Saturday, November 29, 2008

Hann snjóar jólasnjó !!!

Nóvember ætlar að enda með fallegum hætti. Úti er allt hvítt, og þó að snjórinn hverfi sjálfsagt með deginum er þetta ósköp falleg sýn. Voða notaleg tilfinning þegar maður þarf ekki að fara út úr húsi. Nema hvað mig vantar víst eitthvað úr Netto.
Takk fyrir athugasemdirnar. Svanhildur kannast við Sophie Kinselle, sem Aldís er að þýða. Akkurat þessa bók, "Remember me", sem hún er að þýða. Sá í gær að hér eru til þó nokkrar bækur eftir hana, sem er búið að þýða á þýsku. Eittthvað í anda Bridget Jones sýndist mér við lestur aftan á kápunni. Líklega ætti maður að kanna þetta betur.

Margrét er lasin. Sótti hana í skólann upp úr 9 í gær. Illt í hálsinum, og var með smá hita í gær. Ég var bara vond mamma, og skildi hana eina eftir. Fór til BS að versla. Það var æðislegt veður. Engin hálka, og ég fór af stað snemma. Ekkert mál að fá stæði fyrir klukkan tvö. Bara umferð úr bænum. Og mætti svo bílaröðinni þegar ég ók til baka undir 6. Rétt labbaði í gegn um jólamarkaðinn. Ekkert gaman að fara ein. Og fékk mér hvergi kaffi. Var bara á fullu í 3 tíma, og kom heim eins og sprunginn sundhani. Færði veiku stelpunni minni glæra könnu frá Starbucks með jólamunstri. Svona hvítum snjókornum. Klaus kom ekki heim fyrr en eftir 5. Hann reyndar fór út í búð og keypti mjólk. Hitaði mjólk með hunanig handa Margréti. Ótrúlegt að hann skuli rata út í búð :)

Margrét talaði við Arnhildi í gær. Hún var á leið suður á Hótel Loftleiði--ef við skildum þetta rétt. Boðin í flug, gistingu og hlaðborð frá yfirmanninum. Og Fúsi og KD fóru með. Það er að segja - ég vona að þau hafi komist. Hef ekkert frétt enn. Þetta er alveg æði. Vona að þau skemmti sér vel, og njóti helgarinnar.

Gott að þetta reddaðist með tónleikana hjá Úlfi. Er maður ekki skrítinn að vera með áhyggjur af ykkur--hér 2000 km í burtu!

Þá held ég að tími sé til kominn að ganga frá aðventuskrautinu, sem eftir er að setja upp. Gluggastjörnur og eitthvað fleira. Ná í Julíusar könnurnar í skápinn fyrir morgunmatinn á morgun. Svo þarf að pakka inn gjöfunum handa fjölskyldu Klaus. Förum í afmæli til Ramonu á mánudaginn. Hún verður 25 ára. Ætla að taka jólagjafirnar með því hver veit hvort við sjáumst aftur áður en við fljúgum. Svo á Frau Kühle afmæli þann 3., og um kvöldið er fundur í foreldrafélaginu.
Góða helgi.

3 comments:

Kristín E. said...

Til lukku með jólasnjóinn :o) hér er bara autt en hrikalega kalt og á bara að kólna á morgun held ég :S væri frekar til í snjó en eingöngu frost...
Ég er búin að vera svo mikið á fullu eftir að ég kom að norðan að ég er ekkert farin að blogga um restina af ferðinni en geri það vonandi næstu daga.
Heyrumst og sjáumst vonandi aðeins í desember... ég er á 22 tíma vakt 19. des :S þannig að kannski missi ég af ykkur... kemur í ljós

Thordisa said...

Kristín Dögg komin til okkar og við búin að fara á Subway og ég keypti nammi og snakk og þau eru öll að skemmta sér vel. Ég er búin að skreyta smá og ætla að bjóða börnum mínum upp á aðventukaffi á morgun en er reyndar á námskeiði til kl 5 svo það verður síðbúið kaffi.

Anonymous said...

Ætlum að sækja ykkur og VÖ þann 20, getum ekki lagt af stað suður fyrr en um morguninn 20 þar sem Elli er upptekinn allan föstudaginn, en við þrumum okkur bara norður aftur seinni partinn. Hvað segið þið um þetta, verðum nú að snúast aðeins með ykkur eftir móttökurnar í sumar. Kv affí