Þórdís mín bara orðin svona gömul! En ekki minni kraftur í henni en fyrr. Sumu er illa skift milli systra, en ekki meira um það :). Innilegar hamingjuóskir til þín elsku Þórdís mín. Efa ekki að Ingó dekri við þig að vanda. Vildi vera nærri, en það verður bara i ellinni.
Vetrarmorgunverkin hafin. Þurfti að skafa af rúðunum á þeim bláa í morgun. Og þurka af rúðunum í herbergi Margrétar og á baðinu. Allt rennandi eftir frostið í nótt.
Eins gott að ég dreif mig út í garð í gær og klippti niður allar dalíurnar. Gróf upp ræturnar, sem ekki þola frost. Sumar voru heldur betur búnar að stækka og fjölga á sér. Þið athugið það nú þegar þið eruð komnar með garðinn í framtíðinni þið Svanhildur og Kristín að við dalíuræktun þarf pláss í kaldri og dimmri geymslu. Og hana hef ég ekki. Fór með tvo kassa með rótunum til bændahjónanna, sem eru svo vinsamleg við okkur. Eru búin að bjóða pabba og mömmu í grill, og komu hingað í vor að hitta þau. Ég truflaði þau náttúrlega við kvöldmatinn. Mundi ekkert að almennilegir þjóðverjar borða kvöldmatinn klukkan 6, og fara snemma í háttinn:).
Það er ósköp tómlegt framan við húsið þar sem fínu dalíurnar stóðu, en veturinn verður nú ekki lengi að líða. Alveg að koma jól, og svo alveg að koma vor og svo----.
Margrét var í skólanum í gær til rúmlega 4. Svo píanó klukkan 6. En nú verður stundaskránni breytt svo hún kemur einum tíma fyrr á þr., og fer í staðinn í fyrsta tíma á fö. Þær vinkonur flutti tónverkið í gær og fengu mikið lof fyrir. Örugglega 1 í einkunn. Aftur á móti fékk Margrét 3 í stærðfræði, sem hefur ekki oft komið fyrir. Vantaði einn punkt til að ná 2. Erfitt líf:)
Mikið er það nú gott að Arnhildur fari á snyrtingu til Lillu og ömmu og tengdó á næstunni meðan verið er að gera við ræsið! Hún sparar nú aldeilis klósettpappír á þessu! Affí, má hún ekki líka koma til þín! :) :) :) Æ, svona í alvöru. Þetta er leiðindavesen, og hábölvað að þurfa að borga svona stúss í kreppunni. Sniff, sniff. En verið bjartsýn. Gamli gleðibankinn er jú á leiðinni, og við sjáum um að þið verðið ekki úti vegna hungurs og kulda!!!!
Já, svo er það þetta með gjaldeyrinn. Ég skil þetta ekki vel. Þuríður er með kort--getur hún tekið út í útlöndum??? Gátu Þorgerður og Gilli borgað með Visa??? Eða er Þuríður með hollenskan reikning og Gilli með evrur í poka um hálsinn!!!
Við Margrét spörum og spörum til að geta hugsað um liðið heima. Við biðum sko í korter í bílnum okkar á bílastæðinu í Gifhorn til að þurfa ekki að borga í stæðið!!! Þarf ekki að borga eftir klukkan 5. Og ekki ætluðum við að láta kellingarnar setja sektarmiða á okkur, ó, nei. Erum við ekki góðar í þessu? Þetta hefði kostað heil 50 cent. Já, margt smátt gerir eitt stórt . :) :) :)
Ætlaði í göngutúr í morgun með Frau Göpfert, kórstjóranum, en þar sem kall kom til að yfirfara miðstöðina, varð ekkert úr því.
Hafið það gott, og til lukku með dótturina pabbi og mamma. Bara 50 dagar í 19.des.!!!!!!!!!!!!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Já, þegar að allt hækkaði aftur í gær, og Davíð kúturinn fór með einhverja yfirlýsingu fyrir hönd seðlabankans er sagt að hann hafi einfaldlega farið með fyrsta versið úr gleðibankanum "tekur bara út, en leggur ekkert inn"
ha-ha-ha
-Aldís D
Gott að önnur dóttir þín læri allavega að spara..þessi yngri sko! hin hefur aldrei átt nógan péníng til að spara, þeir bara hverfa bara alltaf eitthvað útí loftið, í mat og einhverja vitleysu... Við erum samt að spara klósettpappír þessa dagana!!
En ég þurfti að kaupa hóstasaft þannig að þar fór sá sparnaður...og svo er ég að kafna úr kvefi en snýti mér í hænurnar-segiði svo ekki að ég reyni ekki að spara..ykkar AH PornoDoggy sem ætlar að láta stytta nafnið sitt til að spara!!
ég veit ekki af hverju ég hef ekki kvittað fyrr en ég kíki oft hingað kæra frænka :) allt gott að frétta af mér og mínum, annað barnið á leiðinni (er hálfnuð og sónar á morgun!!) kær kveðja
Já jólafrí eftir 50 daga. Þið eruð að sjálfsögðu öll velkomin hingað í mat á aðfangadag og ef Fúsi og fj vilja vera hér allt kvöldið og opna pakkana hér þá er það bara rosa gaman, en þau verða að ráða hvað þau vilja gera, hvort þau vilja borða hér og fara svo eða vera allan tímann, þið sém sé öll velkomin, bara gaman að sameinast svona við huggulegheit og gerfijólatré ( að minnsta kosti eru menn með áhyggjur af því að ekki verði hægt að fá jólatré frá Evrópu vegna gjaldeyrisskorts..) Klippum þá bara greni og brennum til að fá lyktina. Annars allt gott. vorum í rosa kjötsúpu hjá m og p, alveg æði þar sem ég kom ekki úr vinnu fyrr en kl6 og verulega búin á því.
kv affí
Post a Comment