Kominn 24.10., og vikan búin að fljúga áfram. Veðrið hefur verið æðislegt og kalt til skiftis. Á mánudaginn var það himneskt. Þvílík blíða og sól. Svo kom rigning og kuldi á þriðjudaginn. Akkurat daginn, sem haustmarkaðurinn árlegi var haldinn. Held að þetta hafi verið í fysta skifti sem við Margrét fórum ekki. Bara besta veður frá því, en ekki mikil sól, og mun kaldara.
Við Margrét tókum til í húsinu á mánudaginn. Svo komu stelpurnar til hennar upp úr hádeginu, og æfðu hér lag og texta, sem þær áttu að búa til fyrir skólann. Á meðan var ég úti að hreinsa beðið framan við húsið. Það var þriggja tíma törn með því að raka laufi og ýmsum snúningum. Var að gefa kisu á mán. og þr. Fór á hjólinu, nema seinni partinn á þr. þegar rigningin var byrjuð.
Þriðjudagurinn fór svo í baksturinn. Við mæðgur bjuggum til tvær eplakökur, köku madömunnar. Þær eru hreint æði! Er Maddý þakklát fyrir að kenna mér að baka svona fínt! Svo gerði ég rúllutertu Estriðar, og strandkökurnar sívinsælu. Tók franska súkkulaðiköku úr frystinum. Þetta er bara að verða eins og hjá Lillu, -maður á bakkesli í frysti. Önnur eplakakan fór sko líka í frostið. Nú, svo tiltekt og strauningar. Eldamennska, og slíkt.
Klaus þurfti að vinna á mán., þr. og mið., en kom heim um 4. Þau Margrét gáfu mér geisladisk með lögunum úr Mamma Mía, klút frá H&M. Þær himnesku systur Margrét og Arnhildur gáfu mér styttu með himneskri systur, ljósbláa með stjörnu í höndunum. Frá Arnhildi fékk ég svo nýjustu bókina eftir Liza Marklund. Klaus kom með æðislegan blómvönd.Og loks fékk ég "spariskó" frá Klaus og Margréti--sem Margrét keypti ein handa mér í BS þegar hún var að vinna þar! Ég varð alveg orðlaus. Var búin að segja að mér litist vel á þá, en ekki búin að máta þa. Margrét fór í þá, og ákvað að þetta myndi passa mér, sem og var. Þægilegir brúnir skór með lágum hæl, og "Sjokk"-innlögn. Þeir eiga að dúa vel og vera góðir fyrir bakveika aumingja, hí hí.
Við mæðgur settum náttúrlega Abbalögin á og sungum við að strauja dúkinn og leggja á borðið.
Daniela var lasin. Ramona kom fyrr um daginn með lestinni til Wolfsburg, og þær Susanne komu svo um klukkan 5 í kaffi, og eitthvað seinna kom svo Gregor. Þau voru í kaffi og kvöldsnarli. Sem var nú ekkert hoj eins og mamma segir. Rifið brauð í ofni að hætti Hillu, rækjurétturinn hennar Hildar Kára, sem ég lærði að gera fyrir meira en 30 árum. Enn í fullu gildi. Og loks graflax með Ikeasósu.
Fékk pottablóm frá þeim, baðsalt, handáburð, viskastykki, almanak til að vera með í veskinu og kaffi og súkkulaði.
En ekki má gleyma gjöfunum, sem ég fékk í sumar. Fína vestið, sem Maddý prjónaði og gullkrossinn frá mömmu og pabba.
Takk fyrir allar kveðjurnar frá ykkur á blogginu. Og svo allar hringingarnar. Takk, takk.
Í gær var sett í uppþvottavélina, og stungið af til Hannover. Þar vorum við í björtu veðri og logni á sýningunni Infa. Skoðuðum jólaskraut, og nutum þess að vera að horfa á fallega hluti og hlakka til jólanna. Ekki var mikið keypt, en fann þó jólagjöf handa Þórdísi. Fengum okkur kaffi og köku, og svo þegar nóg var skoðað, var stefnan tekin á nýja innkaupamiðstöð í miðbænum. Hún er alveg við járnbrautarstöðina. Í forljótri byggingu, en flott að innan. Eða eins og flestar þessar "Kringlur". Annað hvort líkar manni svona verslunarmiðstöð eða ekki. Í dyrunum mættum við Ramonu og Gregor, sem voru að þvælast í bænum. Gregor átti ekki til orð yfir því að við skyldum ekki hafa verið nema í rúma tvo tíma á Infa. Og ekki farið í nema tvær sýningarhallir. Tja, við fengum líklega ekki nóg fyrir peninginn, eða þannig :).
Settumst aftur niður við kaffiborð, og prófuðum nýjan kaffistað í miðstöðinni. Mjög gott kaffi, svona svissmokka tegund. Keypti mér langerma bol í Vero moda, sem kostar innan við 10 evrur. Við erum sko alltaf að spara ( en maður verður nú samt að fá kaffi af og til :) ).
Klaus var heima í afslöppun. Í dag skruppum við öll þrjú til Gifhorn að leita að dyrabjöllu. Okkar er næstum þögnuð. Fórum svo í göngutúr meðfram vatninu við höllina þar. Frekar hressandi, og logn og nokkuð bjart. Lítð gert í dag nema að horfa á sjónvarpið, og dúlla sér.
Fegin að heyra að Þuríður fékk betri fjölskyldu á Ítalíu. Þetta gerist nú verulega oft. Eins og t.d. með Kristínu Draheim forðum á Íslandi. Getur einhver sent mér bloggsíðuna hennar?
Öfundum ykkur af snjónum, en ekki af rokinu, sem er væntanlegt um allt land. Fegin að Sigurður Ágúst gat loks fengið vetrardekkin sett undir bílinn. Þórdís--ekki að tefja þetta lengur!Gangi Hildi vel að læra á bíl. Efa ekki að hún verði "betri" bílstjóri en "ökuníðingurinn" hún Þorgerður!!! Hvernig er hægt að fara til Manschester án þess að geta fengið gjaldeyri? Getið þið notað Visa--hvernig er ástandið í alvöru?
Hér er verið að krefja fyrstu bankastjórana um endurgreiðslur vegna illa unnra verka. Er ekki að koma að því að Davíð verði að borga fyrir slæma frammistöðu?
2 dagar eftir og þá byrjar ballið aftur. Við óskum ykkur góðrar helgi, og vonum að fárviðrið valdi ekki skemmdum né skaði fólk. Hafið það gott. Ykkar gamla Áslaug.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ökuníðingur hvað - hehe...
Já Hildi gengur ágætlega við aksturinn, svolítið stessuð á köflum blessunin og umferðin hér ekki alveg eins og þegar ég var að æfa mig á Akureyrinni í gamla daga.
Hægt að fá skammtaðan gjaldeyri hér, held fyrir 50.000 á farmiða. ekki hægt að nota VISA úti en debet á að virka. Við áttum dollara og notuðum þann pening sem við skömmtuðum okkur fyrir ferðina (já, Malla það geta fleiri verið skipulagðir - haha...)
Post a Comment