Monday, October 6, 2008

Mér er kalt.

Klukkan orðin 8 á mánudagsmorgni. Klaus tók Margréti með á bílnum. Smá slydda, og hráslagalegt. Ég er komin í flíspeysu og gollu utanyfir. Hrollur í mér svona snemma morguns. Enginn snjór hér, en Margrét er viss um að hún fái fullt af snjó á Íslandi, og hlakkar mikið til!!! Við vorum að skoða flug í gær. Það er flogið frá Berlin með Express á fö.kvöldum og mánudögum. Ég er ekki sérleg hrifin af Express, en það kostar 650 fyrir tvo með þeim, en það sama fyrir einn hjá Flugfélaginu. Við ætlum svo á ferðaskrifstofu eftir næstu helgi og athuga þetta betur. Líka hvort flugið áfram til Ak sé með í myndinni þar.
Ég hef verið að spá í þetta með MA og VMA. Mér þætti best að Margrét fengi tækifæri til að koma í sem flesta skóla. Hún verður hvort sem er ekki í verulegu námi, en getur tekið saman verkefni um skóla á Íslandi, sem myndi örugglega vekja athygli hérna. Er Annett í VMA, eða bara í háskólanum? Er alveg komin út úr þessu. Var að spá í að tala við Jónas græna út af MA. Eða þekkið þið einhvern, sem er þar betur til fallinn?
Og Kirstín loksins búin að blogga :) það var nú gott. Ekki furða þó að hún hafi ekki tíma til þess meðan hún vinnur eins og vitlaus. Að maðurinn skuli "láta bjóða sér þetta", æ, hann er víst íslendingur :). Hér flippaði tengdamamma út þegar ég bauð mínum manni upp á að fara bæði til Köben í örfáa daga og líka til Íslands um jól. Já, ólíkir heimar.
Og ekki hefur veslings Ingó það betra. Verður bara að hugsa um börnin og heimilið meðan konan situr við að drekka kókómjólk og dúllerast við að reikna dæmi:):):)
Vildi hafa verið komin i sláturgerð í Kópavoginn. Mikið eruð þið öll dugleg. Og svo sparið þið svo mikið. Affí leggur til að allir verði með hænur í sameiningu og mér líst vel á það. Er svo ekki fullt af villtum kanínum í borginni, sem ku vera fínasti matur! (ekki neitt fyrir mig :) )
Kristín hætt að kaupa plastpoka í búðum, og sparar og sparar. Það endar bara með því að þið náið þjóðverjum alveg í sparnaðinum. En mæli ekki með því að sturta bara í annað hvert skifti, hm,hm.-- Þarf nokkuð að kenna Möllu að spara? Löngu búin að læra að baka pizzurnar sjálf, og verslar í Kik í Þýskalandi :) Meðan ég man. Þessi pakki er eitthvað voða lengi á leiðinni Malla mín. Hinn er löngu kominn, en þessi með buxunum er á leiðinni norður, (búið að hringja í póstinn) og mamma þín ætti að geta tekið þær með um helgina. Þú heldur því svo saman hvað evran var þegar þú pantaðir þetta. Ekki ætla ég að láta þig borga núverandi verðið á henni, ó nei.
Gott að Madddý er farin að geta komist út úr húsi. Vissulega er þetta ekki allt Davíð að kenna. Íslendingar hafa lifað um efni fram, og eru orðnir hræðilega miklir neyslumenn. Kannski eins gott að ýta við þjóðinni. Hér verður líka allt dýrara. Gasið á að hækka eina ferðina enn. Talað um að það geti hækkað um 1200 evrur á ári fyrir eina fjölskyldu. og við tölum ekki um bensínið. Nágrannarnir okkar borga 350 evrur fyrir leikskólann fyrir Sonju. Hún er frá 8-16.30. Ekki er það nú gefið. En við höfum samt enga ástæðu til að kvarta.
Hér var himneskt veður á fö. eftir rigninguna. Vorum úti í garði að klippa niður jasminrunnann við "tjörnina" okkar. Kláruðum hekkið, og klipptum niður graskeraplöntuna. Hún er með gadda og versta plága. Veðrið í gær var svo lítið spennandi. Rigning og kalt. Svo hef ég verið að taka til í stofunni. Færa til bækur og drasl. Þrífa allt hátt og lágt, en auðvitað ekki búin enn.
Sé um að tæma póstkassan hjá Maju við hliðina. Maður gæti nú fengið smá depríkast við að koma inn til hennar. Það er allt svo fínt þar. Ekki troðið af húsgögnum, eða smáhlutum, og allt stílhreint. Fullt af grænum blómum, og flott veggfóðursblóm á veggjum. Hérna er ég að kafna í dóti. Hennti t.d. mörgum kílóum af bæklingum í gær.Við Margrét fengum smá kast að pæla í því hvort ekki væri hægt að færa til húsgögnin í stofunni. Við fáum af og til svona köst :). En það er ekki mikið, sem hægt er að gera. Þegar við getum keypt nýja sófa verður þetta hvort sem er betra, en ekki er nú útlit fyrir það á næstunni! Dett alltaf á rassinn með að athuga um vinnu.-Og svo ætlar Doreen ekki að koma í ensku fyrr en í des! Hún getur ekki sagt upp heimaverkefnahjálpinni fyrr en í okt.lok, og þau eru líka að spara. Það er reyndar ein atvinnugrein, sem þrífst vel hérna við þorpsjaðarinn, sem allir kannast við, sem hafa heimsótt okkur, en mig langar lítið í þá atvinnu, hihihihi.
Doreen og Margrét fóru í langa gönguferð á laugardaginn. En við gömlu hjón komum okkur aldrei af stað. Það er erfitt að þurfa alltaf að vera sá, sem drífur. Þarf endilega að koma mér í fastar venjur, sem gengur hægt. það er svo miklu auðveldara að fá sér bara kaffisopa en að fara í göngutúr meðan úti er slyddu og þokuloft. Er maður kannski eitthvað gefinn fyrir að liggja í leti!
Reyndar fór ég einu sinni á hjóli til að gefa kettinum hennar Frau Kühle.
Og svo smá sparnaðar uppskrift i lokin. Sjóða kartöflur og gulrætur í þykka súpu. Mixa það, og krydda með grænmetisteningum, og setja smá Creme fraiche úti. Getur ekki verið auðveldara.
Mæla svo með kanínusteikinni úr Öskjuhlíðí ! Hahahahaha.

