Og afmælin líða hjá, eitt af öðru. Innilegar hamingjuóskir til Úlfs frænda, sem átti afmæli í gær. Og svo okkar bestu afmælisóskir til afmælisbarnsins í dag, hennar Kristínar Steinahlíðarskvísu. Mér finnst hún nú alltaf vera ein af þremur skvísunum í Steinahlíð eins og systur hennar. Kann ekkert við að hafa þær í Reykjavík! :) Talaði lengi við Lillu um helgina. Og alltaf er maður að heyra í þeim gömlu í Litluhlíðinni. Diddi sendi svo fínar myndir úr vetrarstemmingunni við Álftavatn. Svo er hann víst farinn til Svíþjóðar og kemur ekki fyrr en á afmælinu sínu.
Klaus fór í morgun af stað í sína ferð til Ítalíu. Dauðstressaður, en út af hverju veit ég ekki. Ekki fékkst hann til að taka með sér myndavél, því hann yrði ekki í Turin, heldur utan við borgina í litlum bæ. Ja, líklega er ekki hægt að taka myndir nema í stórbæjum, eða hvað? Við erum svo sannarlega ekki lík á þessu sviði við hjónin. Ég hefði farið með myndavél og notað hvert tækifæri til að skoða mig um. Jafnvel þó að ég hefði þurft að fara eldsnemma á fætur. Hefði svo endað á cappucino á sætu kaffihúsi. Nei, sumir kunna ekki að njóta lífsins.
En hann kom í verk að skrifa umsóknina um frí í janúar--eftir að Margrét hótaði að gera það ein :). Og ég fékk hann í góðan göngutúr í gær. Svo fórum við á laugardaginn til Gifhorn til að láta setja vetrardekkin undir þann bláa. Minn verður bara áfram á þeim gömlu, og því ekki í ökuhæfu ástandi í hálku.
Verslaði í Real á meðan Klaus fór með bílinn. Bara keypt pizza hér og ekki nein fín heimagerð eins og hjá Þorgerði, en kertaljósin voru líka logandi hjá okkur.
Var að skoða fínu myndirnar hjá Svanhildi. Flott grasker og enn flottari muffins. Hér var lítið um að vera á hrekkjavökunni. Kannski út af því að kirkjan heldur uppi miklum áróðri gegn Halloween þar sem 31.10. er nú dagurinn, sem Martin Luther hengdi upp mótmælaskrifin sín. Hér var haldin útimessa um kvöldið í garðinum hjá ráðhúsinu, og vel mætt. Engin kom að betla um sælgæti. En hjá Susanne í Fallersleben var hópur af leiðinda liði á ferð. Hún fékk ein 6-7 egg á húsvegginn og nágranarnir líka.
Daniela fékk vinnuna áfram!!! Hún er nú komin með fastráðningu, og getur andað léttara.
Seinni partinn á laugardaginn skrapp ég á kertakynningu hjá Janina, sem flutti í hús Söndru og Joy. Mamma Enno og Lukasar komu líka. Kertin eru dýr og stjakarnir líka. Og ég að spara. Í lokin lét konan okkur fá nafnspjaldið sitt og sagði að hún væri líka með aðrar kynningar. Nefnilega eins og hún Arnhildur mín sér um :) Mamma Lukasar pantaði kynningu um miðjan feb. Tja, ætli maður verði ekki að mæta þar, eða hvað finnst ykkur:) :) :) Gott var nú að komast út úr húsi og spjalla smá við fólk. Ég get nú trúað því að það fari nettur hrollur um ykkur við að lesa lýsingarnar um mitt daglega líf. Það er svo tómt og einmannalegt að enginn íslendingur vildi skifta við mig. Ég set mínar vonir á öðruvísi tilveru, sem gæti hafist eftir að Margrét er farin að heiman, og ég gæti tekið strikið heim í meira en bara nokkrar vikur í einu. Alltaf gott að eiga sér von sama hversu ólíkleg hún er , hehehe.
Skrapp til kisu um helgina, en bara einu sinni á dag. Hún er eitthvað lasin og étur lítið.
Bakaði marmaraköku á fö. Við borðuðum hana svo alla helgina. þetta er ekki eins og heima í sveit þegar hver kaka var borðuð upp í hvelli :) Gott að Þorgerður gat bakað kreppukökurnar, og fín hugmynd að setja súkkulaði í þær. Sko þessar íslensku húsmæður!
Úti er nokkuð dimm þoka. Á víst að vera svona áfram út vikuna. Og snjórinn fyrir norðan bara farinn. Alltaf sama vesenið í veðrinu þar.
Jæja. Óska ykkur góðrar vinnuviku. Takk fyrir kommentin. - Vona að Obama vinni og að hans bíði ekki sömu örlög og Kennedy. Ekki vildi ég þurfa að stjórna þessu liði í USA. Geðbilað lið upp til hópa. Eða hreinræktaðir hálfvitar eins og afi Siggi hefði sagt :) :) :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Takk fyrir afmæliskveðjuna :o) og kveðjuna á blogginu mínu ;)
Ekki hugsa svona mikið um að lífið þitt sé tilbreytingasnautt... mér heyrist hér á blogginu að hjá þér sé nóg að gera og fullt af fólki til að heimsækja.
Brostu og þá brosir heimurinn til þín kæra frænka.
Tek undir með Kristínu,smælaðu framan í heiminn, svo átt þú evrur svo þú getur orðið svaka vinsæl á Íslandi ef þú vilt he he. Ég er að reyna að skilja Facebook dæmið sem allir eru að skrifa á, er ekki alveg með allt á tæru, en vonast nú til að fatta þetta í lokin.
Kv affí
Hæ hæ það er bilað að gera hjá mér núna í vinnunni-beið allt eftir mér því ég var veik...voðalega er ég nú orðin ómissandi ha?!Vorum að fá jóladagatöl með dónadóti..tvö á leiðinni til Meinersen handa mömmu minni og Margréti..nei nei spaug-þau eru svo dýr að ég tími ekki að kaupa þau, 9592kr. takk fyrir!!sendi mömmu bara sexy jólaundirföt seinna í staðinn-kveðjur Das Klámhundchen.AH
Post a Comment