Thursday, November 6, 2008

Ekkert spes að gerast.

Klaus kom heim í gær. Hafði reyndar reynt að skoða Turin, en það rigndi svo rosalega mikið allan tímann að hann óttaðist að skórnir myndu gegnblotna. Var annars ánægður með ferðina. Fór með hinum tveimur á fínan veitingastað. Ekki keypti hann nú neitt handa okkur, enda mun Ítalía vera rosalega dýr. Á flugvellinum í Turin var verðið á rauðvíninu frá 20 evrum, og súkkulaði á 18 evrur. Já, já. Ekki nóg að eiga evrur, heldur þarf að eiga nóg af þeim.
Margréti gekk vel með latínuna í gær. Fær 10 evrur fyrir tímann.
Í dag þurfti að svæfa köttinn hennar Frau Kühle, og hún er alveg niðurbrotin. Skrapp með jólastjörnu (blómið) og setti á tröppurnar. Hún er lengi að vinna í dag á hinum vinnustaðnum. (Merðferð barna með vandamál vegna hreyfinga og lesablindu. )
Skreið upp í rúm í morgun, og svaf til 10. Var eitthvað svo búin á því þó að engin ástæða væri til þess. Var á fundi í skólanum kl. 14 út af lausri stöðu hjá okkur, sem verið er að auglýsa. Mætingarskylda hjá öllum. Gekk frá dóti og lagaði til eftir gæsluna þangað til fundurinn byrjaði. Svo sótti ég Margréti mína í skólann, sem var steinuppgefin eftir handbolta.
Lesa ekki örugglega allir kommentin, sem nenna á annað borða að lesa? Frábært hjá KE! Já, Arnhildur mín. Sendi mér bara útrunnið súkkulaði með "vafasömu" útliti :)
Bestu kveðjur til allra. Er að verða búin að fá nóg af þoku og raka í bili :)
Var það nokkuð típískt að Diddi skyldi rifbeinsbrotna í Sverige í fótbolta :) Vona að hann nái sér fljótt. Vorkenni honum voða mikið.

13 comments:

Anonymous said...

Ég les allt sem ég sé á þessari síðu, komment og allan texta, er fastagestur eins og allir vita. Batakveðjur til Didda, gott að hafa netið til að frétta um ættingjana. Kv. Malla

Anonymous said...

Segi eins og Malla að hér les ég allt frá a-ö!!
Gott að frétta af ættingjunum hér, láttu þér batna Diddi!
Líst vel á dagatalið frá Arnhildi til þín...

Kristín E. said...

Ég les líka allt hér alveg frá a-ö... stundum kíki ég ekki í nokkra daga en samt oft í viku... og finnst sko hrikalega gaman að lesa líka kommentin :o)
Bið að heilsa Margréti sem er svona dugleg að vinna sér inn evrur :o) og hlakka til að sjá ykkur öll þrjú í desember... og var að blogga :þ

Kristín E. said...

Já... og sendi batakveðjur til Didda fótboltafrænda... hann er greinilega að vinna í að bæta árangur Arsenal í fótbolta hehehe ekki veitir af :þ

Anonymous said...

Jú ég les líka allt þegar ég les, sem er nú reglulega. Það er voða gaman að fá fréttir af ykkur...já og öðrum líka í gegnum kommentakerfið. Ég held að ég hafi verið í meira sambandi við mjög marga hér á Íslandi þegar ég bjó í Danmörku en þegar ég er hér!!! Netið ágætt um margt.

Hafið það gott og við hlökkum til að sjá ykkur í des. Ég er búin að vera á leiðinni að senda til þín þætti sem voru í sjónvarpinu, gerðir upp úr einni af bókum Ævars Arnar. Sigurður þarf að aðstoða með smá tæknilegt atriði og svo sendi ég af stað!

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Þar sem ég veit að ættingjarnir lesa alltaf kommentin hér hehe...
Til hamingju með daginn kæri Diddi, vona að þér heilsist vel!!!

Kristín E. said...

Til lukku með gærdaginn Diddi :o) vona að ferðin heim hafi gengið vel þrátt fyrir íþróttameiðslin :S

Anonymous said...