4 comments:

Anonymous said...

Tja jú ég kann ýmislegt fyrir mér í sparnaði, helsta sparnaðarráð mitt núna eru leyfar úr leikskólanum, við borðum hér restar 2 í viku minnst, kosta ekkert ;) Ég elska Fríðu, nýja matráðinn í leikskólanum sem hugsar svona vel um mig !!

Anonymous said...

Spennandi tímar. Mér fannst samt best að vera við Álftavatn um helgina, í eina 4 klst. á sunnudagsmorgun í stafalogni og hundslappadrífu. Frábært að vera í pottinum í svona hríð. Annars helst að ég er að undirbúa ferð til Kalmar með bekk í byrjun nóv, nóg að gera í pólitík, Gumma gekk mjög vel (og kannski ótrúlega frábærlega) á tískuviku í París og svo elskum við öll Davíð. Varðandi Margréti og skóla þá getur hún líka komið í Kvennó sem er afbragð annarra skóla.
Kveðjur Diddi

Kristín E. said...

Kanínan úr Öskjuhlíðinni hljómar vel... hver veit nema maður skelli sér á veiðar um helgina hehehhe

Ég er nánast alveg hætt að kaupa pizzur enda eru þær bestar heimagerðar :þ hinar bara hálfgert frat eftir að ég fór að gera þetta sjálf.... og svo auðvelt þar sem ég fékk hrærivél í brúðkaupsgjöf (eða sem sagt ég og Siggi hehehe)

Bið að heilsa Klaus og Margréti :D

Anonymous said...

Hver á bestu uppskriftina að gómsætu kanínugúllasi? Þetta með hænurnar hefur líka vissa kosti,, ef fólkið í næsta nágrenni vakir lengi og er með hávaða og læti á nóttinni og heldur manni vakandi, þá er flott að vera með hana úti í garði...
Kv affí