Loksins. loksins kosinn forseti í USA, sem er ekki öfgasinni og pabbastrákur. Komi ameríkanar honum ekki fyrir kattarnef eru miklar líkur á því að hann geti komið einhverjum framförum á. Ekki öfunda ég hann af starfinu. Sjálfsagt verður ekki auðvelt að breyta nokkru í þessu erfiða þjóðfélagi, en hann gerir örugglega sitt besta. Ætli sé til réttlæti eftir allt saman :) ?
Næst er svo að losna við Davíð, og koma á nýrri stjórn á Íslandi. Sem á ekki heldur gott að þurfa að taka við öllum málum í molum eftir eigingjarna liðið.
Áfram til betra lífs!!!
En ekki var ég nú bjartsýn eða hress í morgun. Lenti í stappi á pósthúsinu, og var alveg að tapa mér. En sagan af mér og póstinum er svona : Fór á pósthúsið í fyrradag til að fá upplýsingar um hversu stór böggull í flugpóst, 2 kg., mætti vera. Og hveru mikið kosti heim. Fæ þær upplýsingar og er sátt við það allt. Finn svo í morgun í bæklingi að hægt sé að kaupa tilbúna kassa og borga bara smá meira fyrir, og tek dótið með í körfu og ætla að pakkka öllu niður á pósthúsinu. En þá eru þessir svokölluðu Pluspäckchen ekki til. Ég verði bara að fá mér pappakassa í einhverri búð. Voru upplýsingarnar þar. Eftir tvær tilraunir fékk ég tóma kassa, sem ég gat skorið til þar til stærðin passaði. Límt rækilega aftur, og aftur af stað. En nú kostar sendingin 12 evrum meira en mér var sagt fyrst. Ég nú ekki alveg sátt með það. Kellingin tuðar og tuðar. Ég finn staðinn í bæklingnum þar sem stendur Evrópa, -talin upp löndin í Evrópu og þar á meðal Ísland. En þá ku Ísland vera með sérstakt verð. Af hverju þeir eru þá taldir upp sem eitt af löndum Evrópu skil ég ekki. En líklega er það út af Efta. Kellingin segir að þessir spes pakkar, sem sé Pluspäckchen, séu á öðrum kjörum en venjulegur kassi! Sem hún nefndi nú ekki um morguninn. Ég var búin að berja í borðið með 50 evru seðlinum mínum, og borga- grautfúl, -ákvað svo að taka pakkann til baka. Kellingin súr eins og edik. Heim, og hringi í póstinn. Þá er þetta nú allt rétt. Allir smábögglar eru flokkaðir undir sama númerinu og pakkar, nefnilega Ísland í flokki 2. En böggull af þessari stærð megi fara sem bréf, Maxi bréf. Og kosti þá bara 14 evrur. Og það gat sem sé ekki þessi fúla á móti sagt mnér. Asni!!! Ég því aftur á pósthúsið og sagði henni að þetta væri Maxi bréf á 14, og hún tók því og tróð á vörinni. Var í manndrápsskapi, og ætla aldrei aftur að hafa samskifti við þessi fífl. Og fer héðan af til næsta þorps. Og HANA NÚ.
Þá er ég búin að fá útrás. Var það ekki gott :)
Af öðru er allt gott að frétta. Klaus komst heill á húfi til Ítalíu. Er svo væntanlegur heim í klvöld. Ég fór barasta í heimsókn í gær. Fór til Unnar, sem býr ekki langt frá mér. Um það bil 25 mín að keyra. Hún á rosalega mikið þroskahefta dóttur, sem er á hæli. Unnur er að að reyna að koma á betra skipulagi fyrir þetta fólk og vinnur eins og vitlaus við að skrifa greinar og bækur um þetta. Hún hefur sent mér bréf um þessi mál, og ég var svo að skila henni þeim og ýmsu öðru í gær. Fór náttúrlega í fína lopavestinu, sem henni þótti flott. Rosalega hlýtt að vera í því.
Bjó til núðlusalat handa Margréti, sem kom heim hálf þrjú. Var svo komin heim fyrir 5. Margrét fór í píanótíma, og ég sótti hana svo eftir að hafa verslað i Netto. Sjónvarpsgláp og lesið í bók frameftir.
Úti er þokuloft. Frekar leiðinlegt veður. Margrét er að fara til Lennart á eftir að kenna honum latínu. Svo var verið að biðja hana að passa á fö.kvöldið.
Takk fyrir kveðjurnar. Já, gott að eiga evrur :) Get líklega keypt mér vináttu heima, alveg rétt. Ætli ég kalli mig bara ekki evrukonuna eftir þetta :)
Best að fá sér salatafgang, og hætta að hugsa um lundleiða þjóðverja, sem hafa ekki vit á neinu :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Skora á Arnhildi að senda pronódagatal til þín og þú hengir það svo upp í skólanum þínum-segir bara að svona geri allir á 'islandi, við hvort sem er ekki í náðinni í útlöndum he he
kv afffí
Best ég segi eina sögu til að létta þér lund: Strákarnir vita núna að ég er ófrísk, EÖ voða glaður en KÖ ekkert á því að það sé barn í maganum, finnst þetta greinilega hálf skrítið. Svo fór hann með mér á klóið um daginn, ég byrja að pissa og hann hallar sér þá fram á lærin á mér og segir " mamma þú mátt ekki pissa á litla barnið" hehehe. Hvernig á hann að skilja þetta litla skinnið ;)
Kærar kveðjur, ég myndi sko fara alltaf á þetta pósthús, sérstaklega þar sem þú hafðir rétt fyrir þér og gast rekið þetta ofan í konu kindina!!
Haha Affí já ég skal senda henni eitt svona súkkulaði dagatal sem er útrunnið með súkkulaði brjóstum og rössum....hehe! En bara svona ef við byggjum í USA þá væri örugglega löngu búið að skjóta Davíð Oddson!!!
Kveðjur The Toyland woman
Post a Comment