Tuesday, November 11, 2008

Vorvindar glaðir.

Mér þótti veðrið í morgun vera líkara vori en nóvember. Hér voru 15 stig, nokkuð hlýr vindur og sólin kom fram í smá stund. Annars hefur hún ekki sýnt sig oft undanfarið. Ég fékk tiltektaræði í blíðunni. Þreif gluggana í stofunni og bölvaði þeim hálfvita, sem fann upp á hvítum plastgluggum. Mýflugnaskíturinn er nú ekkert miðað við það, sem þýskar flugur og kongulær skilja eftir sig. Og þetta brennur svo vel inn í plastið þegar sólin skín á þetta í 30 stiga hita. Held að ég hafi léttast um mörg kíló. En nú eru gluggarnir fínir og gluggatjöldin þvegin og stofan ilmandi eftir gólfþvott og tiltekt. Baðið líka tekið í gegn. Var búin að þessu áður en mætt var í píanókennsluna. Og endaði á að baka eina tertu um leið og ég tók til kvöldsnarlið. Fæ liðið úr gamla skólanum í kaffi á morgun, og líka Frau Kühle og Frau Schmidt, sem býr til kaffi á morgnana. Nú, og inn á milli var eldað ofan i blessað barnið, sem kom heim hálf fjögur. Snitsel á gamla mátann með kartöflum og sósu, svo og rauðkáli.
Var fegin að setjast á sófann og taka góða pásu í kaffinu yfir blessaðri sápunni okkar :)

Á morgun er verkfall hjá menntaskólanemum. Ekki smá búið að rífast út af því í blöðunum. Hægri flokkarnir segja að verið sé að nota þessi mótmæli til að setja út á þrískifta skólakerfið. En verið er að mótmæli of stórum bekkjum og þvi hversu margir tímar falli niður. Margrét fer til Kathi á morgun, -þ.e. ég ek þeim og við tókum kærasta Kathi í Leiferde með. Svo skila ég þeim til Gifhorn. Mamma Kathi sækir þau svo. Mér finnst þetta fínt mál.
Ég er sko byltingasinni eins og Diddi!

Það er orðið langt síðan ég skrifaði seinast. Hjartans þakkir fyrir öll kommentin. Æðislegt að þið skulið nota þetta sem fjölskyldufréttabréf! Mættu líka fleiri vinir og fjarskyldari ættingjar skrifa meira.
Voða er liðið duglegt að mála í kreppunni. Láki, Elli og Einar svona líka duglegir. Það verður nóg að skoða þegar við komum í des. Gvuuuuð ég hlakka svo til!!!!!!!!!

Við Margrét fórum til BS á laugardaginn. Gekk vel í fullum innbænum. Þurftum þrjár atrennur til að komast í bílahúsið. Versluðum ekki mikið, en gátum þó klárað ýmislegt af. Og fengum okkur kaffi á Starbucks, sem mér skilst að sé "bölvuð búlla", -svona eins og MacDon. En kaffið er bara frábært. Voða notalegt að þvælast eins og alltaf. Og vel þreytt þegar heim kom.

Á sunnudaginn kom Kira í þýskutímann. Hún gleymdi sér á fö. Við Klaus fórum í góðan göngutúr. Hann reyndar labbaði í stutta stund á laugardaginn, en svona án mín er það ekki nærri eins gaman. Svo var bakað. Heimilisfriður, sem ég hef ekki gert í lengri tíma. Og kanilsnúðar mömmu, sem hafa heldur ekki verið til í heila eilífð.
Í gær bakaði ég svo áströlsku bombuna, -þessa, sem maður hefur með karamellusósunni og ís.
Og kakan í dag er með súkkulaði, bananar á milli og rjómi! Verður sko flott á morgun.

Er búin að spjalla við þau gömlu af og til. Og talaði við Didda á sunnudaginn. Svo maður er búinn að frétta það helsta. Mikið er þetta blogg dásamlegt fyrirbæri!

Núna er klukkan korter yfir 9. Bakið og lappirnar alveg búnar að vera. Fer því í rúmið, og tek einn Eifel-krimma með. Elska sögurnar um hann Siggi Baumeister, sem býr í Eifel og lendir í hinum svaðalegustu glæpamálum. Siggi er típa, sem elskar sveitina sína. Elskar ketti, pípuna sína og bestu vinina sína, -fyrrverandi leynilöggu og hollensku konuna hans, sem er gyðingur og líka leynilögga. Fólkið í sögunum er eins og það væri af mývetnskum uppruna. Ég meina ekki beint litlaust! Það væri nú hægt að skrifa margar bækur um Mývetninga. Efa ekki að ykkur detti margir í hug, sem féllu undir litríkar persónur :)

4 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ vorum að fá sendingu með nýjum DVD myndum og mér datt í hug að deila þessum æðislegu tillum..nei titlum með ykkur:
Sexual Sushi(smjatt kjamms mynd)- Porn Wars( ég meina star wars hvað..)-
The mystery of the Sexy diamond (nei ekki Sexy gold afi...)
Black dicks in white chicks #4,(númer 4 takið eftir)
en besta er samt Österreich Privat:Entführt!Vom Wiener Christkindlmarkt-jólahvað?!!
ykkar Arnhildur Porndoggprivat

Anonymous said...

hehehehhe Siggi minn var að downloada Sex Trek-where no man has cum before um daginn hehehhe hún er hrikalega fyndin :þ

skoða þetta með porn wars heheheh hljómar skondið...

við erum sko star wars og star trek fans :þ

Takk fyrir bloggið Ádda....
kveðja
Kristín frænka pornódoggskvísunnar

Anonymous said...

Er Arnhildur með DVD myndina ,,shaving Rians private"?Mér finnst það alltaf lang flottast he he. Elli búinn að parketleggja svefnherbergið og mála og ég er að berjast við að sauma gardínur (hum). Bara eftir að setja upp fataslána í fataherbergið og svo bara að færa allt inn aftur. Nú er Elli að rífa teppið af stiganum, ætlum að skoða hvort hægt sé að pússa hann, svo nú er Elli að skrapa og lakkleysa þrepin, ekkert smá vinna. annars allt o.k
kv affí

Anonymous said...

Í ha, hvað þið frænkur tvær eru hressar í porninu ;)
Mér finnst réttur Áddublær yfir þessu bloggi núna, vinnusöm og jákvæð, flott flott. Kv. Malla hvalur