Elsku Malla mín. Til hamingju með daginn. Saknaðarkveðjur og knús frá okkur hér í Meinersen. Vona að þú hafir það gott, og getir látið einhvern stjana smá við þig. En ef ég þekki þig rétt ertu að baka og snúast í kring um fjölskyldu og vini :) Líka hjartans kveðjur til Dags litla- eða stóra, sem átti afmæli í gær. Hugsið nú til mín meðan þig gúffið í ykkur kökunum.
Við Margrét erum komnar i haustfrí. Dásamlegt. Margrét fékk reyndar ekki frí fyrr en tveimur tímum seinna en til stóð þar sem leikfimi, sem féll niður í síðustu viku, var sett aftan við kennslu í dag. Hún var ROSA ánægð. :) En þar sem við erum hamingjusöm í sól og yndislegu veðri erum við ekki að setja svona smámuni´fyrir okkur.
Ég fór m.a.s. í hjóltúr í fyrsta sinn í langan tíma. Var eins og sprunginn sundhani þegar ég var að fara upp brúna. Var það ekki ég, sem lék mér að þessu í sumar? Skelfilegt hvað maður er fljótur að fara úr þjálfun. Og tvö kíló komin á mann aftur, sniff, sniff. Klaus er búinn að lofa mér að fara með mér í langan göngutúr á morgun. Og svo ætla ég að reka Margréti í að skokka sem oftast.
Ég var á fyrirlestri með Frau Kühle um nauðsyn hreyfingar fyrir bæði líkama og sál. Það var verið að kynna verkefni, sem unnið var í Hannover, "Bewegtes Lernen", eða lærdómur á hreyfingu. Sjúkrasamlögin tóku þátt í þessu, og veittu fjárlag til kaupa á húsgögnum, sem eru með hjólum, hægt að hækka og lækka. Halla sér fram og aftur.Gerð var nákvæm könnun á nemendunum í þessum stofum og hinum á venjulegu stólunum. það var líka fleira gert til að auka hreyfingu nemenda. T.d. að standa á fætur, og gera æfingar og leysa verkefni um leið. Sem sé að nota haus og líkamann. Og það kom í ljós að þau á "ferð og flugi" eru miklu meira "fit" en hin. Nú er Hannoverborgin búin að gera áætlun um að kaupa þessar mublur í svo og svo marga bekki þar til allir skólar og allir bekkir séu komnir með þetta. Gert er ráð fyrir að 2045 verði því lokið!!!!!!!!!!!
Það er nefnilega ekki verið að kaupa án þess að eiga fyrir því eins og heima.
Ég er búin að vera svo áhyggjufull út af þessum málum heima að ég hef ekki haft löngun til að hugsa meira um flugið heim eða annað i því sambandi. En nú er ég að hressast. Það er komið tilboð frá Iceland Air frá Frankfurt. Næstum sama verð og Express frá Berlin. Eftir að ath. um lestina. Í dag talaði ég við aðstoðarskólastjórann, og það er svo alveg sjálfsagt að ég fái frí til 12.janúar. Við getum því verið til 11.1., sem er mánudagur. Reiknum með að koma 19.12., en sem sé--verið að kanna þetta.
Klaus tekur sér frí í tvo daga í næstu viku og svo aftur tvo í seinni frívikunni okkar. Eftir að sjá hvernig veður verður og hvort við rennum eitthvert. Ætlum til BS á mánudaginn 13. Laugardaginn 17. gistir Margrét hjá Birthe í Celle.Margrét fær svo stelpur úr bekkknum á mán. 20., til að ganga frá lagi, sem þær eru að semja fyrir skólann. Svo er jú afmælið mitt, og við stefnum á ferð til Hannover þann 23. á húsmæðrasýninguna, Infa.
Það er kominn arinn hjá nágrönnunum. Rosa fínn. Flottur stál reykháfur á vesturveggnum (sumir vita hvaða veggur það er :)) Svo er Arthur að bora göt á vegginn og útbúa innstungu fyrir garðinn. Ég sagði Maju að ég þyrfti endilega að fá hann lánaðan. Hún segir að það sé nú ekki mkið mál. Enda held ég að hann myndi alveg hjálpa okkur ef ég bæði um það. Þau færðu okkur Prins Polo og valhnetur frá Póllandi. Í þakklætisskyni fyrir að hugsa um blómin og póstinn.
Sonja varð 5 ára á meðan þau voru í burtu. Skelfing liður tíminn.
Margrét fór aftur í gær til Kiru að kenna henni þýsku. Það gekk vel, og Kira kunni allt vel í tímanum daginn eftir. Margrét fékk tíu evrur samtals fyrir þessa báða tíma. Og er svo í kvöld að passa stelpurnar þrjár. Kemur um miðnætti, og ætlar að sofa lengi, lengi á morgun :).
