Frétti í gær um ömurlega frammkomu Davíðs Oddssonar. Þessi maður heldur víst að hann sé annar Jörundur Hundadagakongur. Geti ráðið yfir landinu góða og siglt því á kaf. Ætla menn ekki að safnast saman í mótmæli út af þessum málum? Hvar eru menn og konur, sem marseruðu móti hernum í den tid? Er ekki kominn tími til að mæta fyrir utan hús Davíðs og framan við Alþingi, og láta þá heyra að ekki sé hægt að sigla þjóðarskútunni á kaf! Hvers konar djöflar eru þetta? Standa framan við þingmenn og segjast ekki þurfa að leggja þetta fram fyrir þing--þetta komist hvort sem er í gegn! Er fjandinn í Sjálfstæðinu? Er Ameríka komin inn í heilann á meiri hluta Íslendinga?
Mér er bara spurn.
Eina fólkið hér í landi, sem hugsar af viti, er í SPD. Gamli forseti flokksins varaði við þessum verðbréfareglum fyrir tveimur árum, en hver hlustar á slíkt. Ekki þjóð, sem kastar til höndunum þegar um menntun barna og unglinga er að ræða. Getur Guð ekki farið að senda okkur nýjan spámann? Eitthvað þarf að gerast. Hvar er biskup Íslands, hvar eru Græningjarnir og Diddi með flokkinn sinn? Ég bara spyr.
Samt ætla ég að láta dóttur mína vera eina á landinu með þessum glæpamönnum. Fúsi mágur hennar kastaði sér í gólfið og grét þegar hann frétti að hún ætlaði að vera í lengri tíma hjá þeim! Eða það sagði hann Margréti í gær í símann, :) :) :). Ég var eitthvað svo föst í því að senda hana til Helgu Sig, en það er náttúrlega líka 10.bekkur í Oddeyrarskólanum. Miklu þægilegra og líka gott fyrir Kristínu. Það hlýtur að vera hægt að gefa þeim Margréti kaffi í Norró og fara með þær til Maddýar og Annett og Affíar og ömmu svo þær séu ekki alltaf einar heima þangað til Arnhildur kemur heim. Margréti langar líka mikið til að kynnast fjölskyldunni sinni. Hún vill hitta fólk þó að henni þyki best að hafa Arnhildi hjá sér. Þið verið vonandi öll dugleg að drífa hana í heimsóknir.
Ég þekki engan í þessum skóla. Veit ekki hvert ég á að snúa mér, en Maddý og Lilla eða Siggi Jóns þekkja kannski einhvern. Og svo er það þessi Sonja, sem Arnhildur þekkir. Þið getið nú spjallað við fólk og frétt eitthvað um 10. bekkinn. Ef þetta er algjör ruglubekkur er kannski betra að hún fari annað???? Svo þarf hún ekki að vera alltaf í sama bekknum. Aðalatriðið er að hún fari í skóla. Hún hlakkar t.d. mikið til að fara í dönskutíma. Og hún gæti alveg farið í íslensku í yngri bekkjum. Svo er spurning um það hvort hún gæti farið einhverja daga með Friðriki eða Ástu í skóla? Það er bara svo mikið kaos hjá Þórdísi að það er ekki bætandi á það. ????? Eða---
Í gær kom Daniela í heimsókn. Stoppaði ekki lengi því hún er að læra í fjarnámi. Ætlar að nota fríið sitt í það. Þarf svo í vinnu á mánudaginn.Var hress og kát að vanda. Alltaf gaman að hitta hana. Bakaði áströlsku bombuna handa okkur, þessa með ís og karamellusósunni.---
Geðveik rigning í gær. Klaus tók Margréti með í skólann og ég sótti hana svo. Sá varla veginn fyrir hvassviðri og rigningu. Núna skín svo sólin, en það er svalt. Hressilegur vindur.
Margrét fór í gær til stelpu í 5.bekk, sem vantar aðstoð í réttritun. Kennarinn hennar Margrétar bað hana að kenna stelpunni, sem heitir Kira. Mamman sagði að hún vissi hver ég væri og líka hver væri afi Margrétar. Hann hefði keypt svo mörg stækkunargler í búðinni hjá sér :) :) :). Það er hægt að verða frægur fyrir ýmislegt.
Mikil veikindi og fundahöld í skólanum í gær. Ég varð að vera ein með báða hópana í gær. Til allrar hamingu voru "bara" 30 börn, en hefðu verið 43 ef tveir bekkir hefðu ekki verið í kennslu. Og maður á bara að redda svona smámunum. Getið þið hugsað ykkur að vera með 30-43 börn í stofu með borð og sæti fyrir 27 börn!!!!! Frábært kefi í þessu landi. Ef ég þyrfti ekki nauðsynlega á þessum 250 evrum að halda, myndi ég sega upp. En þetta er rosalega vel borgað fyrir ekki meiri vinnu. Fæ um 25 evrur á tímann að meðaltali, en fengi um 10-mest 15, fyrir kennslu í heimahjálpinni, Studiokreis. (skilst mér).
Hvað ætli maður fengi fyrir að þýða bækur?
Jæja. Best að gleyma heimsmálunum og hugsa um að ryksuga.
Heyrðu Kristín Einars--hvernig er þetta? þú ert bara alltaf inn á facebook, en nennir aldrei að skrifa á bloggið! Engin frammistaða. Hvers konar netfíklar eru þetta í famelínunni! Bara allir mættir í facebook, -haldiði að ég geti lært á þetta, hehehehe.