Við Elli minn fórum að heyra Ingó spila í gærkvöldi, bandið hans er flott. Alltaf visst upplifelsi að fara á stað þar sem miðaldra fólk er í meirihluta, vel( þ.e. illa) drukkið upp til hópa, og einhvern veginn á ég alltaf fótum fjör að launa innan um "stærri gerð" eldra kvenfólks sem virðist njóta þess sérstaklega að ýta mér og hrinda við sem flest tækifæri. Kann betur við mig á kaffihúsi, með kakó og huggulegheit. kannski er þetta ellin. Þórdís og Auður K voru langflottustu gellurnar á svæðinu og gaman að hitta liðið.
Kv affí

Anonymous said...

Sæl. Já hér hittast ættingjarnir og ég nota tækifæri til að þakka fyrir bata- og afmælisóskir. Ég er alveg þokkalegur, enda ét ég eitthvað af pillum. Var að enda við að tala við þig systir sæl og við erum farin að hlakka til að sjá ykkur hér uppi á bjartsýnislandinu. Verð að viðurkenna að það var bísna gott að losna út því svartnætti sem hér er í fréttum og tali ráðamanna, sem enn hafa ekki áttað sig á gildi þess að vera með málin uppi á borðinu, slaka á pólitískum bitlingum og vinavæðingu og því að hvetja fólk til baráttu og skynsamlegrar bjartsýni í stað þess að nota sama liðið með sömu aðferðirnar til að endurvekja sama kerfið. Bylting - er það ekki það sem vantar? Við verður kannski búin að gera byltinguna þegar þú kemur í desember.
Kv. Diddi byltingarsinni

Anonymous said...

Tengdapabbi var að tjútta þarna "með" ykkur skilst mér og hældi bandinu - sem eru mjög góð meðmæli þar sem þarna talar maður með reynslu!!

Já, Diddi. Sama hugsaði ég þegar ég slapp úr þessu svartnættistali til Manchester um daginn!

Þetta er orðið algjört ættingja- og vinaspjallsvæði hér hjá þér Ádda!!!

Anonymous said...

Shit..gleymdi afmæli Didda alveg, en veit sko að hann á afmæli 8.nóv!! En bara þegar dagarnir koma þá man ég ekki eftir því-ég mundi sko eftir þessu 6.nóv og 7.nóv og ætlaði sko aldeilis ekki að gleyma þessu en úppss, svona er maður vonlaus stundum!!
Gleymdist alveg að setja í mig þessi afmælisdagagen frá mömmu!!
Við Fúsi skelltum okkur svo á dansiball á lau. og hittum bara Affí og Ella!! Og auðvitað Þórdísi og Ingó. Það var geðbilað troðið og manni var ýtt til og frá eins og tuskudúkku- sammála Affí með að fara frekar á kaffihús, þetta var sko too much!!
Kveðjur Arrrnhildur kreppasleppa

Anonymous said...

Arnhildur, við frænkur ættum að fara saman á dansiball eftir að hafa etið hákarl eða einhvern skrambann sem angar svo ferlega að allir víkja svo við fáum nóg pláss he he

Anonymous said...

Gamla frænka verður eitthvað að skrifa eins og hinir.ER alltaf að reyna að taka til nú er herbergið tilbúið og byrjað að gera stofuna hreina.Það gengur nú hægt,verður vonandi búið fyrir jól.Ég er nú ekki með sömu getuna að þrífa, er En svo er ég nú ekki alltaf heima er t.d.farin að hallast að því að ég sé fædd undir suslastjörnu(eins og lalla hans Bergs sagði um sig)En ég er nú ekki alltaf heima er t.d.að fara á söngæfingu núna.Það verður ekkert afmælisk.þann 13-bæði vegna rusls og starfsmannafundar.En það koma tímar seinna t.d. kemur Kristín í næstu viku með börnin og eru þau örugglega góð að aðstoða við það .Best að fara að ná í Stínu á æfingu,fyrst að skafa bílinn.Kveðjur til allra.Magga móða.