Wednesday, September 10, 2008

Og aftur datt tönnin.

Miðvikudagskvöld. Ömurlegt sjónvarpsefni. Betra að sitja við tölvuna. Hér er alveg geggjað veður. Himnesk blíða. Í gær ætlaði ég að strauja loks skyrturnar, sem eru að verða nokkuð margar, en tímdi ekki að eypa tímanum í slíkt í þessari blíðu. Tók garðskúrinn í gegn. Þreif gluggana í honum og henti gluggatjöldunum. Ætla svo að sauma ný upp úr gömlum gluggatjöldum. Ekki neitt smá af kongulóm, -vantaði Affí og KD!!! Svo hreinsaði ég mosa og illgresi framan við útidyrahurðina í heilan klukkutIma. Margrét kom heim um 4 með Kathi. Svo var píanótími hérna klukkan 6. Margrét er hin hressasta í vinnunni, en kvíður smá fyrir morgundeginum því einhver ný, sem er ólétt og pirruð, :) ,verður með henni. Ég sagði henni bara að svara fyrir sig ef verið væri að kvarta. Ekki hægt að ætlast til að hún geti gert perfekt ískúlur og tappað bjórnum á glös eftir 3 daga. Í dag sótti ég hana. Var búin að mæla mér mót við Bernt Ritter. Það kom grein í dagblaðinu okkar um Kai Sölve, sem er dóttir Richters, --hún er hálfsystir þessa yndæla stráks, sem Elli fór með upp á fjöll. Ég lét Ritter fá greinina og líka geisladisk, sem pabbi ætlaði honum. Hitti hann og Elfi konuna hans í Karstadt þar sem þau voru að skoða sjónvörp. Við settumst svo við kaffihús/bakarí rétt við City Point, og þau splæstu á mig kaffi og sveskjuköku. Ritter er nýkominn frá Pakistan þar sem hann og stór hópur var að vinna við mælingar. Svo er hann að fara til Skotlands, og Elfi fer líka. Þau voru hress og báðu að heilsa öllum.
Margrét kom til okkar eftir að hún var búin að kíkja í búðir. Við fórum svo að skoða föt á KD fyrir jólainnkaupin. Fundum sitt lítið af hverju.
Doreen ætlar að koma til mín í ensku tíma. Hún hefur reyndar voða áhyggjur af því að mér finnist hún heimsk. Hún er auðvitað með minnimáttarkennd gagnvart Margréti. Við erum öll svona þessi sem ekki eru með límheila. En hún þarf að læra að hún er með fullt af öðrum hæfileikum. Er flink í höndunum, og getur lært margt á því sviði. Sennilega kemur hún tvisvar í viku. Svo ég er þá upptekin þrisvar með hana og Merle. Það er nú bara ágætt til að byrja með.
Tönnin var límd í gær, og fór straks aftur af þegar ég borðaði. Nú á ég tíma á morgun, og veit ekki hvað gert verður. Hún var að tala um að setja brú þar sem báðar tennurnar til hliðar eru lélegar, og þyrfti að gera eitthvað í þeim bráðum. En helst vildi ég bara láta fylla slétt yfir, hafa bara tóm á milli tannanna, og ekkert meir. Hef ekki nokkra löngun til að standa í því að láta setja brú í mig. Bölvað vesen. Og hananú.
Takk fyrir kommentin. það verður gaman að sjá Arnhildi og Fúsa í búningunum. Við hljótum að fá myndir á netið! Vona að einhver geti passað KD. Kannski hún geti skemmt geðvondu Maddý með glaðværð. :) Gott að hendin er í lið. Ekki spennandi tilvera, en Maddý hlýtur að geta sungið? Það er allavega góð dægradvöl!
Morguninn fór í að pakka niður í tvo kassa, sem fóru til Arnhildar og mömmu. Nú eru allar bækur pabba farnar af stað heim. Og gammosíurnar til Möllu. Þetta var törn í 2 og hálfan tíma. Ekki furða þó mér leiðist að ganga frá pökkum í póst! Pakka, gera lista, sem fer ofan í, fylla út skjölin, líma -endalaust- því ekki má binda utan um með snæri. (bannað út af slysahættu). Ná í kerru til að drösla kössunum inn á pósthúsið. Og svo heim í sturtu og í vinnuna.
Æ, ég er ekki í hraðgír eins og sumir af ættinni :) :) :)

5 comments:

Anonymous said...

Takk takk fyrir að vesenast í þessum gammósínum fyrir mig ;) Hér kólnar jafnt og þétt og fer að styttast í að strákarnir þurfi sokkabuxur eða álíka undir buxur. Gengur vel með skóladrenginn, hann lærði heima í dag í fyrsta skipti og það gekk þrautalaust fyrir sig ;)

Kristín E. said...

Bið að heilsa Margréti :o) langaði bara í flottar ískúlur við að lesa um vinnuna hennar :þ
Var að blogga!!!!!
Bið að heilsa öllum.

Anonymous said...

Talandi af tann-reynslu þá er ekki gott fyrir þig að hafa gat þar sem tönnin á að vera, því þá getur sú sem á að styðja við á móti gengið niður/eða upp eftir því sem við á, og losnað á endanum líka :(

Mig langaði nú meira í freyðandi bjórinn í bjórglasinu við að lesa vinnulýsingar Margrétar - Janusargenin koma þar sterkt inn :)

Er að fá vinkonur mínar 4 í heimsókn um helgina, byrjum á að gista í Keflavík og förum svo í allskonar dekur í bænum á laugardaginn. Gilli, Helga og Dagur á leið til Hafnar í Hornafirði að heimsækja ömmu hans, komast þar í fjós o.m.fl.
Hildur að vinna í pizzunum og dauðfegið að losna við okkur...

Góða helgi öllsömul!

Anonymous said...

Blessuð láttu bara laga tennurnar svo þær verði almennilegar, fáðu brú eða hvað sem gerir þig fína, þetta verður nú varla nein brú yfir KVÆfljótið svo þetta getur ekki verið mikið mál. Já og mín bara farin að segja dóttur sinni að níðast á óléttum konum.. he he. Knús til Margrétar, veit hún rúllar þessu upp. Kv affí

Anonymous said...

kveðjur frá lærdómssystur þinni sem er frekar sátt eftir fyrstu vikuna og hafa fengið þessar fínu einkunnir en ó já heldur betur búin að vinna fyrir þeim. Ingó minn búinn að taka allt húsið í gegn svo hér er fínt og flott og ég er í afslöppun í dag eftir laaaaanga viku. En á morgun heldur lærdómur áfram próf í Fjárhagsbókhaldi á mánudaginn sem gildir 5% og ég ætla mér að standa mig vel í því eins og öllu en við sjáum til þetta er svo gjörsamlega nýtt fyrir mér. Hafðu það gott um helgina og þið hin líka. kv Þórdís