Friday, November 28, 2008

Aðventan nálgast.

Föstudagsmorgunn. Margréti illt í hálsinum og fór á bíl. Vonandi ekki neitt alvarlegt. Betra að hún ljúki við veikindi núna og verði svo hress þegar við fljúgum. Og nú er komið upp að Affí og Elli ætli að sækja okkur og gulldrenginn sinn á stóra jeppanum, sem ég hef ekki séð. Hann ku taka tvö rúm og fleira dót svo við ættum að geta látið fara vel um okkur ef við skyldum lenda í stórhríð. Mér skilst að þau leggi ekki af stað fyrr en laugardaginn þann 20., en ætli aftur norður sama dag. Þetta verður þá rosalegur sprettur hjá þeim, en hann Klaus minn getur líka keyrt stóra jeppa. Það merkir að við verðum ekki komin fyrr en seint um kvöldið þann 20. til Akureyrar, en betra að fara seint og vera á fullkomnum bíl með fullkomnum bílstjóra!
Aðalatriðið er að við komum!!! Nú--þá höfum við einhverja klukkutíma í borginni og getum hitt fleira fólk. Það er náttúrlega æðislegt.

Hjartans þakkir fyrir þitt framlag til þess að Margréti takist að fara án vandræða Diddi minn. Þú ert frábær. Ég var víst aldrei búin að óska þér til hamingju með nýja starfið í pólitíkinni--til lukku. En vona nú samt að allar stjórnir hrynji, og þið fáið nýjar, sem læri af mistökum hinna.

Það er aldeilis kraftur í Aldísi Björns. Farin til Íslands að kynna bókina sína. Verður í Mývatnssveit. Þið verðið náttúrlega að fara uppeftir. Og svo þýddi hún nokkrar barnabækur og fór með í bókaforlag.--Hvernig veit maður hvort búið sé að þýða þær á íslensku, eða jafnvel verið að því í augnablikinu, eða ekki, og hvernig finnur maður forlög? En það er satt. Það gerist ekkert nema maður sjálfur geri skurk í málinu. Kannast ekki við þennan rifhöfund, Sophie Kinsella, sem hún er að þýða núna. En þið?

Veturinn tók sér smá hlé, en hann á að kólna á morgun. Kannski ég noti tækifærið og fari til BS í dag. Eitthvað er jú enn eftir að gera. Sjáum til með það. Svo var jólamarkaðurinn opnaður á miðvikudaginn.
Skilst að nóg sé að gera hjá Þórdísi að venju. Leiðinlegt að Úlfur sé að spila og foreldrarnir komist ekki. En kannski Diddi og félagsveran og besti frændi, hann Eríkur Hákon gætu farið með honum svo Sella þurfi ekki ein.
Góða helgi. Njótið aðventunnar og gangið ekki fram af ykkur. Malla þú verður líklega að fela bakkelsið fyrir manninum þínum, híhíhí. Gott að það fellur í kramið.
Best að byrja daginn með því að ryksuga. Spennandi verkefni, eða þannig :)

2 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ Áslaug. Ég kannast við Sophie Kinsella...eða erum við ekki að meina þá sömu? Sú sem skrifað Remember Me og Undomestic Goddess? Ég man eftir einni bók eftir hana sem kom út fyrir 2-3 árum hér og heitir að mig minnir Draumaveröld kaupalkans. En í þessu er af nægu að taka. Ég var búin að hugsa mér að reyna kannski við litla bók sem strákunum var gefin í sumar en sá svo að hún var komin út á íslensku!! Svona er þetta, um að gera að hafa augun opin. Hafið það gott og vonandi að ekkert verði meira úr þessari hálsbólgu Margrétar.

Góða helgi, Svanhildur

Thordisa said...

hæhæ já nóg að gera en sem betur fer voru tónleikar Úlfs ekki þessa helgi heldur næstu svo þetta reddast! Fór í morgun að læra með Mikael en var svo löt seinni partinn og er því búin að baka súkkulaðibitakökur eins og mamma gerir og lakkrístoppa svona aðeins að gera með krökkunum. Ingó er í Bláa lóninu að spila í kvöld en er svo á Sauðárkróki á morgun. Kalt úti og lítið annað að frétta en skóli og aftur skóli.