Wednesday, September 3, 2008

Margrét fær alveg að vinna á fullu.

Þá eru liðnir tveir dagar af vinnu hjá Margréti. Hún er að vinna á lagernum. Er með leiðbeinanda, sem er að læra til að verða hótel-fagmanneskja. Og eins og við er að búast. Það er byrjað á botninum :) Fyrri daginn var hún með stelpu, sem Margréti líkaði rosa vel við, en í gær með einni, sem er ekki spes. Þær fara með vatn, vínflöskur, sælgæti og fleira þangað sem það vantar. Taka tómar flöskur og setja í kerru. Þurfa með það í gám. Enda á að skúra gólfin í kjallaranum. Svo taka þær á móti öllum sendingum með flutningabílnum, og fara með. T.d. allan mat, og fara með það í eldhúsið. Margrét fær heitan mat að kostnaðarlausu, og má drekka eins mikið og hún getur. Því miður eru ekki frægu Möwenpick terturnar í boði :), en það eru "venjulegar" kökur og kaffi, alltaf epli og ávextir. Henni þykir þetta rosa fínt þó að hún sé alveg búin í bakinu eftir að drusla vatnskössum og öðrum kössum :) Hefur líka aldeilis gott af þessu. Svo fór hún báða dagana á eftir í Miners kaffihúsið í höllinni og fékk sér kaffi :) Við ætluðum að skiftast á við mömmu Kathi ( sem ég skrifa víst alltaf Katie :)) , en tímarnir passa svo illa. Klaus þarf af stað klukkan 8 í síðasta lagi. En Kathi ekki fyrr en klukkan 9. Margrét er búin klukkan 3, en Kathi klukkan 5.20. Svo ég talaði við mömmu hennar í gær og hún var svo fegin að ég skyldi hringja. Henni þætti svo leiðinlegt að geta ekki gert okkur þannan greiða, en hefði ekki kunnað við að tala við mig. Eins og ég bíti af fólki hausinn :) Nei, hún vill vera svo indæl að það er stundum einum of.
Svo núna fér Margrét með pabba sínum og ég sæki hana.
Þakka ykkur fyrir kommentin. Það er voðalega sorglegt að heyra um þessa frænku okkar. Svo oft, sem maður skilur ekki tilganginn í þessu öllu. Sannarlega gott fyrir Hafdísi að hafa þig, Affí mín, til að hugsa um sig þessa dagana.
Mikil ósköp eru þetta með Maddý. Þetta gekk aldeilis bögsulega með gifsið. Það verður að dópa hana upp ef hún getur ekki sofið. Mér líst ekki á þetta. En vonandi verður þetta betra í dag. Ég vildi líka vera komin til að hugsa um hana. Vona að hlýjar hugsanir hjálpi eitthvað.
Í gær kom mamman með stelpuna, hana Merla, sem vantar aðstoð i ensku. Hún ætlar að koma í tíma á mánudögum, klukkan 2. Vera í hálftíma og ég fæ 10 evrur fyrir skiftið.
Ég var loks búin að taka til á neðri hæðinni stuttu áður en þær komu. Í dag bíður svo þvottur, sem þarf að brjóta saman og strauja. Og ég ætla loks að fara í pappakassaleiðangur. Erfitt að geta varla fengið kassa nokkurs staðar. Vantar mold og þarf í gamla skólann að ná í dót, sem ég á. Alltaf nóg að gera, ekki satt.
Fór með húslykilinn til píanókennarans í gær þegar ég fór til BS. Tímanum var seinkað til 6. En ég var ekki viss um að ná svo snemma með Margréti. Kennarinn og Jandra voru svo komnar rétt á undan, og gott að ég þurfti ekki að stressa mig á leiðinni.
Talaði lengi við mömmu í gær. Hún var að passa Kristínu Dögg. Vona að Kristín sé hressari í dag. Fúsi á fjöllum með englendinga, og fær það borgað. Affi að laga til hjá mömmu, og ég skammaði hana. Mamma líka. Enda ekki ástæða til að Affí þræli þar. Nóg að gera annars staðar. Það er alveg komin tími á heimilisaðstoð þegar maður er 72, og með verki í bakinu. Ekki satt.
Smá vesen í vinnunni. Tvær mömmur vildi fá að setja strákana til mín, en Ines, sem vinnur með mér, neitar því. Þeir seu ánægðir hjá henni. Í staðinn fékk ég einn, sem er erfiður :) En Ines heldur því fram að krakkarnir eigi að vera með krökkum úr þeirra bekk. Nema þegar það hentar henni :) Mér er nokkuð sama hvaða krakka ég er með. Er með frábæran hóp úr fyrsta bekk. Ég er síðan með einn, sem er í rauninni besta skinn. En lætur stelpurnar ekki í friði. Það er bara hrifningin , sem fer með hann, hihihihihi. Ein þorir ekki í strætó út af honum, og í gær kom mamman spes að sjá hvaða strákur þetta væri--:), --og ætlaði að mæta heima hjá honum til að spjalla við mömmuna, hmhmhmhm. Vonandi hefur það samtal farið fram á lágu nótunum.
Þessar tvær, sem ekki "fá" að vera hjá mér með börnin, sögðu í gær að þær væru svo leiðar út af því. Önnur sagði " Ég sagði manninum mínum eftir kynningarfundinn að það væri íslensk kona, sem passaði krakkana, og hún hefði sagt að börnunum ætti að LIÐA VEL í gæslunni.Það væri hreinlega frábært"
Er það ekki öfugsnúinn heimur ef það er ekki SJÁLFSAGT að aðalmálið sé að börnunum líði vel?????????????
Og þar með er ég farin að lesa blaðið og fá mér morgunmat.

