Wednesday, November 19, 2008

Dagur klósettsins.

Í dag er dagur klósettsins og í blöðunum voru myndir af nokkrum náðhúsum. Veit ekki af hverju mér datt Arnhildur í hug og búðarbúllan hennar, hehe. Á morgun er svo fallegra þema. dagur lestrar. :) Takk fyrir kommentin. Gott að vita af buxum hjá Möllu og Arnhildi. Hef mestar áhyggjur af skómálum, því ekki getur Margrét farið í skóla á Íslandi í snjóstígvélum, ó nei. Þegar Ásta og vinkonur hennar fara í Kawasaki strigaskóm í slyddu og snjó. Ó, þessir unglingar! Ég er að reyna að finna allavega leðurstígvél á hana, en ekki finnast nein undir 100 evrum, og hún Margrét ætlar sko ekki að bruðla svo mikið!!! Smá þýsk, enda til helminga dóttir Klaus :)

Það er sko mikið að gera á stóru heimili. :) Sunnudaginn var ég úti að vinna í garðinum í eina 4 klukkutíma. Klaus batt með mér greinarnar, og svo var ég að taka til eftir bestu getu. Gróf pottana með túlipönunum í beðin, til að frostið skemmdi þau ekki. Hvaða frost--! Hér var frost akkurat nóttina eftir að ég gekk frá þessu, en svo eru aftur komin ein 7 stig. Uppgötvaði að túlípanarnir eru komnir upp úr moldinni. Hvers konar tíðarfar er þetta! Maja og Arthur við hliðina vissu ekki um ruslasöfnunina, og fóru að klippa og saga niður greinar. Grófu upp heilu trén, og það var risastór hrúga á stéttinni þegar við vorum búin að öllu. Sonja hjálpaði mér dyggilega að bera greinar og sópa laufi. Tók svo endanlega sumarblómin, sem eru samt enn ekki fallin, og setti nokkur vetrarblóm og sígrænar greinar i potta. Besta veður og æðislegt að vera að stússast úti.

Margrét pakkaði inn jólagjöfum um helgina. Í gær setti ég svo helling í kassa. Það leiðinlegasta, sem ég geri. Skrifa upp hvern hlut, fylla út pappíra, líma endalaust fyrir, og fara svo með þetta á pósthúsið. Vona svo að þetta komi sem fyrst til pabba og mömmu, og ekki verði neitt rifið upp í tollinum. Enda ekki neitt tollskylt. Konan á pósthúsinu spurði hvernig farið hefði um daginn með smáböggulinn. Hún var nefnilega viðstödd fyrri hluta samtalsins. Hún sagði að hún hefði skammað starfsstúlkuna fyrir framkomuna við mig. Sko til!!! Sú er nú í veikindafríi og kemur ekki á næstunni. ( gott á hana, ó, nei. Hvað maður getur verið illur í sér :) )Nú er eftir pakkinn til Reykjavíkur. Diddi er með áhyggjur af jólagjöfunum. Við megum ekki eiga von á miklu, og verið sé að draga saman með gjafir. Engar gjafir handa eldri en fermdum. Við sendum nú FAF samt smá gjöf, þar sem við höfum tækifæri til að finna ódýrt. Og eins á ég eftir að finna eitthvað handa Aldís D. og V.Ö. þar sem Affí er alltaf að hugsa um alla fjölskylduna, og ég get ekki gert svo mikið fyrir mömmu og pabba. Einhvern veginn vill maður launa henni það, og er til betri leið en að hugsa um börnin? Er það ekki leiðin að hjartanu, ég bara spyr!

Getur ekki einhver hringt í félagsmálamiðstöðina á Akureyri, og kannað hvað konur geri, sem þrífa þar?!!! Mamma er aftur með einhvern óróleika í hjartslættinum, og hún má bara ekki vera að hamast í húsinu eða í bakstri. En hún segir alltaf að þessar konur geri ekki neitt nema rétt að strjúka yfir gólfin og það geti hún nú sjálf. En það ætti hún bara ekki að gera í bili.-- Hvað gera þær, -- er ekki hægt að fá fólk í gluggaþvott,-- í tiltekt á baðinu-- sem sé flísapússningu, -- pússningu á eldhússkápunum að utan og svo framvegis.-- ég skil svo vel að mömmu langi ekki í ókunnuga í húsið, en hún á það svo verulega mikið skilið að geta hætt að vera að þessum líkamlega erfiðu störfum. --Og þyrfti Lilla ekki líka að fara út í svona?-- Og Maddý með ónýtan olbogann?

