Þá er fyrri vikan að verða liðin. Haustfríið hálfnað. Og eins og alltaf er mest að gera í fríinu. Þá reynir maður að gera það, sem situr annars á hakanum. Hef verið að taka í gegn efri hæðina. Er svoooo þreytt á þessum húsgögnum um allt. Hvergi hægt að stinga niður fæti, hvað þá að ryksuga inn í hornin. Við tókum í burtu borð, sem Klaus útbjó í svefnherberginu okkar, og settum upp á háaloft. Settum kommóðu, sem er búin að vera í vinnuherberginu, þar í staðinn. Undir borðinu voru 3 litlar stálkommóður frá Ikea á hjólum. Tvær eru komnar í vinnuherbergið. Ein er á pallinum. Og allar litlu kommóðurnar þrjár, sem upprunalega voru keyptar undir súðina í vinnuherberginu, eru nú tómar uppi á háaloftinu. Og því til viðbótar ein kommóða úr stofunni. Hana fengum við frá vinkonu tengdó, og var aldrei prýði. Hillan stóra, sem var í sumar bak við hjónarúmið, og þrengdi rosalega mikið að, (-m.a. hafði Malla varla pláss til að skifta um skoðun þar á dýnu við hliðina á þessari hillu :) )er svo komin í vinnuherbergið í stað kommóðunnar. En ekki er nóg að skifta um mublur, heldur þurfti líka að fara í gegn um allar skúffur, og henda og sportera. Ég er sem sé búin að vera að þessu fyrir utan annað síðustu vikuna.
En við höfum líka haft það gott. Skruppum til BS á mánudaginn. Fórum á ferðaskrifastofu. Til að gera stutt mál úr því er að segja að við keyptum miða þann 19. des, og verðum komin heim undir 5 seinni partinn. Hvort Elli sé þá í bænum að sækja börnin eða hvernig við komumst norður er svo önnur saga. Við Klaus fljúgum svo sunnudaginn 11.janúar til baka, og Margrét þann 1.febrúar, líka sunnudag. Ég er með hjartað í hálsinum út af þessari vetrarferð, og ekki síst út af því að senda Margréti eina út. En vonandi fer þetta allt vel. Við fáum sjálfsagt ekki leyfi fyrir hana að fljúga síðasta kennsludaginn, en hún fær þá bara skróp. Þurfum af stað um klukkan 8 um morguninn.
Við föttuðum svo að á Akureyri eru strætóferðir um allt, og hún hlýtur að geta farið ókeypis í alla skóla. Svo við erum að spá í MA. Spurning við hvern ætti að tala?
Við gátum hugsað um þetta flug í 3 daga, og fórum svo aftur á fimmutudaginn til að ná í miðana og var eins gott því Flugfélagið var búið að spyrja eftir sætunum og vildi fá þau. Enda var þetta super tilboð. Kostar okkur Klaus um 270 evrur, og Margréti 350.
Við mæðgur vorum lengi í bænum báða dagana. Keyptum jólagjafir og Margrét keypti sér húfur, trefil og fingravettlinga. Hún er að leita að stígvélum, en finnur ekkert undir 100 evrum, og er það þýsk að hún vill ekki kaupa svo dýra skó. Held nú að hún finni samt ekki neitt ódýrara. 'I hverju ætli unglingar gangi heima? Það væri ekki gaman að hún væri eins og álfur út úr hól í janúar. Í hverju er t.d. Hildur Valdís á fótunum í skólanum?
Við hittum Danielu í bænum á mánudaginn. Settumst inn á kaffihús með henni og höfðum það gott. Ramona kemur norður á afmælinu mínu og verður í tvo daga. Þau Susanne og Gregor koma með hana í kaffi til mín klukkan 4. Svo verður kvöldmatur líka. Þess vegna renndum við til Ikea á leiðinni heim á fim., og keyptum rækjur, grafinn lax og frystan ferskan lax. Kíktum smá á jólapppírinn og skrautið. Sumt frekar skondið.
Klaus var í fríi í gær og fim. Við fórum í göngutur í gær eftir að Margrét var farin til Celle til Birthe. Mamma hennar kom við á leiðinni frá Wolfsburg, og ég sæki hana svo í dag. Um helgina fórum við í langan göngutúr. Öll þrjú. Svo var ég að passa kisu á mánudaginn, þr. og mið. Fór alla þrjá morgnana á hjólinu, straks klukkan hálf átta, og líka inn á milli á hjóli. En líka á bíl þegar við áttum leið út úr bænum. Við þurftum til Gifhorn á þr. því einn kubburinn á tönn Margrétar losnaði. Hann er núna aftur laus. Hún bítur á hann og við erum smeikar um að það verði að setja eitthvað á tennurnar til að það gerist ekki. En sjáum til.
