Tuesday, October 7, 2008

Milt og haustlegt.

Alveg að fara að fara í vinnuna. Takk fyrir kommentin. Hlakka til að fá fréttir af Kristínu og Sigga á kanínuveiðum! Og ekki eru tillögur Arnhildar verri á bloggi Kristínar. Eins gott að taka kreppuna ekki of alvarlega. Meðan ég man. Í gær var sýnd mæling á sjónvarpi í "stand by", og það eyddi 9 ---eitthvað. Allir að setja tenginguna við millistykki með slökkvara!!!
Var í morgun hjá lækni. Allt í lagi með skammtinn, sem ég tek af skjaldkirtlalyfjunum. Ekkert vesen með colesterólið, hjarta og blóðþrýstingur í lagi. Verra er að ég las í grein að fólk, sem væri með þessar heli-blabla bakteríur í maga, ættu miklu meiri vanda til að fá magakrabba. Þetta hefur greinst a.m.k. tvisvar hjá mér, en vona að bakteríurnar séu dauðar. Fékk tvisvar fúkkalyf gegn þessu.
Svo er hér mikið rætt um sprautur gegn krabbameini. En ekki allir á því að þetta sé gott. Ég veit sem sé ekki hvort ég á að láta sprauta Margréti fyrir 17 ára aldurinn. Hvað segir hjúkrunarfræðingurinn um þetta? Annars bara gott, og rólegt. Merle kom í gær í ensku. Ég verslaði heilmikið, en stal engum plastpokum. :) Er svo að lesa voða vinsæla bók eftir Simon Beckett, "Written in bone" Er hún til heima? Kannski góð í jólagjöf! Þetta er seinni bókin eftir hann. Frekar góð.
Malla mín. Buxurnar eru loks komnar og mamma þín hlýtur að geta tekið þær með suður.
Góða skemmtun í afmælistörninni mínar kæru frænkur!

4 comments:

Kristín E. said...

Bakterían heitir helicobacter pilori.... en svo veit ég ekki mikið meira um það mál.... vonandi getur Þorgerður ráðlagt þér eitthvað um það :þ

Anonymous said...

Sprautur fyrir krabbameini??? Hvenær kom það til sögunnar? og hvaða helicobacter pilori magaástand er á þér, ertu með þyrluflugmann í maganum?? ég gegn með ýmsar grillur í maganum en ekki flugmenn takk fyrir. Og hvað segir Klaus yfir þessu, mér er nú bara spurn. Annars allt þokkalegt að frétta, ekki búið að þjóðnýta mig alveg, en er samt þreytt eftir kvef og hita, þó öll að koma til.
kv affí

Anonymous said...

Affí þú ert snillingur!!!!
Ég var að fá mér íslenskan kleinuhring með súkkulaði í morgunmat..nammi namm..Svoltið mikið að gera hjá mér, engin kreppa í kláminu,hehe..Maður verður nú að fá smá unað á þessum verstu tímum!!
jors trúlí Arnhildur, með súkkulaði í maganum en engan þyrluflugmann!

Anonymous said...

Hér kostar það úr manni augun að fá þessa bólusetningu, enn verið að ræða hvort ríkið taki þátt í þessu. Mæli með þessu eindregið, og helst áður en stúlkur fara að stunda kynlíf! Þú ert að tala um sprautuna gegn leghálskrabbameini er það ekki??
Hitt með helocobacter pylori er vissulega rétt að ef hún er ómeðhöndluð lengi eykur hún líkur á magakrabba, en þú hefur fengið meðferð x2 og alltaf viss % fólks með þetta.
Já, það fer að verða eini ókeypis unaðurinn - hehe...