Þriðjudagsmorgunn, og sólin skín. Ískaldur vindur. Eða manni finnst það eftir mjög gott haust. Reyndar sumir, sem segja að þetta hafi verið ömurlegt haust, en sitt sýnist nú hverjum. Vildi gjarnan vera komin í snjóinn heima. Verst að snjóbuxurnar, sem við pöntuðum handa KD eru ekki komnar. (koma í byrjun nóv.) Vonandi getur hún farið í eitthvað gamalt þangað til þetta kemur.- Margrét á engar snjóbuxur. Á einhver heima gamlar, sem hún getur notað? Gamlar af Hildi eða Þuríði, eða Aldís Dagmar??? Annars verð ég víst að kaupa nýjar handa henni.
Margréti þætti ekki slæmt að fá svona alvöru snjó. En hér er það eins og í höfuðborginni. Slydda og kuldi í stað alvöru veturs. En sjáum til hvað veturinn færir okkur.
Klaus þurfti á fætur klukkan 5.30 í morgun. Fór með lest til Frankfurt. Kemur í kvöld. Hann fer til Ítalíu á mánudaginn kemur. Okkur Margréti þykir það ósanngjarnt. Hann hefur ekki snefil af áhuga að fara. Hefur reyndar ekki mikinn tíma til að skoða eitthvað. En við vildum mikið gefa fyrir að fá að skreppa til Ítalíu þó stutt væri. Hann gistir í tvær nætur.
Merle kom í ensku í gær. Svo fórum við' Margrét til Gifhorn að láta laga kubb, sem losnaði á tönnunum. Hún beit á hann. Skruppum í bæinn og keyptum okkur almennileg eyrnabönd. Ekki veitir af þegar hitinn er kominn niður í 4 stig á morgnana.
Ég fékk körfu með blómum og olífuolíu frá skólanum. Allt gott þar. Héldum áfram að föndra haustmynd, sem þau voru byrjuð á. Sennilega heimta þau að vera úti í dag í sólinni, kaaaalt.!
Takk fyrir kvittið Aldís B. Var búin að frétta af bókinni. Spennandi og vonandi selst hún vel.
Það þarf ekki að pína Margréti til að spila spil. Hún elskar það hreinlega. Vonandi koma Þorgerður og fjölskylda norður um áramótin og þá verður farið í mörg spil í stórum hópi, ekki satt!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Er Margrét mín farin að reyna að éta spangirnar sínar?!! Hjá okkur er verið að brjóta upp gólfið á neðri hæðinni til að laga klóakið..er víst miklu meira skemmt en þeir héldu-og tryggingafélagið borgar sko ekki krónu, af því að þetta er endurnýjun en ekki "skemmd"!!!Þannig að þetta verður dýrt spaug. Klósettið og sturtan virka ekki, en við megum gista í húsinu hennar tengdó-þau eru í Vestmannaeyjum..og eiga stórt flott hornbaðker! Svo kannski fær maður að skjótast til Lillu ef okkur verður brátt í brók!!híhíhí
kveðjur Arnhildur mikið kvefaði pornodoggy
Hugsa að Lilla loki á ykkur Arnhildur - hehe...
Hildur á ekki gamlar snjóbuxur, því miður, en örugglega einhver sem á svoleiðis, t.d. er Þuríður sennilegast ekki með sínar á Ítalíunni.
Nýkomin frá Manchester, þar sem bretarnir tóku bara nokkuð vel á móti okkur. Flögguðum því svosem ekkert mikið hvaðan við vorum að koma... Jólainnkaup og fatakaup á frúnna sem orðin var fatalaus í vinnunni! Röltum um og borðuðum góðan mat, svo ekki er hægt að kvarta yfir helginni...
Nú heima með Helgu veika, Dagur gubbaði stanlaust hjá tengdó um helgina og vonandi taka ekki fleiri við!!
Ég hélt að þær systur Einarsdætur hefðu keypt nægan fataforða fyrir næstu ár, í kaupmannahöfn um árið... Hún hefur alla vega ekki haft neinn til að elta sig með slá á hjólum undir kramið eins og síðast, var með strengi í marga daga að ýta þessum ósköpum öllum á undan mér-engin kreppa þá nema í vöðvunum sem þurfti að kreppa til að bera H&M pokana he he.
kv affí
Iss þá vorum við aðallega að kaupa jólagjafir, bara "smá" á okkur systur, hehe. Hér var að klárast saumaklúbbur, ég hef aldrei haft svona lélegar veitingar, bakaði eina súkkulaði köku og var með hana glóðvolga + ís, keypti bollur með fyllingu og dýfði þeim í suðusúkkulaði + vínber í súkkulaði. Var svo með nachos og rjómaostasalsasósu, frekar ólíkt mér en smakkaðist allt mjög vel :) Svona er Ísland í dag :)
Post a Comment