Saturday, September 6, 2008

Kvefuð en hress.

Farið að síga á laugardaginn. Hlýtt úti, þó að ekki sé mikil sól. Allir hressir hér. Ég er reyndar með kvef. Svaf lítið í fyrrinótt, og svaf í vinnuherberginu í nótt svo ég vekti ekki alla upp með snýtingum :) Hélt ég væri komin með hita, en er bara brött í dag. Klaus er eitthvað ekki í lagi :) eða þannig. Hann gerði mér þrisvar greiða í morgun. Fór svo með mér út og hjálpaði mér að grafa upp runna framan við eldhúsið. Setja hann á nýjan stað. Og á meðan ég dúllaði við að flytja tvö blóm og raka og gera fínt, tók hann eldhúsið í gegn. Það gerist bara ekki betra. !!!
Þá er fyrri vikan hjá Margréti búin. Hún skammar mig fyrir að segja að þetta sé eitthvað erfitt. Hún hafi ekki neitt kvartað. Svo ég kem þessu á framfæri :) Ég sótti hana 4 sinnum til BS. Í gær skruppum við svo smá í bæinn. Hún keypti sér stuttan svartan ullarjakka fyrir veturinn. Við Klaus ákváðum að gefa henni hann fyrir dugnaðinn í vinnunni. Hún hefur ekki kvartað þó að hún hafi þurft að berjast við vespur, skorið sig á flöskubrotum og verið aum í baki.
Og svo er hin dóttirin líka að þvo gólf, voða dugleg. Vill hún líka fá stuttan vetrarjakka frá mömmu!? Þú átt það svo skilið Arnhildur mín !
Ég var frekar slöpp í gærmorgun. Lá í rúminu til 11. Vorum úti með báða hópana í gæslunni, og veðrið var frábært. Hef verið að undirbúa föndur fyrir liðið þegar hann fer að rigna, sem á að verða á næstunni.
Þórdís talaði lengi við mig í vikunni. Gaman að heyra í henni. gat sagt henni að ég hitti Frau Schmidt, sem bjó í blokkinni okkar í Watenbüttel. Hún spurði straks eftir henni fallegu systur minni. Og fræddi mig um það að Andreas, sem var svo skotinn í henni forðum,- híhíhí, væri orðinn skurðlæknir. Gott mannsefni, en hann væri nú giftur og með tvo börn. Hvort hún "Dísa" væri líka gift? Og hvað maðurinn gerði. Þessi Andreas er besti vinur Marco, sonar Frau Schmidt. Já, gömlu ástarmálin, hmhmhm. Best að fara ekkert nánar út í þá sálma. :)
Þessi kona flutti úr blokkinni fyrir 6 árum, eftir að þrenn hjón voru komin í málaferli út af engu og öllu. Það byrjaði út af þvottaherberginu, og endaði með löðrungi. Já, ekki gott þegar menn hafa ekkert fyrir stafni nema að hugsa um naflann á sér. Ef þetta lið hefði nú haft vit á því að fara bara í búðina til Arnhildar, og fá eitthvað annað til að hugsa um :) Er það ekki betra en að löðrunga nágrannana, híhíhí.
Jæja. Vona bara að Maddý hafi það gott. Bið kærlega að heila henni.
Ætla núna að fara að hugsa um fiskréttinn í kvöldmatinn. Hafið það gott á laugardagskvöldi .

6 comments:

Anonymous said...

Slysahrina fjölskyldunnar heldur áfram! Kristín Dögg var í hoppukastala uppá Hömrum og datt ofan á hendina á sér og við Fúsi fórum með hana upp á slysadeild. Baugfingur fór úr lið alveg neðst við hendina. Þetta var myndað og svo fékk hún 2 deifisprautur í hendina og svo setti læknirinn þetta í lið aftur-beinið smá brákað. Hún stóð sig eins og hetja en henni fannst þetta HRÆÐILEGA vont!!Er núna með litlafingur og baugfingur á hægri hendi teipaða saman. Hún finnur auðvitað enn til en þetta var nú ekki jafn slæmt og það leit út-puttinn á henni var alveg til hliðar! Svo ætlum við að panta pizzu-og horfa á vídeómynd..hún fékk að velja!
Kveðjur frá Arnhildi og liðinu

Anonymous said...

Meinar Arnhildur ekki ;; kveðjur frá Arnhildi og úr lið....
Já best að gá vel að sér þessa daga. Ruglaður geitungur veittist hressilega að mér í myndlistaskólanum í dag, ég hljóp út með orgum, geitungurinn sat sem fastast á öxlinni á mér, skólastjórinn hljóp á eftir til að reyna að berja kvikindið af mér, og á endanum reif ég mig úr á miðju bílaplaninu með viðeigandi ólátum og stríðsdansi og vakti mikla athygli þeirra sem leið áttu um gilið. Já ekki á hverjum degi sem fólk rífur sig úr nærri öllu að ofan út á götu he he
kv affí

Thordisa said...

ja hérna hræðilegar lýsingar Arnhildur oj ég fæ alveg hroll að hugsa um þetta og Affí ég sé þig í anda að afklæða þig í miðju gilinu hehe.. Áslaug gömul ástarmál okkar beggja ættu að vera vel grafin niður hehe

Anonymous said...

Já ég held það sé rétt Þórdís!! Rámar í þennan Marco ;)

Aumingja Kristín Dögg!! Þær verða að hittast brotnu frænkurnar og bera saman bækur sínar.

Ég ligg hér frá í bakinu og missti af þrusu partýi í kvöld...

Við hjónaleysin búin að panta ferð til Manchester í lok október, haustferð á Snæfellsnesið góða með heilsugæslunni í september og KPMG árshátíð með Páli Óskari við Bláa lónið í nóvember - svo það er nóg spennandi framundan...

Hafið það gott öllsömul, gaman að fá fréttir af ykkur öllum hér inni!!

Anonymous said...

Æ Æ Kristín Dögg, sendi þér batakveðjur ;) Sit hér og bíð eftir Sigga Jóns og co, þau ætla að koma og kíkja á kofann minn ;) Annette hefur aldrei komið hingað. Kv. Malla
láttu þér batna sem fyrst af kvefinu frænka.

Kristín E. said...

úff það er aldeilis ástandið á þessari fjölskyldu okkar :S

Sendi batakveðjur til nöfnu minnar, fékk bara illt í fingurnar við að heyra þetta úfff

Og Affí... hefði viljað sjá stríðsdansinn hehehe fyndið eftirá en hrikalegir þessir fj... geitungar

Marco... man eftir þessu nafni :þ

Bið að heilsa Margréti dugnaðarforki og Klaus sem þreif eldhúsið :o) og auðvitað Áddu frænku sem heldur þessu saman

kv
Kristín