Thursday, October 30, 2008

Himininn er að gráta.

Úti rignir og rignir. Maður fær nett letikast í svona veðri. Eins og þið í höfuðborginni kannist örugglega vel við. Ein 4 stig, hrollur, hrollur! Margrét fór ekki í skólann. Er löglega afsökuð. Sjáum til hvort hún fer á morgun. Er búin að taka verkjalyf, og situr og horfir á sérstaklega gáfaða ameríska þætti. Malkolm eða álíka, og Scrubs. Allavega lætur það tímann líða.
Í gær kom Kira í ensku til hennar. Síðan hringdi ein mamman, sem ég kynntist í gamla skólanum. Bað Margréti að taka Lennart, í 6.bekk, í latínu kennslu. Hún ætlar að gera það á miðvikudögum á eftir enskukennslunni. Maður fer bara að græða á barnaþrældómi, hí hí.
Bakaði 4 brauð í gær, og skar niður. Setti í frysti og nú er til nóg í nesti handa dömunni í nokkrar vikur. Annars bara allt meinhægt.
Takk fyrir gott boð Affí mín. Við könnum þetta með aðfangadagskvöldið. Þú ert stoð og stytta í þessari famelíu. Margt hægt að leggja á þínar breiðu herðar!
Mikið var æðislegt að finna komment frá Arndísi Björgu. Takk frænka sæl. Þú mátt sko oftar láta heyra frá þér, og segja frá fjölskyldunni. Allri stórfjölskyldunni, sem pabbi veit aldrei neitt um :). Vona að þú sért frísk og allt í besta lagi með krílið og "stóra" barnið
Og líka takk Aldís Dagmar. Sjaldséð nöfn, og gaman að vita að þið kíkið af og til á síðuna.
Og svo takk til hinna tryggu lesanda. Þórdís fyrirgefur mér vonandi að opinbera svona myndir af henni, híhí. Alltaf gaman að sjá gamlar myndir, og mest þegar manni hefur farið fram síðan þá :)
Saknaðarkveðjur úr rigningunni.

No comments: