Monday, December 1, 2008

Íslenskur hátíðisdagur.

Þá er fysti des. runninn upp. Vonandi bjartur og fagur hjá ykkur eins og hann er hér. Er ekki frí í skólum á þessum degi? Ég er svo farin að kalka í þessum siðum. Allavega hlýtur að vera 1.des. hátíð í MA og matur og íslenskir búningar. Væri nú lélegt ef því hefði verið hætt.
Hér er tæplega tveggja stiga frost. Klukkan að nálgast 9. Fór út mð tvær hitaflöskur í bílinn. Frábært ráð til að losna við móðuna innan á rúðunum. Og skrapaði frostið af rúðunum. Það var nú heldur betur verk. Margrét fór á hjóli enda engin hálka í frostinu meðan allt er þurrt. Hún er betri af kvefinu. Var reglulega slöpp á fö., en straks betri eftir góðan svefn.
Var að hengja út þvott í frostinu. Geng alveg fram af þjóðverjunum. Hann þornar ekki -er viðkvæðið. Erfitt að útskýra fyrir þeim að það fari nú bara mikið af rakanum og svo fái maður þennan fína ilma þegar þvotturinn er settur upp á baðið til að þorna endanlaga. Það er líka nóg bleyta á baðinu eftir Klaus á morgnana. Ekki við bætandi að setja þar inn þvottinn , rennblautan. Já, skrítnir þessir íslendingar :)

Vorum mest eitthvað' að dúllast um helgina. Fór á bláa að versla smá á laugardaginn. Núðlubakstur í kvöldmatinn og leyfar í gær. Eplakaka með aðventukaffinu, með ís. Fór á hjólinu í gærmorgun að ná í Brötchen til bakarans. Hefði verið lengur að skafa af bílnum en að fara á hjólinu. Svo var reynt að panta myndir á netinu til að setja á jólakortin. En ekki tókst að ná sambandi við síðuna. Ergilegt. En reynum aftur á morgun. Kveiktum á aðventuljósunum. Pólverjarnir við hliðina settu seríu á jólatré við girðinguna við akurinn, og aðra framan við húsið! Loksins fólk, sem skreytir smá. Margrét var mjög sátt við það.
Doreen kom í smá heimsókn. Hún var búin að búa til aðventukrans handa Margréti, og færði henni hann og okkur rauðvínsflösku. Svona í fyrirfram Nikulaus gjöf. En eins og þið eruð örugglega búin að læra af mér er Nikulaus dagurinn hinn 6.12., á afmæli Össa. Doreen er í verknámi í 3 vikur. Er að vinna á barnaheimili nálægt Wolfsburg. Býr þess vegna hjá ömmu sinni. Annars fór mestur tíminn í það hjá Margréti að læra undir próf. Klaus aðstoðaði hana við eðlisfræði. Hann fór svo í góðan göngutúr meðan ég bakaði kökuna. Ég setti hreint á rúmin og moppaði gólfin uppi. Þetta var sem sagt ósköp venjuleg helgi.

Allt i besta með að fara norður seinni partinn á laugardeginum þeim 20.12. Affí mín. það er bara erfitt fyrir ykkur að vera svona mikið á ferðinni á einum degi. Þið þurfið nú ekki að gera eitthvað fyrir okkur þó að þið hafið fengið að liggja hér í sumar. Þú átt það nú inni, svo mikið er víst. Þið hafið þetta eins og ykkur hentar best. Við hlökkum bara til að fá að vera með ykkur.
Það væri æðislegt ef þið tækjuð vetrarstígvélin hans Klaus með í bílnum. Aldrei að vita hvernig veður verður. (Þau eru hjá mömmu.)

Vaknaði korter yfir 5 í morgun og gat ekki sofnað aftur. Held að ég vakni við maju, sem fer á fætur klukkan 5 alla daga. Ergilegt. Get svo ekki sofnað aftur. En er vel vakandi eftir morgunstörfin. Klaus kemur heim klukkan 4. Við svo til Gifhorn með Margréti til tannréttingarlæknisins. Svo til Fallersleben í afmæli Ramonu.
Bestu kveðjur úr frostinu. Ykkar Áslaug.

2 comments:

Anonymous said...

Ég vaknaði til að hjálpa Össa síðasta sprettinn með strákana, honum finnst þetta morgunstúss ganga alltof hægt!!! Hver er 30 mín að borða eina skál af morgunmat heyrist þrusað hér á morgnanna svo ég lufsaðist fram úr. Skreið svo upp í rúm með blaðið, las til 9 og sofnaði svo aftur og vaknaði rúmlega 10 !!!! Ég er að reyna að slappa af (tók að vísu rimlagardínur, gardínur og glugga í gær, ég bara varð!!!)

Anonymous said...

Hæ hæ við áttum mjög góða helgi í borg óttans. Yfirmaður minn bauð okkur suður í jólahlaðborð á hótel Loftleiðum, og borgaði ferðakostnað og splæsti á okkur hótelherbergi!!Kristín og Alex gistu með okkur á hótelinu fyrri nóttina, frekar spennandi sko, og svo fékk Alex að vera hjá Hlyn og Gunnu, og KDV var hjá Guðnýju sinni-og vildi ekki fara aftur heim í gær og grét lengi í bílnum...En hlaðborðið var geðveikt gott, og vín með matnum og svo var okkur öllum boðið af yfirmanninum á Nasa á Sálina.Stoppuðum nú ekki lengi þar-geðveikt troðið, og svo þurftum við nú að skila hótelherberginu kl 12 í hádeginu..
En þetta var mjög gaman, og við fórum auðvitað í Kringluna og Smáralindina, og hittum Ássý!!
Fyndið, kveðja ARnhiLduR