Á mánudaginn var ég að pússa. Tók öll gólf í gegn og baðið. Og var bara vel sveitt á eftir, konan bara 53 ára! Svo sótti ég Mariu og Margréti í skólann klukkan 1, og eldaði pasta og uppáhalds mat Mariu, danska nagga frá Tulip. Svo var ekið til BS. Þær fóru í bíó, og sáu Highschool Musical, og skemmtu sér vel. Margrét hefur rosalega gaman af söng. Og elskar happy end!
Ég keypti jólagjafir og var steinuppgefin í bakinu á eftir. Settist inn á Miners kaffihúsið í höllinni og fékk mér m.a.s. hnetumarsinpan kexköku. Algjört bruðl í kreppunni!

Í gær var Margrét ekki komin heim fyrr en hálf fjögur. Svo var píanó klukkan 6, og ég fór á fund klukkan 8 hjá foreldrafélaginu í menntaskólanum.
Ég er komin í stjórn þar!!! Var kosin sem Beisitzer. Það er hlutverkið, sem kostar minnsta vinnu :) Nema hvað þessar hafa þann háttinn á að láta Beisitzer þvo svunturnar og handklæðin, sem notuð eru við kaffisöluna, hí hí. Ég ætti nú ekki að vera í vandræðum með það.
Fyrsti fundurinn svo 3.12., og 13. des. er jólatréssala, og þar verð ég allan daginn, svo og fö. 12. seinni partinn við að undirbúa þetta. Gott að vera komin með verkefni. Og voða gaman að fá að heyra að einhver sé "rosalega feginn að fá að vinna með mér"! þær eru sem sé smá klikk :)

Stutt hlé.-- Margrét hringdi, og vantaði möppu. Fór með hana, og hitti líka fyrrverandi kennara hennar, sem kennir henni ennþá sund og leikfimi. Hann vill endilega að við reynum að klára þetta stig, sem hana vantar. Ætlaði að hitta skólastjórann, en hún er á fundi. Hitti aðstoðarskólastjórann, og sagði honum að ég hefði ætlað að tala um fö.daginn fyrir jólin. Að við yrðum að fljúga síðasta daginn, og værum ekki með leyfi fyrir því. Hún myndi fá mínus í mætingu, og ég ætlaði að melda það. En hann sagði að það væri hægt að redda því. Hvort ég gæti ekki fundið eitthvað, sem Margrét þyrfti endilega að vera mætt í á fö. ( fyrir skriffinnskuna !) T.d. íslenskukúrs, eða annan kúrs. Mér datt þá í hug hvort væri fundur hjá Didda í skólanum, sem hægt væri að kynna Margréti, eða kynna henni skólann, --ekki í alvöru, en á pappírunum. eða party hjá bekk Ástu eða FAF., sem mikilvægt væri að hún kæmist í. ?? Dettur ykkur eitthvað í hug? Menningarlegur atburður, -eitthvað, sem nemendur á Íslandi þurfa endilega að fara á. Leikhús, tónleikar, litlu jól???

Jæja. - Arnhildur mín. Skal reyna að redda meira af svona steinum og lími. Hvað er með að redda fyrir ykkur einhverju til jólanna? Bara að láta gleðibakann vita!
Hjartans kveðjur heim á Frón. Ykkar Áslaug í stjórninni !!!!

4 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ ég hélt sko uppá dag klósettsins og fór og dömpaði einum stórum illa lyktandi lorti í klósettið..hehe-veit að mamma hefur svooo gaman af svona sögum!!!
Fór í litun og plokkun í morgun af því ég á svo mikið af pening..en ég verð víst að líta vel út í þessari vinnu minni-fékk skilaboð um daginn að nú væri sko skylda fyrir okkur allar sem erum að afgreiða í Adam&Evu búðunum að vera með maskara og gloss... og það er fínt á meðan brjóstastækkun og augnpoka uppskurður og neðri barma fylling eru ekki á skyldulistanum...
Og mamma ef þig langar að kaupa eitthvað nammigott handa okkur þá eru hvítu trufflurnar, Celebrations og Duplo, (og Milky way rúllur fyrir KDV) efst á óskalistanum!!
Erum að verða búin með Duploið sem KDV fékk um daginn..aðallega Fúsi samt sko...
kveðjur frá ykkar pornodoggy...AH

Anonymous said...

HæHæ.... bara aðeins að kvitta fyrir lestri... nú fer ég norður á morgun og aðeins tæpur mánuður í ykkar ferðalag :o) spennandi
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Hæ, ekki vandræði að finna eitthvað til að láta Margréti gera af skylduverkum á Íslandi. Hvaða dagur er þetta annars - og viltu að hún geri eitthvað? Hér er flest við það sama, Sigyn á fullu að undirbúa sextugsveislu mömmu sinnar á föstudag, ég að kenna og með endalaus próf þannig að það er nóg að gera. Pólitíkin líka á fullu og nú er ég orðinn aðalmaður í Umhverfisráði en ekki bara varamaður. Gaman að því. Rifið er þokkalegt, tek töflur og finn svosem ekki mikið fyrir því.
Annars allt gott. Diddi bró

Anonymous said...

Las um þetta í blöðunum Diddi, til lukku með þetta!