Sólin skein þegar 1500 skólanemendur úr 3 menntaskólum og einum Real-skóla svo og iðnskólanum héldu mótmælafund í Gifhorn í gær. Frábær stemming og allir kátir. En ekki var skólastjóri okkar skóla hress með þetta. Hún talaði við okkar hóp eftir að þau mættu í síðasta tímann og klikkti út með spurninguna--"og hvað breyttist við þetta"?. Og með hæðni--"á morgun verður allt öðruvísi!" --Hefðu mótmælendur í gamla DDR hætt við friðsamlegu mótmælin af því að hlutirnir breyttust ekki í einum hvelli, væri sennilega ekki búið að sameina þýsku ríkin enn í dag. Mér finnst bara skandall að segja svona við unga nemendur, sem eru að fara af stað út í lífið, og gera lítið úr mótmælum. ---Hvað finnst ykkur????
Í Hannover mættu 5000 og því miður líka ofgasinnar, sem fóru að þingsalnum, og voru þar með mótmæli. Tveir settir inn, og það er náttúrlega eldur á sinu hægri flokkanna. Já, þetta pakk, sem vogar að mótmæla hinum alvitru hægrisinnum. Þvílíkt. En það var áhugavert að fylgjast með fréttaflutningi af málinu. Í útvarpinu var sagt að mótmælin hefðu farið fram að mestu leyti friðsamlega, en í sjónvarpinu voru þessir ofgasinnar blásnir upp.
En nóg um sorglega stöðu menntamála í þessu svarta landi.
Ég fékk fimm kennara í kaffi í gær, og það var æðislegt. Kerstin kom með tveggja ára dóttur sína með. Voða mikil rúsina, og þvílíkt góð. Mamma hennar er búin að kenna henni að meðan kaffi sé í bollanum hafi hún ekki tíma til að setjast á gólfið hjá henni. Og sú stutta sagði "ekki meira kaffi" þegar ég spurði hvort Kerstin vildi aftur í bollann! Svo var spjallað um börn og lífið og tilveruna. Æðislegt að hitta fólk og vera ekki bara að horfa á sjónvarpið.
Þau færðu mér fína körfu með haustskreytingu. Margrét verður að setja mynd á bloggið.
Báðir nemendur hennar mættu í gær, og það gekk allt vel. Margrét 17 evrum ríkari eftir daginn :)
Ástralska bomban vakti mikla lukku. Enda eru ís og karamellusósa ekki amalegt fyrirbæri, :).
Búin að setja þvott út, og aftur í vélina. Margrét fór með bíl í morgun. Hún er til 4 í dag, og í tveimur tímum í leikfimi. Mamma sækir litlu stelpuna sína á bíl og verður þá búin að elda eitthvað gott :) :) :)
Meiningin var að hún og Kathi færu til Hannover að versla á morgun eftir skólann. En Kathi er lasin í dag. Kannski við mæðgur förum aftur til BS á morgun. Reynum að klára þetta af.
Arnhildur -er pakkinn kominn? Ég er stressuð að kellingin hafi klúðrað þessu í fílunni um daginn, og kannski ég hefði þurft að setja tollmiða á pakkann. ( þetta fór nú samt sem bréf). En hún nefndi ekki neitt um það. Láttu mig nú vita þegar eitthvað fréttist af pakkanum.
Ertu búin að kanna stærðirnar?
Já, frekar spennandi þessar myndir ,sem Arnhildur er að selja, hmhmhm. Hvernig ætli rabbarbarinn í Bárðardal sé, :)
Takk fyrir skrifin. Það er æðislegt að heyra í ykkur. Vona að Malla hvalur sé hressari á morgnana og frísk.
Innilegar hamingjuóskir til Maddýar. Elsku frænka. Hafðu það nú gott á afmælinu þínu! Láttu svo Kristínu stjana við þig þegar hún kemur og ekki öfugt! Ætlar þú ekki bara að vera fyrir norðan um jólin--mér finnst að þú ættir bara að gera það :) Ég skal sko liðsinna þér með glaðværð! Svona á milli þess, sem ég hjálpa Arnhildi í búllunni, híhíhí!!!!!
Hafið það öll gott. Bara einn morgunn og þá er hægt að sofa lengur, --bjart framundan!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Hæ hæ þessi pakki sem þú hefur svooo miklar áhyggjur af er kominn og Kristín Dögg sótti hann á pósthúsið áðan!! Hún er í fríi í dag og á morgun vegna foreldraviðtala í skólanum. Fúsi minn er búinn með röraskiptin og er ekki lengur í djúpum skít, svo eru þeir búnir að flísaleggja þvottahúsið og forstofuna..duglegur Fúsi minn!!!
Annað kvöld verð ég með kynningu á konukvöldi á Dalvík fyrir 50 konur..og verð bara að viðurkenna að mig kvíður frekar mikið fyrir! En ég fæ þetta vel borgað...
kveðjur frá Arnhildi klámkynningakonunni
Og ég ætla í mótmælagöngu á laugardag kl.15, burt með ríkisstjórnina og allt þetta skítapakk!! Ég kveiki kannski í nokkrum bílum og sprengi flugelda á leiðinni-þá verður kannski gert eitthvað..ég meina annað en að maður verði handtekinn sko..!
Maður er á góðri leið á hausinn því öll lánin okkar eru að hækka meira og hækka og hækka...sem betur fer er ég með vinnu til næsta sumars...Arnhildur byltingasinnaði pornohundurinn
Já maður veit ekki hvar þetta endar...
Gangi þér vel á Dalvík klámhundur!
Segi það sama og Þorgerður... gangi þér vel á Dalvík elsku Arnhildur.... ég kem norður eftir 7 daga og hlakka svo mikið mikið til :þ
kv
Kristín með hóstakast :S
Takk fyrir afmæliskveðju.Dagurinn í gær var bara venjulegur.Reyndar lauk leyniv.upplýst hver leyniv.var.Og svo þetta fína kaffi á eftir.Ég hélt því að sjálfs.fram að þetta væri allt í tilefni afm.míns og þakkaði ég skólastj.kærlega fyrir.Síðan var starfsm.fundur hjá okkur vistunarkonum.Þangað fór ég með heitan rétt og maddömueplak.(eins og í ferm.Margrétar)Einar fékk smá leyfar þegar ég kom heim.Nú er komið helgarfrí og á að klára að gera stofuna hreina.Kveðjur til Margrétar og Klaus. Magga móða.
Post a Comment