Frostið lætur ekki á sér kræla. Bara rigning í gær, og núna komin sól. Reyndar ekki sérlega hlýtt, en miðað við október er veðrið hið besta. Hélt Margréti bara heima í dag. Hún fer svo útkvíld og hress eftir helgina. Við spiluðum "Zug um Zug" í gær. Eitt af okkar uppáhaldsspilum. Og ég bara vann í annað skiftið! Fór að ná í lyfseðil á bílnum, og sleppti verslunarferð í rigningunni. Bakaði svo Strandkagerne, sem eru vissulega kreppukökur. Engin egg. Læt uppskriftina fylgja .
Í morgun fór ég út og tróð greinum og laufi í ruslatunnuna. Nokkuð, sem ekki má, híhíhí. Eigum að vera með sérstaka tunnu fyrir garðafganga. Svo í sturtu og upp í pils og leðurstígvél. Eftir að hafa gert æfingarnar fyrir slitgigtina og lyft lóðunum mínum. Fór með kökurnar í skólann, og líka í gamla skólann. Stansaði þar smá og drakk kaffi. Spáð góðu veðri fyrir helgina. Við erum bara hress. Vonandi þið líka.Vona að þið hafið það gott á þessum afmælisdegi Lillu! Saknaðarkveðjur til allra. Til hamingju með daginn Lilla mín. Hringi í þig á eftir.
Strandkager. ( Eða fínustu kreppukökur!:) )
125 g smjörlíki, 2 tsk vanillusykur (eða vanilludropar), 75 g sykur (3/4 dl), 125 g hveiti (2 dl), 35 g kartöflumjöl (1/2 dl) , 1/2 tsk lyftiduft. Hnoða í vél eða í höndunum. Móta 16 kúlur, og setja þær í muffinspappírsform. Stinga með puttanum holu í hverja köku og setja sultu ofaní. T.d. dökka sultu eins og bláberjasultu eða brómber, eða álíka.
Baka í 12-15 mín á 180 , blástri. (200 án blásturs). Bý oftast til tvöfalda eða þrefalda uppskrift og frysti slatta eða gef.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Flott uppskrift, spurning um að prófa hana næstu daga ;)
Góða helgi ;)
P.S. ég var í hnakkaþykktarsónar og allt lítur vel út :)
Hljómar vel, prófa þetta um helgina!
Búin að taka neðri hæðina í gegn, kveikja á kertum og er að undirbúa heimatilbúna pizzu...
Góða helgi öllsömul!!
Hvað er HNAKKAÞYKKTARSÓNAR???Er Malla að fara út í hestamennsku og þarf þá að setjan hnakkinn og önnur reiðtygi í sónar?
Kv affí
Ég er svo löt að fara í tölvuna svo ég var að lesa gömul bréf og skoða myndir.Það er nú mesta furða hvað þú lítur vel út-miðað við aldur og-- Án gríns það var gaman að sjá myndir og þið eruð öll flott.Einar minn var að ljúka við að mála hjónah.(skeiðvöllinn)og svo keyptum við okkur hillur sem á að setja upp á morgun.Ég verð að vísu fjarri,en það er messa í fyrram.og svo æfingard.á eftir til kl.17.En ég er í fríi á mánud,það er vetrarfr.en vistunin opin en við ætlum að skiptast á svo allar fái smá frí.Ég er alltaf í sjúkraþj.og þetta fer nú skánandi.Einar er löngu hættur að þurfa að klæða mig í bh.Erum að fara í læri til Stínu og Kidda enbarnab.er lasið svo fjölsk.kemst ekki í mat og við þrælheppin í kreppunni.Allur snjór að fara hvenær sem hann kemur aftur.Láki,Siggi og Kiddi fóru í rjúpur í morgun hef ekki frétt af veiði.Best að fara að tennsa sig til fyrir matarboðið.Kveðjur til ykkar allra frá Möggu móðu og Janusi.
Þessi uppskrift hljómar vel... þarf að prufa þetta við tækifæri :o)
Var að blogga :o) ef þig langar að lesa
Búin að prófa, kom vel út. Setti rifsberjasultu og svo prófaði ég að setja suðusúkkulaðimola, það var sko ekki síðra - hehe...
Post a Comment