Friday, September 26, 2008

Þoka um allt.

Föstudagsmorgunn. Keyrði Margréti í skólann því hún þurfti að taka með sér stóra blokk, --og mamma hefur tíma :) Klaus svaf lengur en við. Er nefnilega í fríi í dag. Kom frekar snemma í gærkvöldi. Allt hafði gengið vel hjá honum. Tannlæknirinn deyfði mig aftur. Hreinsaði betur og ég var að drepast út af deyfingunni meðan ég var að vinna. Var akkurat með báða hópana þar sem mikil forföll eru í skólanum, og þar til viðbótar fundur. Var úti með liðið, og ekki fær um að fara í leikina ,sem ég var búin að ætla að fara í. En það koma dagar eftir þennan, og :). Look at the bright side, ---. Sárið var hreinsað vel, og ef þetta lagast ekki núna, fer ég til sérfræðings, sem hreinsar þetta með leiser. Minn tannlæknir er ekki með svo flottar græjur. Var svo að koma frá henni og þetta er í lagi--allavega í bili! Svo er að sjá hvað verður um helgina.
Arthur og Maja við hliðina eru að fá arinn. Það verður settur reykháfur við húsveginn. Þau eru komin með heila hrúgu af timbri, og í gær var því staflað upp undir litlu þaki við bílskúrsvegginn. Maður gæti stundum verið öfundsjúkur-sniff, sniff. En Margrét ætlar að verða fræg og rík og hún kaupir örugglega lítið hús með arni, lestrarkrók og flennnistóru eldhúsi handa mömmu gömlu. Mig langar svooooo í risa eldhús.
En flestir minnka við sig með aldrinum. Hildur frænka Halldórsdóttir var að skrifa mér. Takk kærlega fyrir bréfið frænka. Hún segir að foreldrar hennar séu flutt í íbúð fyrir ellilífeyrisþega. Eru með eitthvað um 80 fermetra, sem er mun minna en áður. Og allir eru nú í því að sortera. Það er sannarlega ekki auðvelt verk. En hugsið ykkur ef pabbi og mamma færu í það að fara í gegn um bækurnar í alvöru, og gefa á safnið og setja á flóamarkað. Það yrði aldeilis pláss í húsinu. En einhvern veginn held ég að það muni ekki verða gert fyrr en að þau eru öll. :) Við Affí reddum þessu þá bara.
Heyrið þið mig.-- Er búið að segja frá því heima að börn, sem fá parasetamol á fyrsta ári fái oftar útbrot og ofnæmi og asma en önnur! Þessu er fullyrt eftir einhverjar kannanir. Sel það ekki dýrara en ég keypti. Best að leyfa svo manninum að komast að tölvunni. Fara svo að elda buff stroganoff. Skelfing gott að sjá línu frá Maddý. Reyndu nú að vera glöð og góð við Léttfeta. Hann gerir örugglega allt, sem hann getur fyrir þig. Og þetta tekur allt enda. Hafið það sem allra best. Saknaðarkveðjur, og ástarþakkir til Arnhildar fyrir bréf og kommentin öll.

3 comments:

Anonymous said...

Ég er með ykkur í þessu draumafélagi! Eftir að hafa setið við eldhúsborðið (algjör bakbrjótur) og unnið í nokkra daga læt ég mig dreyma eins og svo oft áður um arineld,leskrók...já og reyndar vinnuherbergi.

Hafið það gott og góða helgi. Svanhildur

Anonymous said...

Hér sit ég ein í kotinu ;) Össi fór norður í gæs, ætlar að vera í Aðaldal og tók strákana með, fer með þá í Mývó. Þeir koma svo á mánudagskvöld. Ég verð í tiltekt og skemmtilegheitum í dag og morgun því annaðkvöld er hverfapartý hér hjá mér (og bóndinn ekki heima, ég veit!! glatað). En ég stend mig vonandi vel og þetta verður bara stuð. Kv. Malla

Anonymous said...

Geðið er að skána.Er aðeins farin að geta rétt úr olnboganum en samt ekki mikið.Get þvegið mér um hendurnar þó höndin sé skökk.erfiðast að láta tímann líða en þó þetta eru orðnar fjórar vikur.Einar er að æfa sig á saxann svo hann fær smá frí frá að sinna mér.Magga móða.