út með vaxinu í. Svo það er ýmislegt, sem á gengur :)
Kristín Dögg hringdi í gær að segja okkur frá óhappinu. Dugnaðarstelpa, og efast ekki um að hún hafi verið hörð af sér. Held að að amma þýska þurfi nú að senda henni smá verðlaun sem fyrst.
Takk fyrir kommentin. Hvað var þetta með mömmu í ríkinu? Var hún þar í alvöru? Vona að einhver geri skurk í þessu fyrir hana með augnlokaaðgerðina, og eins að tala við konurnar út af heimilishjálp. Mér skilst að liðið sé enn í Garði. (?)
Þorgerður á að fara í kórinn hjá Didda, ekki spurning. Góður félagsskapur, og gaman að syngja.
Var Affí að æfa sig fyrir myndatöku í bæklingnum hjá Arnhildi þegar hún reif sig úr fötunum á opinberu bílastæði. (eða þannig :)) Hahahahaha.
Veðrið um helgina var yndislegt. Við mæðgur slógum grasið, og rökuðum. Tókum plöntur og færðum til. Hreinsaði illgresi, og var hin duglegasta. Kvefið að hrella mig, en sólin hefur örugglega gert mig hressari. Svo var núðlubakstur i gærkvöldi. Í fyrsta sinn í langan tíma.
Klaus fór í göngutúr, og vann við að setja einhver forrit i tölvu Margrétar.
Margrét kemur heim í dag með Kathi. Kathi þurfti að mæta klukkan 8, og er á lagernum í dag og morgun. Þar af leiðandi fyrr búin. Vona að Margret komist líka með henni á morgun.
Stakk upp á því við Arnhildi að ég færi í vörutalninguna með henni um jólin. Henni líst náttúrlega þrælvel á þá hugmynd :) Best að fá Affí líka. Þá væri nú gaman að vera fluga á vegg. Hahahahahahahahaha.

5 comments:

Anonymous said...

Þá er það ákveðið, mamma og Affí verða að vinna hérna í Adam&Evu í jólatörninni! En þið verðið að muna að selja vörurnar, ekki bara segja ojjj. Og mamma passaðu að afi komist ekki í gulltönnina og láti smíða kross úr henni..hehe!
Dóttir mín er bara hress og fór með teipaða fingurna í skólann-má sleppa íþróttum á morgun!Takk fyrir kveðjurnar til hennar!("þykir þeim öllum svona vænt um mig"?! KDV)
já við erum æðisleg fjölskylda!
Óvissuferð með slökkviliðsgenginu næsta laugardag-og búningaþema,
minns ætlar að vera foxy Cleopatra úr Austin Powers og Fúsi verður með geðveika afró hárkollu! Hlakka frekar mikið til!! :)en samt mest að sjá Fúsa með hárkolluna og í glansandi seventies fatnaði!!!
Kveðjur úr lið og frá Arnhildi
the porno queen of Akureyri
(sérstaklega þar sem þetta er svona eina dóna búðin!)

Anonymous said...

Árnhildur náði rétt að vera á undan mér með athugasemdina um gulltönnina og pabba hehe, greinilegt að við hugsum líkt. Þetta með mömmu og brennivínið er gömul saga ( alltaf þó jafn góð og fer enn jafnmikið í taugarnar á henni). Þau bjuggu í sveitinni og voru á leið til Ak með Didda sem að sjálfsögðu hafði tekið að sér að kaupa brennivín fyrir hálfa sveitina, en komst svo ekki í bæinn eftir allt saman og sendi mömmu fyrir sig eftir búsinu. Sú gamla var með VÖ minnir mig og tók hann með í ríkið ( he he) þar sem hún fyllti körfu af alls konar eðalvínum (eða þannig) en svo skemmtilega vildi til að sjónvarpið var á ferðinni að mynda í ríkinu ( ástæðuna man enginn lengur) og þar var prófastsfrúin sem sé mynduð,gripinn glóðvolg með barnabarnið og allt brennivínið í kerrunni. Leit frekar illa út fyrir múttu gömlu. Að vísu sást henni bara rétt bregða fyrir í mynd, en sagan er miklu skemmtilegri þegar sleppt er að segja frá því. AF HVERJU fara fúsi og Arnhildur ekki dressuð í latex og annað pornódog dót???? Myndu slá í gegn!!! Annars,, skólinn byrjaði í dag svo framundan er nokkuð hressileg vinnutörn en allt gengur vel. Kv affí

Anonymous said...

Já ég hugsaði eins og Affí, hjúkkugalli á Arnhildi úr bestu búðinni og eitthvað geggjað á Fúsa líka, tihi

Kristín E. said...

hehhehe
en held að það verði engin hætta með sérann og gullið... hann benti mér á það í sumar að gullbrúin mín væri úr of linu gulli (minnir mig) ekki nógu hreint allavegana til að vera þess virði að búa til skartgripi.... ef ég man rétt :þ

finns allar þrjár búningahugmyndirnar góðar :þ

Anonymous said...

Var að koma úr skoðun,er í liði(ka)og allt í gúddí.Á að koma næst 23 sept.bara að dingla mér þangað til.Aumingja Einar því eg er alveg að farast úr geðvonsku.Lilla er að reyna að liðsinna mér með glaðværð og það gengur bara nokkuð vel.Hilla baðaði mig í morgun(setti mig svo í hettuhandklæði)og hjálpaði mér að blása hárið.Magga móða.