Við bíðum eftir hinu versta veðri. Á að koma með hvassan vind, slyddu, þrumur, frost og snjó í dag. Hvað verði úr því er annað mál. En allavega kom hundslappadrífa í morgun þegar þau feðgin fóru af stað á bílnum. Það er alveg kominn tími á að hann kólni og maður hafi það á tilfinningunni að vetur sé genginn í garð. Og jólin fari að nálgast. Á miðvikudaginn verður jólamarkaðurinn í BS opnaður. Og um allt eru markaðir allar helgar fram að jólum. Ekki nema rúm vika í fyrsta aðventusunnudaginn. Það verður því líklega farið að skreyta hér af kappi eftir helgina. Hér í stórbænum Meinersen verða í fyrsta sinn settar skeytingar yfir aðalgötuna. Í þessu 4200 manna þorpi ætti það að vera sjálfsagt, en hér fara menn varlega með peninga. Kannski líka betra svo ekki fari allt eins og heima.
Í gær pakkaði ég í tvo kassa til viðbótar. Nú get ég slappað af og snúið mér að öðrum hlutum. T.d. að jólakortunum, sem eru um 70 ef ég skrifa öllum. Eins gott að byrja að hugsa um það mál.
Það var hundleiðinlegt veður í gær. Ég rétt slapp milli skúra með kassana á pósthúsið, og svo lá peningaveskið heima á eldhúsborðinu! En þar sem konan á pósthúsinu þekkkir mig, er það ekki vandi. Sótti Margréti og skutlaði Kathi heim eftir skóla. Ekki beint góðar strætóferðir hér, og eins gott þegar mömmurnar hafa tíma til að redda krökkunum í dembunni.
Margrét er svolítið þreytt á Kiru, sem hún kennir þýsku. Erfið stelpa. Kemur úr moldríkri fjölskyldu, sem greinlega spillir henni. Þessi famelía fer t.d. til Hamborgar í klippingu! Kiru skilur ekki hvernig Margrét geti þolað að eiga svona lítið herbergi. Þarf maður að segja meira? Mamma Kiru vill gjarnan að Margrét kenni henni tvö fög í viðbót, en þrátt fyrir að Margrét sé að safna í farðasjóðinn, er hún ekki til í það. ( draumurinn er gisting á hóteli í Hollandi næsta sumar eða ferð til Sverige) En Lennart er ljúfur og góður.
Diddi-- það er 19.des. sem um er að ræða. Sem sé dagurinn, sem við komum til landsins. Hún á ekki að fá frí fyrr en eftir hádegið þann dag. En við þurfum að fara af stað um 7 eða 8 um morguninn. Sem sé eitthvað, sem hægt væri að finna upp fyrir seinni partinn þann 19., -sem er jú líka afmælisdagur Arnalds og Susanne mágkonu. ( hvort beygist Arnaldur Arnalds eða Arnaldar--finnst það seinna fallegra ?) Hann fæddist á fimmtugsafmæli hennar.
Þurfa ekki allir erlendu nemendur í Kvennaskólanum að hittast þennan seinni part, eða . Híhí.
Sendu mér bara boðskort á netinu, e-mail á ensku um að hún sé velkomin í ---- eitthvað-----.
Hvernig gengur í Bæjaralandi hjá Aldísi B. og fjölskyldu??? Hef ekki heyrt í þér lengi Aldís mín. Gaman væri að finna komment frá þér. Ertu komin með nýtt verkefni, eða eru það heimilisstörfin, sem fylla hug og tíma :) ! Bestu kveðjur héðan úr norðrinu.
