Tuesday, September 23, 2008

Hann rignir.

Hellidemba síðan 8 í morgun. Margrét slapp sem sé í skólann á hjólinu án þess að hárið á henni blotnaði og færi úr skorðum :). Svaf illa í nótt. Vaknaði með verki í tönnunum, og tók töflu. Svo hrökk ég upp við illar draumfarir. Dreymdi að ég væri að missa af flugi. Hefði gleymt handfarangrinum heima, og við Klaus og M. fórum að ná í hann og vorum ekki með á hreinu hvenær brottför væri. Ekki í fyrsta sinn, sem mig dreymir þetta. Það tók við eftir drauma um eldgos heima í sveitinni ,og ég var að velja hluti til að taka með og gat ekki ákveðið mig.- Hvað ætli draumráðningar bækur segi um þetta? :)
Vona að ég sé ekki að detta niður í dofa. Er eitthvað löt eftir helgina og kem mér ekki í gang þó að nóg sé að gera. Það er svo sannarlega rétt að sólin kemur manni í gang og dimman letur mann.
Æðislegt að frétta af fjölskyldukaffinu hjá ykkur. Af matnum með dönunum--hvaða dönum?--sem þau gömlu komust í. Trúi því "ekki" að Affí sakni barnanna. Við milli gömlu systur erum ekkert hrifnar af því að vera með börnunum okkar, híhíhí. Góða ferð suður elsku systir. Skil þig svo vel. Tek Þorgerði á orðinu að mér verði boðið í kaffi þegar við komum næst. Við erum nú loks að fara að athuga um fríið. Margrét getur að öllum líkindum verið lengur. En ég á ekki frí nema til 7.jan. Spurning um að skilja hana eftir til lok janúar, eða allavega fram yfir 15.1.. Hún verðurþá hjá Arnhildi á afmælinu sínu. Ég vil ekki missa af því, en þar sem ég hef svo sjaldan verið á afmæli Arnhildar er bara eðlilegt að ég missi líka af afmæli Margrétar. Það sem stendur í mér er þessi aðgerð, sem gera þarf. (Uppskurður, 6 vikna veikindafrí). Fer á fim. til læknisins, og fæ þá að vita hvað hann var að meina. Og hvort ekki liggi á þessu. Finn ansi mikið fyrir þessu "hangandi segli" eins og hann orðaði þetta. Spurning um uppskurð fyrir jólin, og vera heima til að ná mér. En get þá ekki aðstoðað heima við neitt. Engin tiltekt hvað þá stórhreingerning. En væri samt góð í að sitja á kassanum hjá Arnhildi. Það er sem sagt verið að spá í ýmislegt. Kemur í ljós.

4 comments:

Anonymous said...

Þið Margrét komið bara norður til mín og ég skal stjana við ykkur! Þú getur verið í veikindafríi hér á klakanum. Og ég skal láta hænurnar og Affí stjana við þig líka!Svo er hægt að senda þig á heilsuhælið í Hveragerði eða á hælið hjá Þórdísi..hehe..nei nei ég er að spauga! En það væri nú gaman að hafa ykkur á landinu nálægt mér!! Og bara mér!! Kveðjur ykkar Arnhildur

Anonymous said...

P.S.Það komu hér tveir svaka cool gaurar í dag og voru að spurja um gimp búning(sko gaur með krippu og svoleiðis..),fannst þeir svo fyndnir og heldurðu ekki að verslunarstjórinn ég hafi misst útúr mér að þeir þyrftu engan búning-gætu bara farið eins og þær væru...eheh..das pornohündchen

Anonymous said...

hvaða aðgerð ertu að tala um??? Er ég orðin svona kölkuð eða er mamma ekki að standa sig í fréttaflutningnum? Draumarnir tákna ekkert annað en að þú hefur áhyggjur yfir að vera slöpp og kraftlaus og þar af leiðandi ekki eins fær um að djöflast eins og þú telur nauðsynlegt,, sem sé,,ónauðsynlegt samviskubit! Láttu þér batna, kauptu þér Zink töflur, ´þær hressa-bæta og kæta, halda mér allavega gangandi. Kv affí

Anonymous said...

Hæ, segi það sama og Affí, hvaða aðgerð? Danirnir eru kennarar sem eru með 17 manna bekk frá Sönderborg á Jótlandi sem eru í heimsókn í Kvennó og ég lenti inn í verkefninu að taka á móti þeim. Frekar svöl og blaut ferð á sunnudag og enn blautari ferð í gær. En annars allt gott. Ótrúlegt að helstu áhyggjuefnin í sambandi við þessa aðgerð hjá þér systir sé að þá getir þú ekki djöflast neitt í tiltekt. Hvernig heldurðu að mannskapurinn bjargi sér þegar þú ert ekki??? Vertu velkomin - án vinnuframlags eða með - hvenær sem er á mínar slóðir. Það væri þá kannski hægt að koma þér í einhverjar heimsóknir ef þú ert ekki alltaf í tiltektum. Hver veit?