Loks kom ég í verk að hringja í skólastjórann í skólanum hennar Margrétar. Margrét er komin með leyfi til að vera á Íslandi allan janúar. Hún þarf að mæta í skóla þar, og koma með eitthvert plagg uppá að hún hafi mætt. En þetta er sem sagt leyft. Prófin verða sennilega ekki búin fyrir jólin. Margrét á að tala við kennarana um það hvort þeir telji sig geta gefið henni einkunn án þess að hún taki síðasta prófið, eða hvort hún geti tekið eitthvað fleiri fyrir jólin. En það ætti ekki að vera neitt vandamál. Síðasti kennsludagurinn er 19.des. Það er spurning hvort við fáum flug um kvöldið. Eða ekki fyrr en daginn eftir eða enn seinna. Svo spurning um beint flug til Akureyrar. Um flug þangað í tengingu við flugið til Keflavíkur. Sem sé ódýrara flug sem flug á Ak í gegn um Kef.. Eða hvort við tökum bíl á leygu til að komast norður.
Ætli Valdemar og Aldís fari nokkuð norður akkurat 19. eða 20.??? Verði sótt eða fljúgi.???
Það er sem sagt ýmislegt að kanna. Við Klaus þurfum helst að fljúga til baka þann 6.janúar. Sem er miðvikudagur. Ætla samt að kanna það hvort nokkur smá möguleiki sé á því að ég geti fengið þessa tvo daga frí. Þá gætum við verið fram á sunnudaginn, sem þýðir að við fengjum einhverja daga í Reykjavík. Annað væri ansi knappt.
Og svo er einhver famelíusamkoma hjá Birnu sennilega þann 3.janúar, laugardaginn. Nina og Svend mæta líka. Það er of snemmt fyrir okkur,en etv. verða Nina og Svend lengur og við gætum hitt þau.
SEM SÉ fullt af kannski og hvernig.------------
Margrét þarf að vera komin í byrjun febrúar. Seinni önnin er mikilvæg, og eftir tvo frídaga, 2. og 3. feb. hefst kennslan á seinni önn á fullu. (2. og 3. eru frídagar vegna einkunna.)
Þarf þá að hafa samband við Helgu Sig vegna mætingar fyrir hana. Það ætti ekki að vera neitt mál. Það er bara málið hvernig hún kæmist í skólann á morgnana, og hvort Arnhildur vill að hún gisti alltaf hjá sér, eða hjá ömmu. Þetta verður nú allt leyst.
Ég dauðkvíð fyrir vetrarferð heim. Bæði hrædd við hálku og svo flug í litlu "rellunum" milli Ak og Reyk. En þetta hlýtur að ganga. Fæ bara fullt af róandi og helst bara svæfingu, hahahahaha.
Þið getið sagt mér ef þið vitið um flug eða eitthvað um ferðir.
September ætlar að kveðja með rigningu. Hann hætti við yndislega veðrið í gær, og nú er bara napurt. Enda að koma vetur. Bestu kveðjur úr golu og slyddu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
JÁááá Margrét verður allan janúar...Jibbí skibbí!!! Hún má auðvitað vera hjá mér eins og hún vill sko, og ég byrja ekki að vinna fyrr en kl.tíu á morgnana! Ich bin SO Glücklich!! Hmmm best að fara að plana og gera lista og ákveða og skipuleggja...eða nei mamma sér um það! En mig hlakkar svoooo mikið til að fá ykkur öll og hitta ykkur!! Bjarsýniskveðjur frá ykkar pornoqueen Arnhildi!!!
Frábært! Verður gaman að hitta ykkur. Fórum norður um síðustu áramót, aldrei að vita hvað við gerum þau næstu...
Spennandi :o) Hlakka til að hitta ykkur :D
Mikið áttu gott að vera að fara heim um jólin og mikið væri ég til í að vera að fara líka! En við vorum víst heima um síðustu jól þannig að um þessi jól eru það tengdó í Hannover...
Svo bara hugsarðu um allar góðu íslensku kökurnar og góða íslenska matinn og þá þarftu hvorki róandi né svefntöflur á leiðinni...
Kveðja úr rigningu og oktoberkulda, Aldís
Post a Comment