Frí á morgun. Dagur sameinaðs Þýskalands. Getum sofið lengi.
Og farið nú í mótmælagöngu!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Afi-hann er æði!! Og já ég vil fara í mótmælagöngu...það virðast bara allir vera dauðir og enginn gerir neitt í þessum peningasukk málum hér á Íslandi-þjóðin er að breytast í mini útgáfu af USA..ojjjj barasta!!
Emma vinkona sagði að íslensk börn ættu eftir að þekkja Davíð Oddson sem íslensku útgáfuna af Bin Laden!!
kveðjur Arnhildur
Já-Dabbi kongur! Hann er ennþá forsætisráðherra, ekki nokkur vafi á því.20milljónkr lán í erlendum gjaldeiri hefur hækkar um 3milljónir frá því bankayfirtakan átti sér stað, obbosí... og seðlabankinn sem var að bjarga íslenskum borgurum frá kreppu! Nú förum við bara að éta íslenskt skyr og két og silung, kartöflur og ísl.villigróður, drekkum isl bjór og brennivín og skemmtum okkur upp á gamla mátann, gröfum okkur snjóhús og byggjum torfkofa! Lífið verður bara miklu skemmtilegra en áður
kv affí
já eða bara flytjum i burtu eitthvað þar sem gjaldmiðillinn er ekki að gufa upp. Held það nú bara :-) Ég hefði nú haldið að Margrét ætti að koma sem mest með Ástu í skólann það er örugglega miklu skemmtilegra að fara í skóla með einhverjum sem maður þekki!
Hefur ykkur ekki dottið í hug að Margrét fengi að fara upp í VMA eða MA? held hún eigi miklu meira erindi þangað en í grunnslólann. Þórdís komin norður þegar ég er með hósta og hor..og get ekkert skemmtilegt gert. Var heima fimmtud og föstud og er ekkert mikið betri í dag, en stefni nú á að fá bara íslenska vírusa í framtíðinni, þeir hljóta að eyðast jafn hratt úr blóðrásarkerfinu eins og verðgildi krónunnar úr hagkerfinu, svo ég er bara bjartsýn....
kv affí
Og enn sit ég og get lítið notað v.hönd.Er aftur byrjuð með Tinnu á morgnana,en er skráð með veikindafrí til 22 okt.Ætlum suður um næstu helgi í afmæli og ættarmót út af ömmu Dúu og afa Kristjáni.Förum á fimmtud.kv.og ég til augnlæknis á föstud.Flott að Margrét verður hér í jan.en é hef nú trú á að hún verði fyrir áfalli að koma í Ísl.skóla Eg ætla ekki að bjóða henni í minn skóla,en þar er einn bekkur með mörgum nemendum.Ég er nú eins og Affí held hún ætti frekar að fara í framh.skóla.Við Einar ætlum ekkert að flytja til útlanda þó fjármál landsins séu í molum og þó ég sé ekki hrifin af Davíð þá er nú ekki hægt að kenna honum um þetta allt.Hefði e.t.v.verið betra að fólk hefði ekki farið á neyslufillerí og hugsað betur um hvað það á- eða ekki á.En það er ekki að marka okkur sem erum ekki með margar miljónir til að hafa áhyggjur af, hvorki eign né skuldir.Og svo er nú eins og manni heyrist að það sé nú ekkert betra í útlöndum.Við ætlum allavega að borða kvöldmat í kvöld með góða samvisku..Kveðjur til ykkar allra frá gamla settinu í Steinahlíð.
Ja kannski er bara best að eiga engan pening í banka eins og við hjónin, skulda sama sem ekkert í erlendri mynt, við siglum bara áfram okkar veg eins og vant er ;) Vonum samt að þetta fari að lagast, þó það væri ekki nema að fá nýjan fréttaflutning, um eitthvað annað en fjölskyldur að fara á hausinn og fyrirtæki.....
Og svo er líka bara hægt að taka slátur og fara á sláturfyllirí eins og við gerðum í kvöld. Mikið fjandi var það gott. Ekki ónýt framleiðsla sem fór í gang í hríðinni (hríðunum?) í Kópavogi á fimmtudagskvöldið. Ég held að Margrét hafi gott af því að sjá bæði grunn- og framhaldsskóla og ég get tekið hana með mér ef hún þorir að koma með þessum grimma og stranga frænda. Erum við Álftavatn í ótrúlega fallegu veðri, logn, aðeins snjór og dásamlegur friður og ró. Enginn Davíð né Glataði-Geir, sem greinilega þjáist af verkkvíða og hefur sig ekki í neitt. Og Samfylkingin gleipir og gleipir til að halda völdum. Já, fojjjjj. Nóg um það. Frostið komið í 4 stig á mæli og ljósin speglast í kyrru vatninu meðan svanirnir syngja. Erfitt að toppa það.
Diddi
HæHæ.... ég fer alveg að blogga, er búin að vinna eins og geðveiklingur undanfarið, með 70 yfirvinnutíma á tæpum 2 vikum!!! fyrir utan dagvinnuna :þ
Svo eru saumaklúbbarnir þrír byrjaðir, börnin í dansi á laugardögum og fimleikum á sunnudögum.... fyrir utan stórskemmtilegu sláturgerðina hjá Þorgerði á fimmtudag þá stóð ég hér og bakaði í um 5 tíma í dag heheheh missti mig aðeins og er búin í bakinu og á leiðinni í heitt bað...
Hlakka til að hitta ykkur í desember
var að blogga :o) takk fyrir að ýta á mig :þ
Post a Comment