Laugardagsmorgunn, og úti er hvasst og smá úrkoma. Kannski veturinn fari að nálgast. Við gömlu eru búin að fá okkur morgunmat með þessum fínu Brötchen, sem allir okkar gestir elska. Margrét sefur svefni hinna réttlátu. Líklega þreytt eftir ferðina til Hannover með Kathi í gær. Ég ók þeim á stöðina, og fór svo til BS. Þar eyddi ég peningum okkar í mestu vitleysu :). Fór í klippingu sem var náttúrlega óþarfi þar sem það eru bara tæpir 4 mánuðir frá því ég fór síðast :). Svona í alvöru þá var ég orðin frekar skelfileg útlits, og mikið er ég fegin að vera búin að þessu. En ekki nóg um það. Keypti mér líka dúnstakk á 80 evrur. (lækkaður úr 100) Svartan, stuttan . Ég er voða hamingjsöm. Mig vantaði svo eitthvað stutt, sem þægilegt væri að vera í þegar ég ek bíl.
Og svo gat ég reddað einhverjum jólagjöfum handa Margréti, og keypti líka nærföt á aumingja Klaus, sem á bara slitin nærföt og lítur út eins og fátæklingur :)
Keypti matreyðslubækur handa Ramonu.
Var komin heim undir hálf átta, og Margrét kom klukkutíma seinna.
Þær stöllur ánægðar með ferðina til Hannover. Margrét fékk sér nærföt í H&M, og keypti hálsfesti í Vero Moda. Svo bauð hún Kathi upp á kaffi í Starbucks, og voða sport að fá sér það í jólapappaglasi. Í Hannover eru jólaljósin komin, en í BS eru komnar skreytingar, en ekki búið að kveikja á þeim. Enda er sorgardagur á morgun, og kirkjan vill ekkert gleðiraus fyrr en eftir þessa sorgarsunnudaga. ( Store Bededag á dönsku--veit ekki einu sinni íslenska nafnið--við erum ekki svo mikið í sorginni, og svo Volkstrauertag--minningardagur til heiðurs fallinna hermanna)
Á fim. bjó ég til rækjurétt Guðrúnar Hafsteins með hrísgrjónum, papriku, mæs og hunangssósu. Margrét náttúrlega hress með það eftir leikfimina, sem gekk bara vel. Svo tókst að klára staflann af skyrtunum. Kláraði að panta úr lista, og svona hitt og þetta.
Á morgun á að vera betra veður. Þá ætlum við Klaus út að ganga frá greinabunkunum, og setja út á stétt. Þetta verður tekið í vikunni. Svo er ég komin með risa kassa, og ætla að reyna að koma einhverju í póst svo við verðum ekki með of mikinn farangur.
Affí--átt þú kannski snjóbuxur að lána Margréti, eða Aldís?
Hvernig pössuðu snjóbuxurnar á KD? Og hinar? Kannski hún gæti skrifað ömmu gömlu línu á bloggið! Jæja. Best að fá sér einn kaffibolla í viðbót. Takk fyrir kommentin. Gangi þér vel að klára stofuna Maddý mín.
Affí--þú ferð ekki að gera hreint hjá mömmu!!! Ég get gert heilan helling þegar ég kem. Þrátt fyrir alla vinnuna í búðinni hennar Arnhildar :). Vona að Arnhildur hafi lifað af þessa törn á Dalvík, híhíhí. Ástarkveðjur til allra------ Góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Ég á fínar dökkblára snjóbuxur sem ég get lánað Magréti, þær hljóta að haldast upp um hana, spurning með hvort þær séu nógu síðar, það hlýtur að reddast :) Tékkum á þessu þegar þið komið, hlakka til ;)
p.s. Bjössi Arngríms mjóna hefur verið í þeim, þær héldust alveg uppi.
ooooo hvað mig langar í H&M.... það verður bara seinna :S
Annars eru bara 5 dagar þangað til ég fer til Akureyrar og því smæla ég framan í heiminn þessa dagana :D
Engar snjóbuxur til því miður hér, okkur Aldísi vantar líka snjóbuxur. Nei það verður lítið um tiltekt fyrir mömmu er ég hrædd um, hef lítið gert fyrir þau síðan mamma veiktist. Verð sjálf að vinna fram yfir miðjan des og nú er allt á hvolfi hjá okkur þar sem Elli er að gera upp stigann og stigapallinn, svo allt verður í ryki og líklega náum við ekki að gera meira en bara koma okkar heimili í þokkalegt stand fyrir jól. Mamma er mikið hressari núna en í langan tíma, held að blóðþynningalifin séu að auka blóðflæðið til heilans og hún því mjög,,heilahress" um þessar mundir og leikur á als oddi. Kv affí
Sko ég er með snjógalla sem ég get lánað Margréti minni-og líka snjóbuxur og eldingavara..þannig að don´t worry!! Dóttir mín er mjög ánægð með snjóbuxurnar-sem passa fínt -og föndrið sem þú sendir henni er æði, við erum búnar að líma skrautsteina á kort og litlar öskjur og voða gaman!! Mættir kannski kippa með þér meira af svona lími fyrir þetta þar sem við erum svo miklir bruðlarar!!
Ég lifði Dalvíkurkynninguna af..tæplega samt, konurnar voru á aldrinum 40-80 ára, ég þurfti að bíða í 45 mín eftir að þær slöfruðu í sig matnum, en ég fékk dásamlega pénínga..hefði nú samt alveg viljað fá borgað í evrum...
Ástarkveðjur ykkar Arnhildur the pornokynningamaster..sem hlakkar svooooo til að fá ykkur !!!!
Gastu ekki selt þessari 80 ára eitthvað krassandi Arnhildur?? Líst vel á eldingavarann, því allur er varinn góður... hehe...
Þið munið svo eftir því að það kostar "kúk og kanil" að fá þrif frá félagsþjónustu Akureyrarbæjar fyrir Litluhlíðarliðið, taka t.d. gólfin hálfs mánaðarlega ef hún vill ekki annað en það. Skoðið nú endilega málið!! Auðvitað alltaf skrítið að fá einhvern inn á heimilið til að gera þetta, en yfirleitt finnst fólki þetta frábært þegar þjónustan er komin í gang...
Post a Comment