Mánudagsmorgunn. Er að reyna að vakna meðan Klaus er að lesa blaðið og Margrét að taka sig til fyrir fyrsta skóladaginn eftir tvær vikur. Við erum öll búin að vera með kvef, og reyndar ekki laus við það enn. Margrét var svo kvefuð á fimmtudagskvöldið að hún fór ekki í Mövenpick á fö. Við förum þess vegna í dag. Hún er enn með blússuna og svuntuna. Á líka eftir að fá pappíra um að hún hafi mætt reglulega. Svo þurfum við að bruna til Gifhorn til tannlæknis svo það er nóg að gera.
Fimmtudagurinn fór í tannvesen. Það var ekki hægt að bjarga tönninni. Hún molnaði bara niður. Svo var smá bólga við endann. Eftir mikla baráttu kom hún loks. Það þurfti að klippa frá og bora hana lausa. Ég er enn með verki í þessu öllu og smá bólgin. Finnst nú alveg komið nóg. Fékk grisju til að hafa ofan í holunni til að stoppa blæðinguna. átti að bíta saman i klukkustund sem ég auðvitað gerði. Og átti að leggja mig. En ég þurfti að ná í Margréti. Fór til mömmu Kathi til að vita hvort hún gæti tekið hana með, en enginn heima. Svo heim, og á hjólinu upp í skóla að leita að Frau Kühle til að vita hvort hún gæti sótt hana, en fann hana ekki. Á hjólinu heim til hennar en enginn þar heldur. Svo ég ákvað að ég færi bara þó að mér hafi verið sagt að vera ekki að keyra! Margrét heldur betur fegin að sjá mig tímanlega því hún var ein að vesenast í ísnum og bjórunum. Var steinuppgefin.
Enn blæddi hressilega svo ég fór aftur til tannlæknisins og fékk svamp ofan á þetta, og loks fór þetta að lagast. Var líka orðin slöpp eftir að hafa ekki borðað síðan 8 um morguninn. Klukkan 7 um kvöldið gat ég loks borðað eitthvað :) Meira vesenið.
Eins gott að ég kláraði að sauma nýju "gömlu" gluggatjöldin fyrir skúrinn og setja þau upp um morguninn. Átti slatta af gömlum gluggatjöldum, sem ég fékk hjá mömmu Birthe til að nota í bútasaum og slíkt.
Við Margrét vorum frekar framlágar á föstudaginn. Hún lá framan við sjónvarpið mest allan daginn. Ég þurfti í vinnuna, og það gekk bara vel. Gátum enn verið úti. Veðrið var algjörlega himneskt fram á sunnudaginn. En þá kólnaði hann hressilega. Núna þegar Margrét er að fara á hjólinu eru ekki nema tæp 7 stig. Enda setti hún á sig vettlinga.
Ég bakaði svo franskar súkkulaðikökur seinni partinn á fö. Gerði þá vitleysu að setja eina uppskrift í tvo forma og þær urðu frekar þurrar. En voru samt fínar. Bakaði svo aðra með enn meira súkkulaði og minna af hnetum. Hún fór svo á kökubasar til foreldrafélagsins. Það var haldið upp á 125 ára afmæli slökkviliðsins um helgina. Foreldrafélagið seldi kaffi. Ég var búin að ætla mér að vinna með þeim, en var of kvefuð. Og svo meldaði Susanne mágkona sig, Hún var búin að lofa að koma að stytta pils af mér. Þurfti með Gregor til BS í vinnu í gær. Það var opið hús hjá VW verksmiðjunum. Kom svo hingað og var til rúmlega 6. Stytti 3 pils, lagaði eina blússu, og var ekki í vandræðum með það. Henni fannst mislukkaða kakan svaka góð. Þetta verður líklega sigild kaka hér eftir.
