Mánudagsmorgunn, og úti er falleg snjókoma. Snjókornin sáldrast niður í stillu og morgunrökkrinu. Það gæti ekki verið betra. Fór út í morgun klukkan hálf 7 til að hreinsa af bílnum, og skafa stéttina. Mikið var það gaman! Margrét fór með Klaus og kemur heim með Kathi. það var ansi mikil hálka á stéttinni. Ég fer víst ekki mikið á næstunni á sumardekkjunum.
Var að lesa langt blogg hjá Kristínu Einars. Æðislegt að lesa um laufabrauðsgerð og bakstur. Vildi svo sannarlega hafi verið mætt á staðinn. Voða sorglegt að Maddý skyldi veikjast. Vonandi að hinir sleppi við pestina. Og svo las ég bloggið hennar Aldísar Dagmar. Þar sem ég er ekki sérlega fær við tölvuskrif kann ég ekki að stækka letrið á blogginu hennar. Geri látlaust villur þegar ég tippa, og get illa lesið þessa smáu stafi. En þið megið alveg hlægja að mér! Aldís var líka lasin. Hvers konar pestarbæli er þetta. Viljið þið útrýma gubbupestinni af Fróni áður en við mætum!!!
Já, það var dugnaður í liðinu heima um helgina. Þorgerður að skemmta sér :) Arnhildur að vinna heilmikið. Og taka til í húsinu. Mamma bakaði pönnukökur og bauð Ella og Affí tvisvar í mat síðustu dagana, því þau eru önnum kafin í stigaskröpun, málningu og parkettlagningu. Mér líst ekkert á að þau fari að verða búin með húsið. þá hljóta þau að fara að flytja. Þau eru alltaf í því að gera mannkyninu eitthvað til góðs, og eru búin að gera upp mörg hús og hafa margir getað glaðst mikið út af því. Ef ég bara inni í happdrætti, skyldi ég sko kaupa húsið í hvelli!
Hér var fólk líka duglegt. Marlies á móti er búin að setja upp grenilengjurnar yfir útidyrnar. Og skreytingar í potta. Renata er komin með seríur úti. Við sóttum okkar aðventudót í gær á loftið. En erum ekki búin að ganga frá því. Nema hvað Margrét er komin með sitt dót á sinn stað.
Við Klaus gengum loks frá stóra garðstólnum. Settum hann á steinhellur svo að hann standi ekki alveg í bleytunni í vetur. Klaus tók vatnspumpuna úr sambandi. Við höfum aldrei verið svona seint að gera þetta. Það er enn mikið lauf á trjám. Við sjáum ekki vel í seríuna hjá Renötu fyrir þéttu laufi, sem er mjög óvenjulegt. En nú er veturinn mættur í alvöru. Við Klaus fórum í hálftíma göngutúr á laugardaginn, og vindurinn var ískaldur. Voða hressandi.- Margrét lærði fyrir próf. Ég setti svo greni í potta, og hreinsaði enn einu sinni laufin í burtu.
Svo var bakað og eldað af kappi. Reyndar ekki jólabakstur. En bakaði skinkuhorn til að hafa í nesti. Muffins og skonsur. Pönnukökur á laugardaginn. Og deig í hafrakex, sem bíða þarf í kulda yfir nótt.
Endaði á að baka eplalummur í kvöldmatinn í gær, og var alveg búin að fá nóg eftir daginn :)
Gigtin í hendinni á mér er tölvert að plaga mig. Ætti kannski að fá upplýsingar hjá Hildi frænku um hvort hægt sé að fá lyf gegn þessu, eða gera eitthvað. Læknirinn minn segir jú alltaf bara að 70 prósent af konum á mínum aldri séu með þetta--og þar með er málið útrætt.
En þetta er nú ekki neitt alvarlegt enn sem komið er.
Margrét og stelpurnar vöktu mikla lukku með lagið og sönginn sinn á fö.kvöldið. þær spiluðu bæði á gítar og píanó. Ulrike, einn af kennurunum í grunnskólanum, sagði--mikið eru þær með fínar og hreinar raddir! Það er synd að Margrét hafi ekki tækifæri til að vera í kór og syngja. Hún hefur rosalega gaman af tónlist.
Ég hitti þarna einn kennarann, sem ég vann með í haust við að sortera bækur fyrir skólann. Hann er frá Berlin. Diddi--getur þú sagt mér hvað leikhúsið heitir, sem Nonni og co gerðu upp í Berlin!! Þessi kennari er voða indæll. Ekki stífur eins og margir. Hann er giftur amerískri konu, og ég spjallaði við þau áður en þau fóru heim. Eru með lítið barn. Hún er " very happy" með Obahma eins og við. Loksins geta ameríkanar verið stoltir af forseta sínum.
Ég fékk loks bréf frá Ragnheiði Sig út af skólagöngu Margrétar í MA. Það eru náttúrlega próf í MA allan tímann, sem hún verður á Akureyri. En hún sagðist geta talað við Unu, konu Þóris Haralds, og kannað málið á VMA. Er ekki Annett líka á fulllu í VMA? Líklega væri best að hringja í hana. Kannski Þórdís gæti líka bjallað í Unu af því að hún þekkir hana svo vel og spurt við hvern ég ætti að tala og hvort þetta sé nokkuð mál yfirhöfuð. Hún þarf bara að fá einhverja pappíra uppá að hún hafi verið gestur í skólanum --frá -til--og ekki hvort hún hafi mætt alla daga eða þannig. Og best væri að hún gæti flakkað smá á milli. Hún myndi t.d. vilja vera sem mest í dönskukennslu, og þá væri hún nú á réttum stað að flakka með Annett.
Ef við komumst heil á húfi til Akureyrar þann 20.12, sem ég efa ekki--getum við þá ekki gert smá laufabrauð með Margréti og Aldísi D. á sunnudeginum 21. Bara smá!! Og svo konfekt. Er alveg viss um að bæði Aldís og Margrét séu spenntar fyrir slíku. Og KD og Arnhildur. Við tökum hreingerningunni bara létt, og það þarf ekki að vera 10 tegundir af smákökum. Vona bara að Arnhildur þurfi ekki að vera á fullu á sunnudögunum, en hún fær þá víst slatta af peningum svo kannski maður ætti ekki að kvarta. Allavega verðum við voða fjörug, dugleg, tölum mikið, og þið bannið mömmu að stressast í bakstri og hreingerningum!!!!!
Hjartans kveðjur úr jólasnjónum. Ykkar Áslaug.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hef ekki komist í að lesa bloggið þitt, eða kommentera, svo það bíður betri tíma. Hitti Ragnheiði Sig, og hún ítrekaði að best væri að senda Margréti í VMA, þar ætti hún að geta haft nokkuð frjálst val á verkefnum og tímasókn. Vorum enn og aftur í mat hjá m og p í gærkvöldi, svið-namm, Elli lagaði uppþvottavélina í leiðinni, bara stífluð leiðsla eftir allt. Erum enn að mála og skrapa, en kemur smám saman allt. Er á leið í kennslu eftir smá stund. Kv affí
Hæ hæ, ég var að vinna um helgina, og laga til og þrífa þegar ég var ekki að vinna, og ég er bara þreytt!! Þegar ég verð búin í vinnunni í dag þá ætla ég heim og upp í sófa og ætla að lúra þar...ohhhh mig er strax farið að hlakka til..sérstaklega því það bíður mín svooo margt að gera hérna í dónabúðinni í dag...ástarkveðjur frá þreyttum pornodoggy -ykkar Arnhidrzzzz...
Post a Comment