Í dag spjallaði Margrét við umsjónarkennarann, hana yndislegu Frau Portale. Hún segir að Margrét eigi bara að skila inn pappír frá mér um að hún sé veik þann 19.des. Ekkert mál. Ekki það að það væri alveg góð hugmynd að fá smá "boðskort" upp á að mæta í boð hjá útlenskum stúdentum ,eða þannig.
Kira kom í dag. Allt bara í lagi. Genin hennar Margrétar í latínu eru víst frá afa Erni. Ég lærði latínu bara í vali, og kann ekkert og var aldrei klár. Já, hún má þakka fyrir öll genin, sem henni voru úthlutuð. (sniff, sniff, æ,best að vorkenna sér ekki opinberlega :))
Það væri æðislegt að fá að koma við í Kópavoginum og hitta litla bróður og synina þann 19.12. Við stefnum á að fara straks norður daginn eftir. það er bæði óvissa með færð og alltaf svo margt að gera fyrir jólin. Við viljum gera sem mest. Laufabrauð, konfekt, tiltekt, aðstoða Arnhildi í búllunni, drekka mikið af kaffi í Norró, skreyta með afa gamla, og fara í bæinn í miklu jólastuði. Við höfum þetta eina kvöld fyrir sunnan. Það væri ekki verra að fá að koma við á fleiri bæjum :) T.d. má alveg bjóða okkur í kvöldkaffi eitthvert. Alveg nóg að bara svona 8 tegundir séu til með kaffinu -- hahahaha. EF við komum á réttum tíma, lendum við tæplega hálf fimm. Spurning hvort einhver vilji sækja okkur. Og hafi tíma.
Það væri náttúrlega æði ef Elli og Affí myndu græja jeppann og sækja okkur og börnin tvö. Við hljótum að geta sett töskurnar í flug eins og síðast, eða? Það væri bara líka svo gaman að hafa Ella til að spjalla við. Hann nennir alveg að röfla smá við minn þögla mann :) En hvað komast margir í bílinn?
Þið kannið þetta sem fyrst. Því ef við ætlum að fá leygubíl hjá Kidda Tomm þarf sennilega að ákveða það fyrr enn síðar.- Nú, og við gætum líka verið í samfloti ef ekki væri pláss fyrir alla svo og farangur í jeppanum.-
Já, Þorgerður. Það fer bara alveg að koma að þessu! Ég get eiginlega ekki trúað því að við séum að koma. Síðast vorum við heima um jól fyrir 4 árum.
Það er nú gott að Arnhildur mín sé komin með Ottifanten-dagatölin upp á vegg. Fyrir þá, sem ekki þekkja til, eru þetta fígúrur, sem hinn frægi Otto grínisti fann uppá. Og hans húmor er í anda Mr Bean, og þar af leiðandi í uppáhaldi hjá dætrum mínum.
En Arnhildur mín--er enginn sími í vinnunni þinni eða e-mail--nærð þú aldrei í mágkonu þína :)
Klaus fór í klippingu í dag svo hann verður þá ekki alveg eins og hann komi af fjöllum í þetta skiftið. Við höfum náttúrlega ekki efni á að fara í klippingu á dýra Íslandi, og verðum því bara hallærislega þýsk, híhíhí. Nema hvað það gæti farið svo að Margrét hafi ekki tíma til að fara í klippingu, og við neyðumst til að koma henni á stofu heima. Hvað ætli klipping og strípur kosti núna hjá ykkur ????
Mamma las fyrir mig auglýsinguna um bók Aldísar B. Segir að það flott mynd á forsíðunni. Þið megið aldeilis vera fegin að ég skyldi ekki blamera fjölskylduna með því að segja mína sögu þar. Aldrei að vita hvað maður hefði sagt af svaðalegri æsku á bökkum vatnsins :)
Aldís mín--til hamingju með bókina!!! Og hvaða bók ertu að þýða núna??? Eða er það leyndarmál? Mig langar alltaf að prófa að þýða bók, en veit ekki hvernig maður fer að að fá samning. Það eru t.d. margar góðar þýskar bækur fyrir börn, sem ég vildi að íslensk börn gætu lesið.
Í dag aðstoðaði ég smá í skólanum. Maður fær bara áfall af því að vera innan um þessa stráka, sem eru svo skelfilegir að orð ná ekki yfir það. Það er víst að ég hefði ekki orðið góður kennari í dag. Get ekki stilt mig um að verða reið út í svona asna. Og það er jú það sem þeir vilja. Held að maður ætti að láta þá hlaupa einn hring í kring um skólann á korters fresti. Kannski færi eitthvað af orkunni í það!
Skrifaði Ragnheiði í gær. Bað hana að tala við Unu. Svo sjáum við til með framhaldið.
Þessi vika fer að verða búin. Það er bara að koma desember. Eru ekki allir í stuði!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Sæl. Búin að tala við námsráðgjafa í Kvennó um "fund með börnum af íslenskum uppruna um framhaldsskólann á Íslandi" í tilefni þess að þessir krakkar eru að koma heim í jólafrí. Hann verður kl. 15 þann 19. Sendi þér boðskortið þegar ég verð búinn að ganga frá þessu með hjálp þýskukennara. Þeir eru alveg tilbúnir að spjalla við Margréti um skólakerfið og stöðu hennar - jafnvel þó það tefðist og hún kæmist ekki í viðtalið fyrr en eftir jól. Myndi þetta duga? Og ein spurning. Ætlið þið norður samdægurs eða daginn eftir? Þið eruð að sjálfsögðu velkomin að gista ef þið þurfið á slíku að halda. Kv. Diddi
Halló kæra Áslaug...
Nei ekkert leyndarmál hvaða bók ég er að þýða! Hún heitir ,,Remember me" eftir Sophie Kinsella. Ég komst nú inn í þetta með því að þýða einmitt nokkrar barnabækur sem ég var hrifin af, hafði svo samband við íslenskt útgáfufélag og bankaði svo þar upp á þegar ég var á Íslandi og þeir höfðu svo samband við mig og spurðu hvort ég hefði áhuga á að þýða þessa bók fyrir þá... Það gerist ekkert nema maður hafi frumkvæðið sjálfur... Er annars að fljúga heim á morgun til að taka þátt í smá kynningu á bókinni minni... Les 2x í Mývó og svo fyrir sunnan... Mjög spennt að sjá hvernig þetta verður! Bestu kv. Aldís
Áslaug mín, hefur þú ekki séð bílinn okkar Ella?? Við fluttum m.a. tvö rúm á löppum suður í haust, ásamt öllu öðru dóti krakkanna svo nóg er plássið. Erum komin á nagladekk svo það ætti ekki að stoppa okkur, bara spurning um hvaða tími verður til að fara, gætum alla vega ekki farið fyrr en morgunin 19 suður og heim þá sama dag, Elli er bundinn í HA allan föstudaginn. Skoðum þetta allt. Kv affí
Post a Comment