Sótti Margréti til Celle í gær. Við nenntum ekki í bæinn, enda er stefnt á ferð til Hannover á fimmtudaginn, á Infa sýninguna. Birthe fer til Mexiko næsta sumar sem skiftinemi. Margrét mun sakna hennar mikið. Þær stöllur hreinsuðu úr graskerjum, og skáru út andlit. Margrét fékk að eiga sitt Þarf að taka myndir og birta sem fyrst. Frau Kühle kom í heimsókn í gær. Ég þarf að passa köttinn fram á mið. Þá er best að halda uppteknum hætti og drífa sig á hjólinu. Aftur komin niður fyrir 77 kg, og eins gott að missa sig ekki í vitleysu.
Höfðum það huggulegt í gær. Kerti og kvöldmatur á stofuborðinu. Fiskrétturinn sívinsæli úr "Af bestu lyst". Eiga ekki allir þá ómissandi bók? Get vel sett uppskriftina á bloggið. (grænmeti, ananas og smurostur í pönnu, og allt ofan á fiskinn og beint í ofninn!)
Vorum að setja gömlu kerti, sem Margrét bjó til í Danmörk, í stjaka. Sum orðin vel skökk eftir áralanga geymslu :). Takk fyrir skrifin. Elsku Þórdís--var bara að stíða þér smá. Gott að þú sért ánægð í skólanum, og ég efa ekki að þú klárir þig fram úr þessu, og verðir rík og fræg á endanum :). Veit að við erum velkomin til þín. Við athugum það betur þegar nær dregur. Gott að þú sért allavega komin í frí þegar við komum.
Var að enda við að spjalla við þau gömlu í símanum. Allt bara í besta gengi. Vona svo að þið njótið sunnudagsins vel. Og þá sérstaklega að Malla mín haldi niðri matnum :) Vorkenni þér, en til mikils er að vinna!
Stefni á að drífa Klaus í langan göngutúr. Hann er reyndar kominn niður í 95 kíló. Eitthvað smá léttari. Við höfum það sennilega allt of gott. En ætla samt ekki að panta kreppu!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
12 comments:
Hæ. Gott að heyra að allt er í sóma í Þjóðverjalandi. Hér er allt í góðum gír, ég var í haustfríi á fimmtudag og föstudag og notaði tímann til að slappa af, þ.e. að segja á fimmtudag. Tók aðeins drasl úr bílskúrnum en annars var bara verið að snúast og svo bridge um kvöldið. Á föstudag fór dagurinn í steypuvinnu með Kristjáni lækni uppi á Mýrum, mikið puð en mikið gaman að finna að maður getur líka gert gaga stundum. Keyrði svo austur seint um kvöldið þar sem EHF er með 7 vini í heimsókn í eins konar afmælisheimsókn. Mikið leikið, mikið borðað og mikill hávaði á köflum - en engin vandamál. Förum í bæinn á eftir, heim í vel tiltekna húsið okkar eftir myndatökurnar fyrir fasteignavefinn. Hafið það gott, Diddi
veit þú meinar þetta vel hehe tók því ekkert illa enda skil ég að þið fáið öll nettan hroll þegar ég byrja að lýsa mínu daglega lífi í baráttunni við skólann og jú stundum langar mann bara að hætta en þá er það að fá góða hvatningu frá vinum og fjölskyldu ómentanlegt. Var að fá 7,8 í fjárhagsbókhaldsprófi sem er bara gott meðaltal var um 6,78 svo ég er yfir því. Fékk 6 í síðata prófi svo ég er búin að hækka mig um næstum 2 síðan þá og var ég þó yfir meðaltalinu líka. Sit hér og læri fyrir próf sem er á þriðjudaginn og er komin með sherry í glas híhí...
Byrjað að snjóa og frekar kuldalegt úti, en þá er bara að kveikja á kertum og sækja meira rauðvín... Við Hafdís fórum á tónleika með hljómsv Ný-dönsk í gærkvöldi, sátum fremstar og létum eins og sönnum grúppíum sæmir, blikkandi,stappandi og blístrandi á þá Jón Ólafs og Björn Jörund, hentum þó ekki brókunum okkar... he he, já stundum er hressandi að að fíflast, sérstaklega þegar ekki fer milli mála að það er bara verið að grínast og hafa það gaman. Sem sé, smá tilbreyting hér á þessu hundalandi...
kv affí
Ohhh.. öfunda þig Affí, þeir hættu við að hafa tónleika hér fyrir sunnan...
Diddi - fasteignavefinn????
Við á leið til Manchester á föstudaginn, verður vonandi ekki hrækt á okkur og okkur hent út úr leigubílum fyrir að vera Íslendingar, er að hugsa um að sauma finnska fánann á kápuna mína...
17 5 ára drengir hér í afmælisveislu á föstudaginn, og geri aðrir betur!!
Hildur keyrir og keyrir, þarf heldur betur að æfa sig vel í þessari klepparaumferð hérna...
Helga bíður eftir nýja danskjólnum frá saumakonunni, verður tilbúinn fyrir fyrstu keppni vetrarins í byrjun nóvember...
kvitti kvitt...
kr.e.
Til hamingju með daginn elsku Áslaug. Vona að það verði stjanað svolítið við þig.
Hafið það gott. Bestu kveðjur úr snjónum, Svanhildur
Til hamingju með daginn elsku mamma!!
Vona að Margrét stjani nú við þig, held reyndar að það sé engin hætta á öðru!!Og hún Margrét mín er svo með smá pínku ponsu gjöf til þín frá okkur!! Þín Arnhildur
Til lukku með daginn kæra frænka :o)
Hér njótum við veðurblíðunnar, logn og heiðskýrt og allt hvítt af snjó :o)
Innilega til hamingju með daginn. Hér er yndislegt veður, stilla og snjóaði ekta jólasnjó í morgun ;) Njóttu dagsins í faðmi fjölskyldunnar.
EÖ er í vetrarfríi fyrir norðan, flaug seinnipartinn í gær, einn í flugi og kemur aftur á mánudag. Verður smá hjá mömmu og pabba og svo í sveitasælunni :)
Elsku Áslaug til hamingju með daginn og takk fyrir kveðjuna til Halldórs.
Kv.Hildur
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Áslaug- hún á afmæli í dag. (Þú verður bara að ímynda þér mína ægifögru rödd syngja þetta) Var ekki viss hvort nokkur gæti sungið þetta fyrir þig almennilega en sem sé til lukku með daginn, vildi að ég væri hjá þér í köku-brauðréttaboðinu,fór bara i bakaríið og keypti smá vínarbrauð í tilefni dagsins. Saknaðarkveðjur-Affí
Elsku frænka!
Til hamingju með afmælið, vona að þú hafir átt góðan dag!!
Var að koma af kóræfingu, nú er byrjað að undirbúa aðventutónleika.
Manchester á föstudaginn, verið að skipuleggja hvar börnin verða á meðan ;)
Hildur Valdís biður kærlega að heilsa, situr hér við hliðina á mér... og auðvitað takk fyrir kveðjurnar til barnanna um daginn...
Post a Comment