Og Kristín líklega komin norður í laufabrauð? Vildi maður nokkuð vera kominn í það, sniff, sniff! Vona að tvíburarnir setji ekki allt í háalloft hjá ömmu, sem er búin að pússa allt og laga :) Veit að amma yrði svo fúl út af slíku :) Er reyndar með hugann á Akureyri þessa dagana. "Tími nornarinnar" gerist svo sannarlega á Akureyri. Gaman að lesa lýsingar á menntaskólabyggingunum og hinu og þessu í bænum. Sagan er góð, og þrátt fyrir að atburðarásin sé ekki hröð, er þetta bara spennandi. Og ekki spillir að höf. er oftast á sömu skoðun og ég :)
Í kvöld er svo lestrarkvöld og menningarsamkoma í menntaskólanum. Margrét fer og spilar og syngur lagið með stelpunum. Þetta sem þær stöllur sömdu. Ætli maður líti ekki inn og reyni að finna fólk til að spjalla smá við. Góða helgi og hafið það sem best. -- Munið að kíkja á myndir af gulldrengjum Sigurðar Ágúst. Komnar nýjar myndir. Og verið dugleg að kvitta. Líka hjá mér :) Það er ekki smá gellumyndir af Þórdísi og hennar skólasystrum. Ekki kreppulegar að sjá! Var að skrifa kveðju á blogg Þuríðar. Hún er hin hressasta. Og skamma Aldísi Dagmar fyrir að setja ekki myndir á sitt blogg :) Nú tekur við einn skúrinn enn. Best að hita sér kaffi!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ hæ bara láta ykkur vita að ég verð lítið til viðtals um helgina!! Vinna lengi og mikið í dag, svo heimakynning á morgun-bara 15 konur-og svo árshátíð slökkvó Ak annað kvöld!! Bara nóg að gera hjá mér!! Dögg verður hjá Dýru-já hjá Dýru, meðan við Fúsi hámum í okkur af jólahlaðborðinu hjá slökkvó-en don´t worry..Fúsi fær ókeypis þannig að ég borga bara fyrir mig..og tek með nóg af mat heim handa hænunum!!!
Ástarkveðjur og ég bara get ekki beðið eftir að fá ykkur til mín!!!!
ykkar dónakelling Arnhildur
Auðvitað erum við ekki kreppulegar við erum viðskiptafræðinemar verðum að halda uppi standard hehe joke maður getur látið sig líta vel út annarslagið sjáðu okkur svo restina af tímanum híhí.. hlakk mikið til að fá þig heim love you þín litla systir
Halló, halló! Jú allir á lífi hér í Bæjaralandi þó ég hafi ekki verið dugleg við að láta í mér heyra. Og jú ég er í öðru verkefni núna. Er að þýða breska skáldsögu fyrir útgáfufyrirtækið Sölku og á að skila núna í desember þannig það er eins gott að halda á spöðunum. Fer hugsanlega í smá "auglýsingaferð" heim á klaka út af bókinni en það er ekki alveg komið á hreint og ég eiginlega á báðum áttum... Hef eiginlega ekki tíma, langar samt.... Vona að þið hafið það rosa gott heima á klakanum um jólin, við verðum í Hannover hjá tengdó..
Bestu kveðjur, Aldís Björns
Tvíbbarnir ekki búnir að snúa Steinahlíðinni við.Ég varð mér út um ælupest svo ég slyppi við laufabrauð!!En án gríns þá breyddum við út 100 kökur á föstud.og svo var ég á settinu alla nóttina bæði Gullfoss og Geysir.Svo aðrir luku við laufabrauðið.Reyndi að fara í Norró e.h á laugardag,en Kristín skilaði mér heim eftir smá tíma.En þetta kláraðist nú án mín,enda valið lið.Kristín ,Láki og Annette voru í útbr.En svo var ég nokkuð hress í dag,fórum í Norrá og gengum frá kökunum,versluðum í "svínabúðinni"og fórum heim og bökuðum þrjár hrærðar lagtertur,hnoðuðum upp í 2kg.af mömmsum.Svaka góðar með okkur.Nú er Kristín búin að læra þetta svo nú sér hún um þetta næsta ár.Enda veitir ekki af fyrst að ég ýmis er brotin eða með ælu ef eitthvað á að gera.Það er sem sagt fjör hjá okkur í kreppunni og ætlum við í jólagj.leiðangur á morgun.Kveðjur frá okku öllum.Magga móða.
Post a Comment