Það var alveg æðislegt að skoða myndina af Kristínu, Maddý og Einari á netinu. Alveg rétt að Kristín vinnur við eina örugga bankann á landinu, blóðbankann:) Takk fyrir kommentin. Ég er alveg til í að fara til Parísar, en ekki hef ég neina sérstaka löngun til þess. Margt fleira, sem ég vil. En færi með ykkur hvert á land sem er. Þetta er svo fríður hópur.
Það er ekki neitt krepputal í ykkur. Bara pabbi, sem keypti frystikistu og kaupir upp allt kjöt á Gautlöndum til að eiga mat í harðindunum :). Maddý eyðir og spennir í fatnað, Affi situr við frönskunám og drekkur rauðvín. Og Þórdís er hvort sem er ekki í sambandi út af þessu skelfilega námi. Og Malla--bara orðin ólétt! Gerðist þetta kannski hérna í ferðalaginu !!!! Mér finnst nú að það megi loks koma ein valkyrja, svona ein alvöru lítil Malla. Alveg nóg komið af genum Össa. Þau lukkuðust vel, og þetta eru yndislegir orkuboltar. En hvar er stelpan, sem líkist dugnaðarforknum henni Möllu sem allt getur og gerir allt! Össi fær sko skammir ef honum hefur mistekist þetta! Hahahahaha.
Veðrið er upp og ofan. Ýmist æðislegt, sól og yndislegir haustlitir. Eða rigning og hvasst. Það er vissulega komið haust. En blómin standa enn og maður getur ekki tekið þau í burtu úr pottunum til að setja Eriku í staðinn meðan þau eru svona falleg.
Innilegar hamingjuóskir til Hildar og Sigga, og líka til Halldórs hennar Hildar frænku.
Er búin að heyra oft í þeim gömlu undanfarið. Eins í Arnhildi, sem vinnur eins og vitlaus. Hef áhyggjur af því að hún ofkeyri sig. Líka út af því að Fúsi hefur rosalega mikið að gera. Vona að hún þori að spyrja hvort KD og Alex megi fara í graut í dag í Norró, og þori að biðja ömmu að hugsa smá um mat handa þeim þessa helgi. Fúsi er fyrir sunnan í afmæli Hlyns. Hún því ein með krakkana. Margrét ætlar að þvo upp og hugsa vel um heimilið meðan hún er hjá systur sinni. Og við sjáum um jólahreingerninguna þegar við komum. Ekkert stress með það.
Svo er spurningin hvar við verðum á aðfangadag. Veit að Affí er sjálfsagt til í að halda stórfamelíuveilsu, en það bara má ekki alltaf koma niður á henni að hún sé með besta plássið. Hún situr alltaf uppi með uppvaskið þegar verið er að skjóta upp flugeldum og fara í partý eða í Norró. Það verður að hugsa vel um að hún geri ekki allt ein. Þið segið mér hvað þið viljið með þetta Affí og Arnhildur.
Jæja. Best að klára að strauja. 13 skyrtur straujaðar í gær. Baðið er i verri kantinum! Ó, þetta er indælt stríð.
Vona svo að litli frændi Ástþór Örn sé að ná sér eftir hálskirtlatökuna. Við sendum honum okkar bestu kveðjur. Ykkur öllum saknaðarkveðjur og við vonum að við fáum inni hjá Didda þann 19. des. og aftur eftir áramótin. Reikna frekar með að það verði auðsótt:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Nú það á bara ekkert að koma og gista hja mér!!!! Ég er búin í skólanum 16 des og byrja ekki aftur fyrr en 12 jan svo það er líka nóg pláss hér!!!! og námið mitt er ekki skelfilegt mér finnst þetta æðislegt og er ótrúlega ánægð og er loksins að gera eitthvað sem mér finnst skemmtilegt og skilar mér vonandi betri tekjum í framtíðinni og hana nú :-) kannski pínu þreytt við og við en hvað er það milli vina. Ég skal finna út hvað mín börn vilja og gott væri að heyra frá ykkur líka. Hér skín sólin og ég er hress og kát og ekkert stress :-)
HæHæ.... takk fyrir að blogga í haustfríinu :o) og takk fyrir afmæliskveðjuna til Sigga litla hehehe Það varð lítið úr afmælisfagnaði fyrir hann þetta árið en fórum út að borða 11. okt í tilefni af 40 ára brúðkaupsafmæli tengdaforeldra minna (sem var í maí) og svo varð tengdapabbi sextugur 13. okt... já einkasonurinn fæddist á afmælisdegi tengdapabba :o) Hlakka til að hitta ykkur í des og jan :D
Já ég bara bomm!!! Og þú spyrð eins og mamma, er þetta Þýskalandsbarn, en svarið er nei, made in Iceland ;) Vorum vel hvíld og ánægð eftir veruna í Þýskalandi, ætli það hafi ekki hjálpað til :) Góða helgi, ég stefni á að æla sem minnst.......
Post a Comment