Monday, October 27, 2008

Skóli og vinna.

Mánudagsmorgunn, og úti rignir smá. Okkur tókst að fara tímanlega á fætur :). Margrét fór á hjólinu, og var bara hress. Ég gerði æfingar út af bakinu og lyfti lóðunum mínum. Sem sagt góð byrjun á vinnuvikunni. Rólegheit um helgina. Maddý, Ássý og Maria Heim hringdu í mig. Svo fékk ég bréf frá Hildi frænku. Takk fyrir þetta allt. Voða notalegt að vita að þið hugsið til mín.
Fór inn á bloggið hennar Þuríðar Önnu í gær, (takk Malla mín ) en þar sem Klaus þurfti að komast í tölvuna, kom ég ekki í verk að kvitta. Geri það bara í dag. Til hamingju með barnabarnið Lilla mín. Bestu kveðjur til Sigga og Annett. Daman bara orðin 17.
Margrét fór í afmæli til Kathi á laug. Þau fóru til BS í Bowling. Svo var horft á DVD á eftir. Sótti hana um miðnætti. Var bara gaman. Þau feðgin lágu lengi í rúminu í gær. En ég fór á fætur klukkan 8, og skrifaði nokkur bréf á tölvuna. Kom loks í verk að skrifa Ragnheiði Sig. Bað hana að kanna hvort hægt væri að fá að setja Margréti í heimsókn til þeirra og við hvern ég ætti að tala. Vona að hún meldi sig bráðum. Við erum ekki enn búin að skila inn skriflegri umsókn, en það kemur að því.
Besta veður um helgina þrátt fyrir rigningu seinni partinn í gær. Enginn snjór eins og hjá ykkur.
Við Klaus fórum í langan göngutúr í gær. Á eftir var eplakaka úr frystinum :). Eitthvað þarf maður til að gleðja sig, ekki satt. Tók skurk í garðvinnu báða dagana. Hreinsaði meðfram gangstéttinni, sem er hundleiðinlegt verk. Nú hef ég vonandi frí fyrir fiflum og illgresi fram að vorinu. Tók líka í gegn beð í garðinum, og sópaði laufi og rakaði grasið, sem Klaus var búinn að slá á laugardaginn meðan ég var í verslunarferð í þorpinu.
Kíkti til Frau Kühle, sem gaf mér bók eftir íslenskan höfund, nýkomin út á þýsku. Árni Þórarinsson, "Tími nornarinnar" eða Todesgott á þýsku. Í vor gaf pabbi mér aðra bók eftir hann. Dauði trúðsins. Hlakka til að lesa þetta. Í sjónvarpinu var þáttur um Norðurlöndin. Þar var viðtal við Arnald Indriðason, og Colettu, sem þýðir bækurnar. Svo söng Egill Ísland er landið! Æðislegt, sniff, sniff.--
Við Margrét fórum í spil í gær. Eigum nú nóg af þeim, en komum ekki nógu oft í verk að spila þau. Ætlum að vera duglegri við það í vetur.
Jæja. Best að fara að gera eitthvað af viti. Eða þannig. Hafið það gott í kreppunni.

5 comments:

Anonymous said...

Kvitt, kvitt frá suðurhlutanum...
Aldís

ps manstu eftir bókinni minni sem ég sagði þér frá Áslaug? -Hún er að koma út heima núna um jólin ;)

Anonymous said...

Já gaman að þið skylduð spila saman þið mæðgur-veriði duglegar við það, því ég veit hvað Margréti finnst það gaman!!Og hún verður sko pínd til að spila við mig þegar hún kemur!!-ykkar Arnhildur...

Anonymous said...

kvitti kvitt... blogga vonandi bráðum :s
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Hér er allt á bólakafi í snjó, þurfti að moka göng út að ruslatunnunni svo hægt verði að tæma hana á morgun. Meters hár snjór á sólpallinum svo hér er kominn almennilegur vetur. Vantar bara sperlaangan um húsið og þá væri allt eins og í gamla daga á Skútustöðum...Kv úr snjónum

Thordisa said...

hér er kuldi en ekki mikill snjór og vetur er svona hálf og ekki þó. Mér líkar þó ekki kuldinn og er full af kvefi. Lítið að frétta langar til útlanda í sól og hita.