Miðvikudagsmorgunn. Margrét farin í skólann, Klaus i vinnu og ég búin að lesa blaðið, drekka cappucino með fullt af "drizzle" karamellusósu! Taka úr uppþvottavélinni og setja í hana. Svo bíða mín endalausar skyrtur, sem ég hef ekki komið mér í að strauja. Gaman!
Fór í gær til tannlæknis. Var þá komin með ígerð í draslið! Þurfti að sprauta, hreinsa og sauma fyrir. Saumarnir teknir á morgun. Var þrælfúl að vera aftur með deifða vör í vinnunni. Var bara reglulega slöpp eftir þetta. Svo við vorum bara úti með Ines og hinum hópnum. Ætla svo að láta þau klára flugdrekana í dag.
Margrét var til 4 í skólanum. Svo píanó klukkan 6. Það er ekki gert mikið annað en að borða og horfa á sjónvarp á svona dögum :). En þegar ég var orðin hress tók ég útidyrahurðina í gegn. Setti á hana haustkransinn, sem var að detta í sundur. Límdi skrautið á hann með límbyssunni minni. Mikill þarfagripur. Setti svo leirgraskerin út, og færði einn pott frá veröndinni á tröppuna framan við húsið. Því í honum er blóm í appelsínu gulum lit. Maður verður nú að hugsa um setteringarnar, ekki satt:). Skar svo graskerin af, sem vaxa vilt og frjáls í beðinu mínu. Uppskeran er 6 grasker, og slatti að vaxa enn. Voða gaman að finna þetta í beðinu.
Hádegismaturinn var skúffukaka :) ætli maður verði ekki að fara að hjóla aftur! (karamellusósa og kökur, hm,hm.) Og svo beið snitsel með rauðkáli handa Margréti þegar hún kom heim. Skrítið að vera með heitan mat í kaffinu, en hún er alltaf svöng þegar hún kemur úr skólanum, og eins gott að troða í hana. Algjör mjóna.
Frábært að Arnhildur og Fúsi fengu verðlaun fyrir búninga. Sko mína! Hlökkum til að sjá myndirnar. Kannski við getum sett þær á bloggið líka. Voða vesen með öll tækin hjá þér Arnhildur mín. Bara bilað og aftur bilað. Hef ekkert frétt af þeim gömlu frá því þau fóru suður. Vona að allt sé í lagi þar. Er Manga farin að mæta í skólann til Tinnu? Veit að hún er að deyja úr samviskusemi, og vill gera sitt til að Tinnu líði vel. En verður samt að fara varlega.
Vona að pestin sleppi því að leggjast á stórfjölskylduna, og Ingibjörg fari að ná sér.
Best að fara að strauja, sniff, sniff. Sólin að koma fram. Himnesk blíða.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Heyrðu kjella, það eru til allskonar munnskol sem sniðugt er að nota eftir svona munnholsaðgerðir. Hér heita þau t.d. corsocedyl og hexadent, eru klórhexidínmunnskol sem má ekki kyngja, bara skola með eftir tannburstun og ekki borða í amk. 1/2 klst. á eftir. Skoðaðu þetta nú í næsta apóteki!!
Til hamingju með búningaverðlaunin Arnhildur...
Mamma er farin í skólann hluta úr degi, situr hjá Tinnu sinni sem veit að hún má bara sýna sparihliðina. Mamma dauðfegin að hanga ekki lengur heima allan daginn, enda ekki þekkt fyrir að slaka mikið á!
Grasker! Æði! Kökur! Æði! Margrét!
Æði! Í nótt flugu trampolín útum allan bæ í rokinu og trjágreinar útum allt-Við dóttir mín sváfum frekar lítið. En nóg að gera í perradótinu-Kveðja Arnhildur
Ég svaf sem aldrei fyrr í nótt, setti í mig eyrnatappa eins og venjulega þegar ég fer að sofa. Rosalega barði samt á gluggann hjá mér þetta leiðindar veður. Allir sváfu eins og steinar, strákarnir og ég ;) Össi sefur við allt..... svo hann telst ekki með, hehe
Post a Comment