6 comments:

Anonymous said...

Greinilega nóg að gera hjá ykkur öllum. Margrét brillerar örugglega þarna eins og annars staðar. Já blessuð börnin eru endalaust áhyggjuefni mæðra og feðra, en ég er viss um að þér tekst að halda liðinu góðu. Já ekki hægt annað en hjálpa mömmu þegar bæði hjarta og bakverkir hellast yfir á sama tíma. Ætlum að ath með heimilisaðstoð fyrir ellilífeyrisþega hjá bænum, þó ekki væri nema aðra h.viku að einhver kæmi og riksugaði og skúraði. Mamma á ekkert að þurfa að standa í því. Verð sjálf líklega önnum kafin til jóla svo lítið gagn verður af mér. Haustið að hellast yfir klakann, berjaangan í lofti og allt eins og vera ber hér norðan heiða. Kv affí

Anonymous said...

Ef Affí vill vera ber þá getur hún líka setið fyrir í Adam&Evu nærfatabæklingnum með mömmu...hehe!Margrét mín ég er svvooo geðveikt stolt af þér, veit að þetta er hundleiðinlegt but you can do it!!Og Maddý...aumingja Maddý!
Ég var að skúra alla búðina svo perrarnir á Akureyri(sem eru nú oftast venjulegt fólk) yrðu nú ekki filthy dirty buggers.. :)
Og amma á fjölskyldu metið í heimsóknum til mín-búin að koma örugglega 10 sinnum! Áfram langamma! Alltaf í Adam&Evu! hummm
Forrest Hump og DaVinci Load kveðjur Arnhildur

Anonymous said...

Já hún móðir okkar er ekki öll þar sem hún er séð, einn daginn gripin glóðvolg í ríkinu með fulla kerru af brennivínum og það sýnt í sjónvarpinu!!! svo bara orðin pornódog líka!! Ekki furða þó pabbi vilji helst koma henni sem oftast til þýskalands úr þessari spillingu he he.
Kv affí

Anonymous said...

Gott að það gengur vel hjá Margréti í vinnunni, veit hún hefur gott af þessu en hún má samt ekki klára sig í bakinu við þetta!! Kv. Malla

Anonymous said...

Greinilega mikið í gangi í Dautslandi. Flott að Margrét skuli una sér við vinnuna og systir skuli vera farin að sinna fleiri verkefnum. Gott mál það og einnig að það er svo hressilegt hljóð í þér núna systir sæl að. Gott mál það. Hér er allt gott, nóg við að vera, áttum dásamlegan dag í berjamó uppi á norðanverðu Snæfellsnesi á sunnudag og hreinsuðum 38 l af bláberjum og 18 af krækiberjum á mánudag. Svo nú er berjalitur á .... Ferlegt með Möngu móðu en vonandi á réttri leið þannig að hún verði verkjalaus. Er að reyna að ná Þorgerði í kórinn til mín. Vonandi tekst það. Var á 9 tíma vinnudegi menntaráðs áðan, bara ágætt þó sumir sjálfstæðismenn þurfi í heilaígræðslu. Ótrúlegt lið. Segi svo eins og Jónas forðum, Bið að heilsa. Diddi

Anonymous said...

Um að gera að fá þau til að þiggja heimilisaðstoð 1/2 mán.lega til að taka gólfin, þú getur þá Affí gert eitthvað skemmtilegra með henni í staðinn!! Kostnaður nánast enginn, reyndar tekjutengt (amk. hér í Kópavoginum), svo ? með tekjur prestsins - hehe...

Hilla einstök, ekki allar ömmur sem hefðu sig þarna í heimsókn!! Frábær... og mamma ánægð með allar kveðjurnar, alsælust þó með hringinguna frá Arnhildi!!!

Er að hugsa kórastarfið og verð í fríi eftir hádegi í dag, svooooo ánægð með að hafa náð vinnunni niður í 90% og finnst eins og ég geti gert allt í dag!! Fer sennilegast heim að moka út...

Vihihihihið komu bæði frá Kobbavogi...

Over and out!