Tuesday, November 25, 2008

Margrét í jólaskapi.

Aftur er næstum allt hvítt. Þetta er svo sem enginn snjór, en það er þunnt lag yfir öllu. Smá frost í morgun. Í gær var unaðslega fallegt. Margrét er svo rómantisk í sér að hún kann vel að meta fallegt veður. Sólin skein á hvíta jörð. Himininn var rauður og fagur þegar sólin settist, og enginn vindur til að spilla fyrir. Í morgun fór daman svo á hjólinu. Mamma gamla smá smeik um að hún ditti í hálkunni. En hún sagði að úr því að ég þyrði ekki að aka, yrði hún að þora að fara á hjóli! Sko mína.
Við erum komnar í jólastuð. Eins og Arnhildur vorum við að setja upp jóladót. Íslensku jólasveinana, Krippu-stytturnar, og strauja gluggatjöldin og setja fyrir -auðvitað áður pússaða glugga í stofunni og eldhúsinu. En ekki er ég búin að kveikja enn á aðventuljósunum. Bíð nú með það til helgarinnar. Margrét gekk frá jólaþorpinu sínu. Við höfðum kveikt á því. Það er ekki bara jóladót. Svo hreinsaði ég aðventukransinn, og þarf að kaupa kerti í hann.

Lennart kom í gær í latínu í stað þess að koma á morgun. Hann er að fara í próf. Mamma hans var svo ánægð að Margrét skyldi hliðra til fyrir hann að hún sendi henni box með jóladóti í. (Gylltur fugl og súkkulaði og skraut) Það var nú reglulega fallega gert. Ekki fékk Margrét neitt þegar hún gafst upp á að bíða eftir Kiru nýlega þegar hún bara gleymdi sér og hringdi loks eftir hálftíma. En munurinn er sá að Kira er af moldríku fólki komin. Ekki bara "skreppur" mamman með dæturnar til Hamborgar í klippingu, heldur fer Kira með ömmu í verslunarferðir og fær víst allt. Hver segir að peningar geri fólk hamingjusamt? Allavega gera þeir fólk ekki indælt.

Susanne hringdi í Klaus um helgina. Tante Marga, eina systir Körlu, á einn son. Hann er löngu fráskilinn. Á eina dóttur, Söndru. Sú er ekki sérlega sterkur karakter. Hefur mest samband við afa og ömmu til að fá peninga. Hún á barn, tók svo saman við annan. Og var svo að gifta sig þeim þriðja og lét hvorki afa, ömmu eða pabba sinn vita! Þau eru náttúrlega bálvond. Þó að oft sé eitthvað ekki í lagi hjá okkur er nú ástandið ekki svona. Hugsið ykkur að eiga íbúð, og slatta af peningum á banka, og vilja helst ekki að barnabarnið efi nokkuð!
Betri fréttir eru að Daniela er í fjarnámi í sambandi við námið sem ritari hjá lögfræðing. Hún er búin með tvö próf og fékk 1 í báðum! Æðislegt. Hún vinnur núna í baka hjá VW, en vill gjarnan komast í sitt fag.

Í dag er afmæli Bjargar hennar Sirrýar, í gær átti Gummi afmæli og á sunnudaginn Maria Heim. Ég ætlaði að hringja í Mariu, en kom því ekki í framkvæmd eins og stundum. Meðan ég man þarf ég að biðja ykkur að fyrigefa mér. Þið, sem fenguð keðjubréfið frá mér á þýsku. Ég sendi vanalega ekki svona bréf, en vildi gjarnan fá "góðar fréttir", sem hafa nú ekki enn komið! Vona að þið hafið ekki fengið "vondan anda" með bréfinu, híhí. Sorry.

Í gær var fundur í skólanum. Erfiði strákurinn, sem er hjá mér , hættir í fyrsta bekk, og fer í leikskólann aftur. Það er að segja skóla-leikskólann. Hann er fæddur eftir 1.7., og hefði ekki átt að fara í skóla fyrr en næsta ár. En ef krakkar eru talin "skólahæf" fá þau að byrja fyrr ef foreldrar vilja. En þessi drengur er mjög erfiður. Vel gefinn, algjörlega ófær um að vera án eftirlits. Búinn að meiða fullt af krökkum. Og það eina, sem samfélaginu dettur í hug, er að setja hann bara aftur í leikskólann og svo kemur hann eftir ár og allt er eins og það var. Af hverju vakna þjóðverjar ekki upp, og setja fleiri kennara eða leiðbeinendur inn í bekkina, og veita þannig hjálp.
Ég var búin að bjóðast til að taka hann tvisvar í viku úr bekknum og læra með honum. Kennarinn var rosalega ánægð með það. En þess þarf nú ekki lengur.
Ég er búin að fá frí þessa 3 daga um jólin, og þess vegna ætlaði ég að vinna upp í það og meira.

Síðasti dagur Kristínar fyrir norðan. Bíð spennt eftir að frétta hvað hún hefur bakað meira og í hverju hún er orðin fullnema! Vona að Arnhildur hafi hvílt sig vel á sófanum í gær :) Bara eftir einir 24 dagar þar til við fljúgum!!!!!!

5 comments:

Anonymous said...

Já, tíminn líður hratt og þú verður komin á skerið áður en þú veist af! Mikið verður gaman að hitta ykkur,erum ekki búin að ákveða hvort við komum norður um áramótin en þurfum að drífa í því. Veit heldur ekki enn hvort pabbi og mamma ætla að koma hingað suður, finnst dræmt hljóðið í þeim en vil endilega að þau ákveði skv. því sem þau vilja en ekki við...
Hér búið að baka piparkökur og sörur, stefnt að þrifum um næstu helgi því sú síðasta fór í Akureyringaheimsóknir, matarboð, afmælisveislur, kóræfingar, dansæfingar og skrall!!

Anonymous said...

Ætlið þið að fara beint norður þegar þið komið eða stoppa fyrir sunnan? VÖ er ekki búinn fyrr en 19 og ég veit ekki hvenær hann stefnir norður. Erum að velta fyrir okkur hvort við eigum að sækja hann- og ykkur, fer allt eftir því hvort við fáum nothæf vetrardekk undir jeppann, og þá hugsanlegt að þið hefðuð bara bílinn minn meðan þið eruð hér. Ekkert ákveðið enn, þurfum að skoða þetta, bæði út frá peningum og tíma.

Anonymous said...

Gaman að heyra að þið séuð að komast í jólaskap. Hér á að kveikja á því um helgina, ég að klára próf á morgun. Hlökkum mikið til að þurrka hér af, setja upp ljós og byrja að baka!

Það væri gaman að sjá ykkur 19. des. Hafið það gott þangað til. Margrét greinilega erft latínugen afa...eða varst þú kannski líka latínusnillingur Áslaug!?

Anonymous said...

...þetta var ég, Svanhildur!

Bestu kveðjur :)

Anonymous said...

Mamma þú mátt segja henni Margréti minni að ég er sko búin að hengja upp öll gömlu Ottifanten dagatölin mín og líka það sem þið gáfuð mér til að telja niður dagana til jóla!! Og ég get ekki beðið eftir að fá ykkur!! kveðjur pornodoggy Arnhildur