Hún sagði okkur nýjustu sögurnar af þessum vini Ramonu. Hann missti ökuskírteinið fyrir meira en ári. Og annað hvort veit Ramona ekki af hverju eða hún vill ekki segja neitt frá því. Svo er komið í ljós að hann var með eigið fyrirtæki og fór á hausinn. Skuldar peninga, og enginn veit hversu mikið! Þar til viðbótar fer hann á bak við skatinn. Gefur upp minna en hann fær. Er með samkomulag við yfirmaninn. Hvað ef nú eitthvað kæmi upp á milli þeirra. Allavega er þetta ekki góður grunnur til að byggja á. Daniela er í fríi í meira en tvær vikur. Að öllum líkindum rennur samningurinn út í lok okt. Hún væri þá atvinnulaus. Er á fullu að sækja um, en lítið gerist.
Á laugardaginn vorum við M. hressari. Ég sótti Brötchen eftir að hafa gefið kettinum hennar Frau Kühle. Svo var lagað til á fullu. Sett hreint á rúmið hennar M., og hún hafði orku til að þurka af :) Hún og Doreen skruppu á nýju videoleyguna, sem er á sama stað og sú gamla. Tóku mynd með heim og það var hlegið mikið. Þveginn þvottur í blíðunni. Við hjónin slógum svo garðinn í sameiningu eftir að ég var búin að setja niður Eriku, lyngblómið góða, sem tilheyrir haustinu. Ekki spurning. Er með hana bæði í pottum og í beðum.
Setti niður fræ með skrautgraskerum í sumar. Plantan vex og vex og það eru komin nokkur grasker. Þarf að skera þau af. Og setja í körfu framan við húsið.
Til hamingju með árangurinn í skólanum Þórdís mín. Eru þau gömlu svo komin suður? Malla mín, það var nú minnsta málið að hugsa um buxurnar fyrir þá stuttu. Fann einn svartan björn undir sófanum og setti ofan í pokann. Gott að skóladrengurinn er hress með heimavinnuna og vonandi verður að áfram.
Það hefur verið fjör hjá Þorgerði um helgina. Skil vel að Gilli hafi farið á aðra landshluta :)
Já Affí mín. Nú verður sett í mig brú því sjúkrasamlagið borgar ekki stíftönn. Skil ekki af hverju þeir borga fyrir að vesenast í 3 tönnum í stað einnar. Fer á fö. í viðtal við tannlækninn minn til að fá upplýsingar um kostnað og til að skrifa undir. ( er þetta ekki típískt þýskt!) Svo fer að styttast í þessi ósköp.
Vona að mamma gangi ekki fram af sér í borginni við tiltekt og slíkt. En þar sem Ingó er svona duglegur ætti það ekki að vera málið. Þið reynið svo að drífa þau í heimsóknir. T.d. að fara til Guðbjargar og Sirrýar og fleiri.
Hafið það gott. Dagblaðið er laust og ég farin að fá mér morgunmat.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Fúlt með tönnina, væri svo miklu einfaldara fyrir þig að fá "implant" heldur en brúnna, talandi af reynslu...
Já það var sko mikið fjör um helgina, góður matur, keila, spa, meiri góður matur ofl. ofl. Var orðin verulega þreytt þegar þær kvöddu í gær kl. 18 og náði að hvíla mig áður en alsælt sveitaliðið kom heim frá Hornafirði!
Dagur saknaði svo hundanna að hann átti erfitt með svefn í gærkvöldi en tilkynnti líka móður sinni að hann hefði saknað hennar rosalega mikið!! Sagði líka við pabba sinn þegar hann var að siða hann til, að "næst yrði pabbi heima og mamma kæmi með..."
Þarf að heyra í mömmu þinni og bjóða henni í kaffi.
hæhæ, ég var að velta því fyrir mér hvort þú getir sent mér uppskriftina af pastaréttinum sem ég borðaði svo mikið af þegar ég var hjá þér?
Það var örugglega eitthvað svona eins og pepperoni eða salami í því, fannst það svo klikkað gott!
Endilega sendu mér póst á aldis@network.is ef þú manst um hvað ég er að tala.
og allir að kíkja á nýja bloggið mitt, ddagmar.bloggar.is ég er búin að vera rosalega dugleg að tjá mig um lífið í Reykjavík þar.
-Aldís D
Verð að bæta hér inn bloggsíðunni hennar Þuríðar Önnu á Ítalíu, bara svo þú getir fylgst með Ádda.
www.dryer.bloggar.is
Fór auðvitað beint og kíkti inn hjá Aldísi Dagmar...
Post a Comment