Vona svo bara að þessi vandamál fari að leysast heima, og komi ró á aftur. Hér er talað um Ísland í öllum fréttum. En hér var sagt að öllum bönkunum hefði verið bjargað? Fór ekki allt í vesen í Landsbankanum? Breyttist það nokkuð?
Ég er enn á því að fara eigi með blys að húsi Dadda kongs og syngja mótmælasöngva og fara fram á að hann segi af sér. Því vissulega stóð hann fyrir því að halda krónunni of hátt uppi.
En best að láta það eiga sig um tíma, og ég óska ykkur alls hins besta og haldið vel upp á afmælin öll. Saknaðarkveðjur úr alveg ótrúlegu haustveðri á meginlandinu.
( p.s. Þorgerður. Já. Ég var að meina þessa bólusetningu. En hér hafa verið dæmi um að stelpur hafi veikst alvarlega eftir hana. Og ekki er búið að sanna að þetta geri gagn. En allar stelpur eiga að fá þetta ókeypis fram að 17 ára aldri. Ég er sko alveg á báðum áttum. T.d. mælir minn kvennsjúkdómalæknir ekki með þessu. Telur þetta enn eitt dæmið um það hvernig lyfjafyrirtækin nái að hala inn peninga. )
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
Takk fyrir afmæliskveðjuna ;) Hér er nóg að gera, Guðmundur og Arney komu hér í dag og verða til hádegis á morgun, þá koma tvíburarnir og verða til kvölds, þá koma Guðmundur og Arney aftur og gista. Vona að þau verði sótt á sunnudag fyrir klukkan 14, því þá er smá ættarmót út frá ömmu Dúu og afa Kristjáni. Svo já þú hafðir rétt fyrir þér með mig eins og alltaf hehe. Njótið haustfrísins saman :)
HæHæ.... ég og gamla settið vorum í fréttunum í norska sjónvarpinu í kvöld... þið getið séð fréttina á http://www1.nrk.no/nett-tv/nyheter/spill/verdi/76851 heheheh
Heyrumst
kv
Kristín heimsfræg í Norge :þ
ooooo þetta virkar ekki sem linkur, gerðu bara copy á linkinn og settu hann í gluggann efst og þá kemur þetta :o)
Erum í sælunni á suðurlandi,afmæli og ættarmót.Fékk æðiskast(í kreppunni)í búðum og er búin að kaupa mér óóótrúlega mikið af fötum.Einar minn gaf mér dress í afælisgjöf,ljósblátt pils með drappaðri blúndu yfir, peysu og bol í stíl.Keypti mér svo kjól-spari od mussu skræpótta.þetta var allt á niðursettu verði(þess vegna samþykkti Einar það)Og svo prjónakjól í gær.Svona er nú kreppan hjá mér.Svo er kaffi á morgun frá 2 til 5 sem afkomendur Ömmu Dúu og Kristjáns koma saman. Við mætum öll en Þorgerður stoppar stutt því kórinn hennar er með tónleika.Kveðjur frá öllum hér.Magga móða.
Takk fyrir afmæliskveðjuna til Dags Elísar.
Hef ekki heyrt þessa neikvæðu umræðu um bólusetninguna hér, skal kanna þetta nánar.
Mig er farið að langa til gera eitthvað skemmtilegt til að vega upp á móti áhyggjum af kreppu og tómum erfiðleikum. Ætla því að draga fram gömlu frönskubækurnar mínar og skemmta mér við að rifja upp löngu tapaða kunnáttu. Framtíðin er því franskar sagnir- rauðvínsglas og kertaljós og stefnan sett á að safna fyrir Parísarferð (takið sérstaklega eftir ,,safna fyrir"). Finnst að við ættum að fara fjölskyldu-kvennaferð þangað og fá Svanhildi og Arndísi B sem sérlega leiðangursstjóra. Tek því áskorun yfirvalda að horfa björtum augum til framtíðarinnar og setja mér jákvætt markmið til framtíðar!
kv affí
Ja, þið verðið að hafa kellurnar í báðum ættum með, því þetta hljómar svo vel...
Hva, ertu komin í bloggstopp Áslaug? Áfram, áfram...
Er ekki allt gott að frétta frá Meinersen? Kannski bara nóg að gera í haustfríinu.
Mér líst rosalega vel á Parísarferð og styð það að ferðin verði opin fyrir öllum ættum.
Bestu kveðjur, Svanhildur
Já, sammála Þorgerði og Svanhildi, báðar ættir skal það vera. Svanhildur er í raun kveikjan að þessum ánægjulegu vangaveltum því hún minntist á frönskunámið á blogginu sínu og kveikti algerlega í mér franska framtíðardrauma. Ég er þegar komin með smá sjóð undir koddann... ( better safe than sorry)he he.
kv affí
Post a Comment