Wednesday, September 17, 2008

Nóg að gera.

Gaman að heyra frá Svanhildi. Takk fyrir komment. Og takk fyrir upplýsingarnar Þorgerður um skolunardótið. Ætla að skamma tannlækninn fyrir að segja manni ekkert um slíkt! Er enn með verki, og varð að taka töflu í gærkvöldi. Dauðhrædd um að enn sé ígerð í þessu, en er að fara eftir hálftíma til læknisins. Í morgun ók ég Margréti í skólann. Hún er með svo rosalega mikið dót. Svo er leikfimi því til viðbótar. Kom við í gamla skólanum á eftir. og dakk kaffi. Hef ekki komið þangað lengi. Tók dót, sem ég átti þar, og var búin að gleyma.
Í gær kláraði ég að strauja, bakaði bollur og tvö franskbrauð. Heilhveitið og klíðið var búið. Í dag er stefnt á að baka kökur. Klaus er í fríi á morgun. Fyrsti dagurinn, sem hann tekur frá um páska! Hann ætlar að sofa lengi. Heyrði í mömmu í gær. Gott að þau eru búin að hitta Sigurð og strákana, og líka Aldísi og Valdemar. Vona að þau verði dugleg að fara til ættingja.
Bestu kveðjur. Áslaug á leið til tannlæknis.

3 comments:

Anonymous said...

Vona að tannstandið fari að lagast, þú átt alla mína samúð elsku systir. Var á Siglufirði í dag, haust-litaferð myndlistaskólans, rok og rigning, en samt vel heppnað, heimsóknir til listamanna, síldarmynjasafnið ofl. Hálf þreytt eftir þessar fyrstu tvær vikur, nóg að gera svo ekki sé meira sagt. Kv héðan úr rokinu og rigningunni þar sem yfir 1oo tré á Akureyri skemmdust í fyrrinótt.
Þin sys.

Anonymous said...

Hæ bara láta vita að ég reyndi að senda Margréti myndir af okkur hjónaleysunum!! Kannski lætur mig vita hvort þið fenguð þær. Talandi um rok, 2 risa aspir brotnuðu í húsinu við hliðina á okkur og þurfti að saga þær í burtu-bárujárnsþakið hjá þeim geðveikt beiglað! En núna hrinur ekki allt af trjánum á bílinn okkar ef við leggjum við hliðina á húsinu!!!:)
Svo er ég að fara í 30ára ammælisveislu á lau. Anna Braga og Sif báðar að verða eldri!Og Helgi Hannesson ætlar að koma í heimsókn og passa óþekktarormana mína, fyrst Fúsi er að þykjast vinna!!hehe
Kveðjur frá Arrrrnhildi

Thordisa said...

Komin í helgarfrí næ að eyða því á morgun að hluta til á fótboltamóti með Úlfi og Guðnýju svo er afmæli um kvöldið sem ég kíki í með Ingó. Svo er lærdómur á sunnudaginn með henni Lilju frá 9-??? svo vonandi vöflukaffi með þeim Steinahliðarsystrum :-)